Víkurfréttir - 24.04.1992, Blaðsíða 13
Söngdeild skólans heldur tónleika ásamt nemendum úr Söngskólanum í
Reykjavík, laugardaginn 25. apríl kl. 17.00 í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Und-
irleik annast Geirþrúður F. Bogadóttir, Judith. Þorbergsson
og Krystyna Cortes.
Mjög fjölbreytt efnisskrá. Allir velkomnir.
Vortónleikar skólans verða sem hér segir:
Laugardagur 25. apríl kl. 17.00: .... Tónleikar söngdeildar ásamt Söng-
skólanum í Reykjavík.
Mánudagur 4. maí kl. 20.00: .......Tónleikar fiðlunemenda.
Laugardagur 9. maí kl. 14.00: .....Vortónleikar yngri nemenda.
Sunnudagur 10. maí kl. 14.30: .....Tónleikar lúðrasveitar TN. Fram
koma yngri og eldri deild.
Miðvikudagur 13. maí kl. 20.00: ...Vortónleikar eldri nemenda.
Skólaslit verða laugardaginn 16. maí kl. 16.00.
Allt ofangreint verður í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
ÞJONUSTA
M-hátíð - sýningar
Tónleikar í Grinda
_______________________ ____________13
Víkurfrcttir
____________________________24. apríl 1992
yQrlqa Sunnudagurinn 26. apríí
víkurkirkju
Á morgun laugardag verða
tónleikar í tilefni M-hátíðar. í
Grindavíkurkirkju.
Flytjendur á tónleikunum
verða; Kór Öldutúnsskóla í
Hafnarfirði, stjórnandi Egill R.
Friðleifsson; Veigar Mar-
geirsson, trompetleikari og
Guðmundur Magnússon, pí-
anóleikari.
Kór Öldutúnsskóla hefur um
árabil verið í allra fremstu röð
barnakóra hérlendis. Kórinn
hefur víða komið fram, haldið
tónleika og margsinnis tekið
þátt í kóramótum erlendis.
Hvarvetna hafa kór og söng-
stjóri hlotið einróma lof gagn-
rýnenda.
Veigar Margeirsson er ungur
Keflvíkingur, sem er að Ijúka
burtfararprófi í trompetleik frá
Tónlistaskóla Keflavíkur. Hann
er fæddur þann 6. júlí 1972 og
er því aðeins tæplega tvítugur
að aldri. Ellefu ára gamall hóf
hann nám við Tónlistarskólann
undir handleiðslu Jónasar Dag-
bjartssonar en síðastliðna fimm
vetur hefur hann sótt einkatíma
til Ásgeirs Steingrímssonar.
Veigar hefur tekið þátt í upp-
færslum Sinfónínuhljómsveitar
æskunnar, auk þess sem hann
hefur tekið virkan þátt í tón-
listarlífi bæjarins, m.a. með
Leikfélagi Keflavíkur. Mun
hann leika verk eftir Haydn,
Guy-Ropartz og Goedicke.
Guðmundur Magnússon, pí-
anóleikari er kennari við Tón-
listarskólann í Keflavík. Einnig
kennir hann í Garðabæ og á
Seltjamamesi. Hann nam pí-
anóleik í Köln í Þýskalandi.
Hann hefur víða haldið ein-
leikstónleika og leikið með
Sinfónínuhljómsveit Islands. Á
tónleikunum mun Guðmundur
leika verk eftir Chopin auk þess
sem hann leikur með Veigari.
Þessir tónleikar verða vafa-
laust fjölbreyttir og skemmti-
legir og vill und-
irbúningsnefndin hvetja alla
Grindvíkinga og aðra Suð-
urnesjamenn að mæta í kirkjuna
á morgun, laugardag.
Tónleikamir hefjast kl. 18og
er aðgangur ókeypis.
Ytri-Njarðvíkurkirkja:
Messa kl. 14. St. Georgs-
skátar taka þátt í messunni.
Baldur Rafn Sigurðsson
Hvalsneskirkja:
Fermingarguðsþjónustur kl.
10.30 og 14.
Hjörtur Magni Jóhannsson
Bjarmi
Félag um sorg og sorgarferli
Hinn mánaðarlegi opni fund-
ur Bjarma verður haldinn í
Kirkjulundi, miðvikudags-
kvöldið 29. apríl kl. 20.30.
Konráð Lúðvíksson, læknir við
fæðingardeild Sjúkrahúss Kefl-
avíkurlæknishéraðs verður
ræðumaður kvöldins og mun
hann ræða stöðu aldraðra í
nútíina þjóðfélagi.
Allir velkomnir.
Fyrir hönd stjórnar Bjarma
Hjörtur Magni Jóhannsson
Tónlistarskóli Njarðvíkur
• Kór Öldutúnsskóla í Hafnarfirði, stjórnandi er Egill R.
Friðleifsson.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA
Raflaanavinnustofa
Siaurðar Inavarssonar
Heiðartúni 2 Garði S: 27103
SIEMENS
UMBOÐ
Ljós og lampar - Heimilis-
tæki - Hljómtæki -
Myndbönd - Sjónvörp
Raflagnir - Efnissala
ÍSLENSKA
ALFRÆÐI
ORÐABÓKIN
Vogastapi:
Grágrýtishæð í landi Njarð-
víkur. við Stakksfjörð. milli
Vogavíkur og Njarðvíkur; 80
m; þverhníptur í sjó að norðan
en aflíðandi að sunnan. Víðsýnt
er af Vogastapa og þar er
hringsjá.
HATIÐ
Setning M-hátíðar í Keflavík
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
I Íþróttahiísi Keflavíkur við Sunnubraut kl. 20.30.
Stjómandi: Páll P. Pálsson
Einleikarar: Steinunn Karlsdóttir, píanó og
Veigar Margeirsson, trompet.
Setning
M-hátíðar: Drífa Sigfúsdóttir, forseti
Bæjarstjórnar Keflavíkur.
Ávarp: Ólafur G. Einarsson,
men n tamála ráðherra.
Á efnisskránni verða verk eftir Glínka, Haydn,
Chopin og Mendelsohn.
Veignr Margeirsson
Aðgöngumiðar seldir við innganginn.
Steinunn Karlsdóttir