Víkurfréttir - 24.04.1992, Síða 15
15
Víkurfrcttir
24. apríl 1992
Enn um
Sögunefnd
Keflavíkur
Rýmingarsala
í 2 daga, 27. og 30. apríl.
Opiðkl. 15-20.
Útibúið verður lokað í sumar.
FÖNDURSTOFAN
Sögunefnd Keflavíkur virðist
bæði ritstjóra Víkurfrétta og
bæjarstjóranum í Keflavík mik-
ill þyrnir í auga.
Eg læt mér í léttu rúmi liggja
hnútukast Molahöfundar og rit-
stjóra Víkurfrétta. Það er með
hann eins og púkann á fjós-
bitnum, að hann þrífst einungis
á fúkyrðum. Mér er hinsvegar
sárara um ummæli bæj-
arstjórans, og þau valda mér
vonbrigðum, því honum hef ég
hingað til aldrei frýjað vits.
Við skipun nefnda tel ég, að
bæjarstjóm og bæjarstjóri hljóti
að hafa að leiðarljósi hæfileika
nefndarmanna, fremur en póli-
tíska skoðun þeirra, og leggi
meira upp úr því, að nefnd-
armenn hafi til að bera skilning
á þeim málefnum, sem þeim er
ætlað að fjalla um, en að þeir
hampi ákveðnu flokksskírteini.
Vonandi leiðréttir bæjarstjóri
mig, fari ég með rangt mál.
Ekki ætti að skemma, að
nefnd takist að skila verkefni
sínu þannig, að sem minnst út-
gjöld hljótist af fyrir bæjarsjóð
og bæjarbúa.
Þessu hlutverki tel ég Sögu-
nefnd Keflavikur hafa skilað
með sóma, í góðri samvinnu við
þann ágæta ritstjóra, sem hún
var svo lánsöm að fá til ritunar
sögunnar. Nefndin hefur haldið
tiltölulega fáa launaða fundi, en
hinsvegar hafa nefndarmenn
lagt fram ómælda vinnu milli
funda, sem hvergi er færð til
bókar.
Um þessar mundir er fyrsta
bindi verksins að verða tilbúið
til prentunar. Að und-
angengnu útboði var samið við
lægstbjóðanda, prentsmiðjuna
Eddu h/f í Reykjavík, um
prentun og frágang bókarinnar.
Útboðsgögn voru send þeim
þremur prentsmiðjum í
Reykjavík, sem best eru taldar
Björn Stefánsson
tækjum og þekkingu búnar
til slíkra verka, og báðum Suð-
umesjaprentsmiðjunum. Raun-
ar var ekki búist við, að þær
gætu keppt við hinar prent-
smiðjumar á jafnréttis-
grundvelli, þó þær séu vel sam-
keppnisfærar í öðrum verk-
efnum. Til þess eru þær ein-
faldlega ekki nægilega vel
tækjum búnar og hefðu þurft að
sækja hluta verksins til sam-
keppnisaðilanna.
Hvað „skilningsskort"
nefndarinnar varðar, vil ég
benda bæjarstjóra Keflavíkur á,
að skylt mun að taka lægsta til
Garðvrkjufræðingarnir Auður Oddgeirsdóttir og Kristinn H. Þor-
steinsson, sem bæði munu fjalla um garðyrkjumál á fundunum.
Grindavik og Keflavik:
Fyrirlestrar um garð-
rækt á Suðurnesjum
Boðað hefur verið til tveggja
fyrirlestra í næstu viku um garð-
rækt á Suðurnesjum. Verða flutt
erindi um gróður og garðrækt,
þriðjudaginn 28. apríl kí. 20.30 í
Grunnskóla Grindavíkur og
fimmtudaginn 30. apríl ú sanra
tíma í veitingahúsinu Þotunni,
Vesturbraut 17. Keflavík.
Á fundinum fjallar Auður
Oddgeirsdóttir, garðyrkjufræð-
ingur um könnun sem hún gerði
á Suðumesjum um vaxt-
armöguleika trjáa og runna við
sjávarsíðuna. Einnig fjallar
Kristinn H. Þorsteinsson, garð-
yrkjufræðingur um umhirðu trjáa
og runna, gróðursetningar oifl.
Sýndur verður fjöldi lit-
skyggna, en erindi þessi eru mið-
uð við Suðurnesin og því kær
komin öllurn sem fást við garð-
rækt. Þátttökugjald er kr. 500 sem
greiðist við innganginn.
boði, sé um lokað útboð að
ræða, eins og hér var. Jafnframt
vil ég benda honum á, að með
samningnum við prentsmiðjuna
Eddu sparar nefndin bæjarsjóði
Keflavíkur og/eða vænt-
anlegum kaupendum bók-
arinnar umtalsverðar upphæðir.
