Víkurfréttir - 24.04.1992, Síða 4
4
Keflavík
Víkurfn'ttir
24. apríl 1992
Fimm hús f jarlægð eða rifin
Á síðustu tveimur mánuðum
hafa fjögur hús í miðbæ Kefla-
víkur verið rifin, þar af þrjú á
vegum Keflavíkurbæjar. Þá
hefur bærinn ákveðið að fjar-
lægja eitt hús til viðbótar innan
tíðar.
Hús þau sem rifin hafa verið
eru: Suðurgata 4a, sem Bygg-
ingafélag eldri borgara á Suð-
urnesjum lét rífa vegna ný-
byggingar við gamla Spari-
sjóðshúsið. Austurgata 6 sem
bærinn lét rífa og bílskúrar við
Hafnargötu 18 og Hafnargötu
26.
Fyrr í vetur kom upp eldur í
skúrnum að Hafnargötu 18, en
þar var aðstaða fyrir æfingar hjá
hljómsveitum og skúrinn númer
26 við sömu götu hýsti síðast
radíóverkstæði. Hinn síð-
amefndi var rifinn í dymbil-
vikunni.
Þessu til viðbótar hefur bær-
inn fengið heimild til að fjar-
lægja húsið Aðalgötu 13, sem er
fyrir samkvæmt skipulagi. I því
húsi er nú búið til bráðabirgða
meðan verið er að undirbúa
flutning á húsi úr Höfnum sem
staðsett verður við Vallargötu í
Keflavík.
• Hér var radíóverkstæði síðast til húsa, en í dymbilvikimni var
hús þetta rifið. Ljósm.: epj.
• Bifreiðin er fór út af á Vogastapa er mikið skemmd, ef ekki
ónýt eftir velturnar. Ljósm.: epj.
Dymbildagar:
Bílveltur og smá-
vægileg slys
fveir ökumenn sluppu vel er
bifreiðar þeirra fóru út af veguin
á Suðurnesjum á dymbil-
dögunum, voru þeir einir í bif-
reiðum sínum sem skemmd-
umst mikið.
Fyrra óhappið varð á
Reykjanesbraut á Vogastapa á
skírdag. Samkvæmt verksunt-
merkjum á slysstað virðist öku-
maðurinn hafa verið á leið til
Keflavíkur er hann missti bif-
reiðina út í vegkantinn á öf-
ugum vegarhelmingi. Honum
tókst að ná bflnum inn á ak-
brautina aftur en missti hana þó
út af á ný sömu megin nteð
fyrrgreindum afleiðingum.
Síðara óhappið varð á föstu-
daginn langa á Garðvegi í
Grófinni. Ökumaður á leið til
Keflavíkur virðist hafa fipast
við aksturinn, en bifreið er kom
á móti honum tók sveig fram
hjá biluðum bíl í vegkantinum.
Við það fór hann yfir á gagn-
stæðan vegahelming og þaðan
út af veginum. Stöðvaði bif-
reiðin 80 metra frá veginum,
eftir að hafa stungist fram af
barði og oltið a.m.k. einu sinni.
Virðist bifreiðin hafa farið
fyrstu átta metrana í loftinu áður
en hún tók að renna eftir mó-
anum að barðinu.
• Sama má segja um þá sem fór út af í Grófinni.
Fyrirsætukeppni Suður-
nesja huldin í fyrsta skipti
Fyrirsætukeppni Suðurnesja
verður haldin í fyrsta skipti 30.
maí nk. í Veitingahúsinu Eden-
borg í Keflavfk. Auglýst hefur
verið eftir þátttakendum og hafa
nokkrir tugir stúlkna látið skrá
sig. Verða valdar úr þeim hópi
10-12 stúlkur sem koma munu
fram á lokakvöldi í Edenborg
30. maí. Þær munu m.a. í und-
irbúningi fyrir keppnina sitja
fyrir hjá tískuljósmyndara og
læra ýmislegt sem fyrirsætur
þurfa að kunna. Kolbrún Að-
alsteinsdóttir hjá Módel-Mynd
mun leiðbeina stúlkunum en
þær munu koma fram á tísku-
og danssýningu á lokakvöld-
inu. Dómnefnd mun síðan skera
úr um sigurvegara keppninnar
sem mun hljóta að launum veg-
leg verðlaun. Stúlkumar verða
kynntar á sérstöku kynning-
arkvöldi 15. maí í Edenborg og
einnig í Víkurfréttum. Þær sem
hafa áhuga á að taka þátt í
keppninni eru beðnar að skrá
sig hjá Siddý í Gloríu í síma
14409 eða Kristínu í Nýtt útlit í
síma 13270 en þær hafa unnið
að undirbúningi keppninnar
ásamt fleirum. Þátttakendur
verða hafa náð 16 ára aldri.
• Tugir stúlkna hafa skráð
sig til kcppni.
Afmælis-
hóf Engla-
kroppa
Englakroppar Æfinga-
studeos í Njarðvík fagna
eins árs afmæli um þessar
mundir. Af því tilefni ætlar
hópurinn að halda afmæl-
ishátíð í JC-húsinu í Njarð-
vík laugardaginn 2. maí.
Skráning er í Æfingastudeo
og þarf hún að berast fyrir
28. apríl.
Kiwanisklubburinn Hof 20 ara:
Gaf Björgunarsveitinni
Ægi bát
Björgunarsveitinni Ægi í
Garði var í gær færður að
gjöf nýr slöngubátur ásamt
utanborðsmótor frá Kiwanis-
klúbbnum Hof í Garði. Þessi
rausnarlega gjöf er afhent í
tilefni af því að tuttugu ár eru
liðin frá því Kiwanis-
klúbburinn Hof var stofnaður
í Garði. Andvirði gjafarinnar
nemur á áttunda hundrað
þúsund krónunt.
og mótor
Báturinn og mótorinn voru
afhentir í fjölmennu kaffi-
samsæti í björgunarstöðinni í
Garði í gær, sumardaginn
fyrsta. Við santa tækifæri af-
henti Kiwanisklúbburinn Hof
fleiri aðilum af Suðumesjum
gjafir og styrki. Verður þess-
um afhendingum öllum gerð
ítarlegri skil í næsta blaði, í
máli og myndum.
Börnin og viö:
Séra Jóna
Kristín ræðir
um fjöl-
skyiduna
Fræðslufundur verður hjá fé-
laginu Börnin og við í Myllu-
bakkaskóla þriðjudaginn 28.
apríl kl. 20.30. Gestur fundarins
verður séra Jóna Kristín Þor-
valdsdóttir. Mun hún ræða um
fjölskylduna. Allir eru vel-
komnir og kaffiveitingar verða
á staðnum.
Útgefandi: Víkurfréttir hf.
Afgreiösla, ritstjórn og auglvsingar: Vallargötu 15. símar 14717. 15717. Box 125, 230 Keflavík. Póstfax nr. 12777.
-Ritstjórn: Emil Páll Jónsson. heimas. 12677. bílas. 985-25917. Páll Ketilsson, heimas. 13707, bílas. 985- 33717.
-Fréttadeild: Emil Páll Jónsson og Hilmar Bragi Bárðarson. -íþróttir: Margeir Vilhjálmsson. -Auglvsingadeild: Páll
Ketilsson. -Prófarkalestur: Garðar Vilhjálmsson - Upplag: 6100 eintök sem dreift er ókeypis um öll Suöurnes. - Aðili að
Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða og Upplagseftirliti Verslunarráðs. - Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og
annað er óheimilt nema heimildar sé getið. Umbrot, filmuvinna og prentun: GRÁGÁS hf. Keflavík.