Víkurfréttir - 24.04.1992, Síða 18
18
Yíkurfréttir
24. apríl 1992
*
Ur ýmsum áttum
SJÓMAÐUR
SKARSTILLA
Sjómaður á einu nýjasta
fiskiskipi Vestmanneyinga,
Bylgju VE 75 skarst illa á hendi
er hann var að vinna við haus-
ingavél í vinnslusal skipsins
aðfaranótt miðvikudagsins. Var
siglt með manninn til Kefla-
víkur og kom skipið þangað ú
fimmta tímanum um nóttina, en
sjúkrabíll beið hans á bryggj-
unni.
Var maðurinn fluttur fyrst á
sjúkrahúsið í Keflavík, en það-
an á Borgarspítalann í Reykja-
vík, þar sem hann gekkst undir
læknisaðgerð.
Slökkviliðið
á þönum
Slökkvilið Brunavama Suð-
urnesja hefur fengið þó nokkur
útköll það sem af er vori vegna
sinu og/eða mosabruna. Þá var
slökkviliðið kallar tvisvar út unr
páskahelgina vegna annars
konar elds.
í öðru tilfellinu var eldur í
porti Hitaveitunna, en í hinu
tilfellinu í rusli bak við versl-
unarmiðstöð.
PÁRAÐ Á GRJÓT
Pœr Anna og Helga Katrín voru hugfangnar að verkefni sínu ú
Garðskaga við að teikna ú grjótið, er Ijósmyndarinn stóð þœr að
verki ó skírdag. Ljósm.: epj.
Fögur er ströndin...
Sandvík á Reykjanesi er vinsæll áningarstaður hjá ferðalöngum. Margur nýtur þess að ganga eftir
sendinni ströndinni, eða að sóla sig lítið sem ekkert klæddur innan um sandhólana. Meðfylgjandi mynd
tók Hilmar Bragi yfir ströndina í Sandvík um páskana. Það voru fáir á ferli þegar myndinni var smellt
af. Frá sjónarhorni ljósmyndarans er allt slétt og fellt, en handan við hólana má aldeilis taka til hendinni.
Þar eru bílhræ og annað drasl sem mætti hverfa úr þessari annars útivistarparadís.
REYKJANESVITI
Ljósm.: hbb
EINA REóLULECA
VIKUBLAÐIÐ
Á SUÐURNESJUM
HVERNIG VERÐUR