Þegar ég var við nám, taldist
það ekki góð latína, stæði mað-
ur á gati á prófi, að afsaka sig
með því að hafa ekki lesið
heima. Bæjarstjóri og aðrir
bæjarstjómarmenn fá sendar
fundargerðir nefnda, svo þeir
geti kynnt sér þær og ígrundað,
hvort rétt sé að málum staðið,
áður en þeir greiða um þær at-
kvæði á bæjarráðs- eða bæj-
arstjómarfundum. Standist þeir
ekki prófið, er hreint ekki um að
kenna skilningsleysi nefnd-
anna!
Vonandi gerir bæjarstjóri sér
ljóst, að það er bæjarstjóm sem
kýs menn í nefndir, og hún get-
ur einnig leyst þá frá störfum,
eins og aðra óhæfa starfsmenn
bæjarins, reynist þeir störfum
sínum ekki vaxnir.
Oski bæjarstjóri að mæta á
fundi Sögunefndar Keflavíkur
til að skerpa skilning nefnd-
armanna, býð ég hann vel-
kominn, og tel ég, að aðrir
nefndarmenn muni einnig gera.
Með greinarstúfi þessum eru
málefni Sögunefndar Kefla-
víkur útrædd að minni hálfu.
I2.apríl 1991
Björn Stefánsson (sign.)
Hafnargötu 68a - Sími 12738
Eina reglulega vikublaðið á Suðurnesjum
Utivistartími
barna
Samkvæmt lögum um útivistartíma barna á
tímabilinu 1. maí tih. september, er börnum
12 ára og yngri ekki leyfilegt aö vera á al-
mannafæri eftir kl. 22 nema í fylgd meö full-
orönum.
Sömuleiöis er börnum yngri en 15 ára óheimil
útivist eftir kl. 23, nema í fylgd meö full-
orönum eöa á heimieið frá viöurkenndri
æskulýösstarfsemi.
Barnaverndarnefnd Keflavíkur
Hjartans þakklœti
til þeirra sem glöddu mig
á afmælisdaginn 10. apríi.
Valdimar Axelsson
VUt þú fá jréttir úr heimahögum?
- Eru búferlaflutningarframundan?
Hvernig væri að gerast áskrifandi að bæjar- og/eða héraðsfréttablaði?
Skagablaðid
Akranes og nágrenni
VikublaO, fimmtudaga. I’óstáskr. kr. 150 á
tbl. S: 93-12261, 93-11397 fax: 93-13297
pteft
HtK i'lfl
Hafnarfjörður og nágrenni
VikublaO, fimmtudaga. Póstáskr. kr. 110 á
tbl. S: 91-651945, 91-651745 fax: 91-650745
Vestmannaeyjar
VikublaO, fimmtudaga. Póstáskr. kr. 3.400 á
ári. S: 98-11210 fax: 98-11293
Víkurfrcttir
Suðurnes
VikublaO, fimmtudaga. Póstáskr. kr. 3.300 á
ári. S: 92-14717,92-15717 fax: 92-12777
HUSTRI
Austurlandskjördæmi
VjkublaO, fímmtudaga. Póstáskr. kr. 380 á
inán. S: 97-11984 fax: 97-12284
Vestfirðir
VikublaO, miö-
vikudaga.
Póstáskrift kr.
1.500 hálfsárs-
lega-
S: 94-4560,
94-4570
fax: 94-4564
Eystro*
horn
A-Skafta-
fellssýsla
Vikubl. fímintd.
Póstáskr. kr. 105
átbl.
S: 97-81505,
fax: 97-81821
(Pósth. Höfn)
ptrKiR
Norðurland vestra
VikublaO, miOvikudaga. Póstáskr. kr. 110 á
tbl. S: 95-35757, 95-36703, fax: 95-36162
1 Borgarnes og Borgarfjörður HálfsmánaOarl. fimmtudaga. Póstáskr. kr. 1.500 bálft ár. S: 93-71312 fax: 93-72012
Iborgfirðingur
[
psrT^i Vestmannaeyjar VikubluO, föstudaga. Póstáskr. GreiOsla á flutningsgj. S: 98-11500 fax: 98-11075
ilcurUaeíití
Húsavík og nágrenni
VikublaO, fímmtudaga. Póstáskr. 120 kr. á ibl.
S: 96-41780 fax: 96-42211
íS ii jfl
Ólafsfjörður
VikublaO, fímmtudaga. Póstáskr. kr. 140 á tbl.
S: 96-62558,96-62370, fax: 964)2630
Dalvík og nágrenni
VikublaO, fimmtudaga. Póstáskr. kr. 500 á
mánuOi. S: 96-61476, fax: 96-61099
Austurland
Austurland
VikublnO, miOvikudaga. Póstáskr. kr. 1.050
ársfjórOI. s: 97-71750, 97-71571 fax: 97-71756
Samtök bæjar- og héraðsfréttablaða