Víkurfréttir - 24.04.1992, Síða 19
Körfuboltahátíð
í Njarðvík
Það verður sannkölluð körfu-
boltahátíð í Njarðvík nk. laugardag.
Þá eigast við lið bikarmeistara
Njarðvfkur og landsliðsins. Einnig
verður troðslu-, þriggja stiga- og
vítakeppni. Undankeppni í þeim
hefst kl. 14.00 en áætlað er að leik-
urinn hefjist um kl. 15.00.1 hálfleik
verða úrslit í troðslu-, þriggja stiga-
og vítakeppninni. Sigurvegarar í
þeim fá ferð til Bahamaeyja og
þátttökurétt í alþjóðlegu móti. Teit-
ur Örlygsson hefur þegar tryggt sér
sæti þar sem hann hlaut fyrir að
vera kjörinn leikmaður ársins
1992.
Um kvöldið heldur UMFN
lokahóf sitt í félagsheimilinu í
Innri- Njarðvík.
Flestir Bandaríkjamannanna eru
famir af landi brott og mun Ronday
Robinson ekki leika með UMFN.
Hann mun leika með John Rhodes
úr Haukum og Franc Booker í liði
sumardeild í Mexico.
Keila:
ÚRSUT Á
PASKAMOTI
A-llokkur:
1. Friðrík Ólafsson..........555
(151-215-189)
2. Elmar Ingibergsson........513
(143-168-202)
3. Gunnlaugur Hafsteinsson...489
(176-164-158)
B-flokkur:
1. Ólafur Kristjánsson......517
(170-158-189)
2. Ómar Amason..............501
(142-143-216)
3. Jón Gunnarsson............480
(143-158-179)
Staðan á LIÐAMÓTl
Eftirfarandi er staðan á liðamóti
eftir 20 leiki.
Sveitin..................... 38
Lávarðamir.................. 28
Sérsveitin.................. 28
Timburmen.................... 26
Ólamir....................... 20
Furstamir................... 16
Dvergamir.................... 2
Keilustrákar................. 2
Skíðaáhugamenn á Suðurnesjum:
Fjölskyldudogur í Bláfjöllum
Skíðafélag Suðumesja stendur
fyrir fjölskyldudegi á skíðum n.k.
laugardag, 25. apríl. Suðumesja-
menn eru hvattir til að fjölmenna
í Bláfjöllin, nánar tiltekið á
Fram-svæðið. Haldið verður
Skíðamót Suðurnesja. Keppt
verður í þremur flokkum karla og
kvenna. Mótið hefst kl. 13:00, en
skráning í það hbfst kl. 10:00.
Þátttökugjaldi hefur verið stillt
mjög f hóf, svo sem flestir taki
þátt sér til gamans. Fyrir böml5
ára og yngri er gjaldið kr. 300, en
kr. 750 fyrir fullorðna. Vegleg
verðlaun verða veitt í mótslok.
Norðurlandamótið í júdó
Sigurður annar
í opnum flokki
Sigurður Bergmann, júdókappi
úr UMFG, varð annar í opnum
flokki á Norðurlandamótinu í júdó.
Mótið fór fram í Laugardalshöllinni
um páskana. Sigurður glímdi til úr-
slita gegn Bjama Friðrikssyni.
Bjami, sem hefur verið höf-
uðandstæðingur Sigurðar hér á
landi í gegnum árin, hafði betur
eftir jafna og spennandi glímu.
Sigurður hlaut því silfrið, og er það
frábær árangur.
íslandsmet hjá Arnari
Amar Freyr Ólafsson, sund-
maður úr SFS, setti nýtt íslandsmet
í 400 metra fjórsundi, 4.37,27 mín-
útur. Metið setti Amar á alþjóðlegu
sundmóti sem fram fór í Edinborg
um páskana. Amar hafnaði í fjórða
sæti í fjórsundinu, en auk þess náði
hann 5. sæti í 400 metra skriðsundi.
Eðvarð Þór Eðvarðsson varð annar
í 50 metra baksundi, og fjórði í 200
metra baksundi. Magnús Már Ó-
lafsson, lenti í 6. sæti í 100 metra
skriðsundi. Mikið af sterkasta
sundfólki Evrópu tók þátt í móti
þessu.
_________19
\ikurfréttir
24. apríl 1992
BESTUR
- 4 Suöurnesja-
menn í Nike-liöi
karla og 2 í
kvennaliöi Nike
Teitur Örlygsson, körfuknatt-
leiksmaðurinn snjalli úr Njarð-
víkum, var valinn besti leikmaður
Japisdeildarinnar á lokahófi KKI
sem haldið var í síðustu viku. Ekki
nóg með það, heldur var Friðrik
Rúnarsson, þjálfari UMFN, kosinn
besti þjálfarinn annað árið í röð.
Sannarlega frábært fyrir Friðrik,
því þetta var hans annað tímabil
sem þjálfari meistaraflokks.
Bandaríkjamaðurinn í liði UMFN,
Rondey Robinson, var kjörinn
besti erlendi leikmaðurinn, annað
árið í röð. Sannarlega frábært fyrir
UMFN. Það eru leikmenn liðanna
í Japisdeild sem kjósa, og fer
kosningin alltaf fram áður en úr-
slitakeppnin hefst.
A lokahófinu var einnig valið
Nike-lið karla og kvenna. Fjórir
Suðurnesjamenn voru í karla-
liðinu, Jón Kr. Gíslason, ÍBK,
Teitur Örlygsson, UMFN, Guð-
mundur Bragason, UMFG og
Valur Ingimundarson, UMFT,
sem er eins og allir vita fyrrverandi
leikmaður UMFN. Auk þeirra
fjórmenninganna var svo Tinda-
stólsrisinn Pétur Guðmundsson í
liðinu. í Nike-liði kvenna voru
tvær keflvískar stúlkur, þær Björg
• Teitur Örlygsson var kjörinn besti leikmaður Japis-deildar- Hafsteinsdóttir og Anna María
innar og er vel að þeim titli kominn. Sveinsdóttir.
GETRAUNALEIKUR
SAMVINNUFERÐA OG VÍKURFRÉTTA
Ingvar
20
Æsispennandi lokabarátta fer
nú í hönd í getraunaleik Víkur-
frétta og Samvinnuferða þegar
tvær umferðir eru eftir. Þorsteinn
Arnason, „ásinn", er efstur með
26 rétta að loknum þremur um-
ferðum (10-8-8) en fast á hæla
hans kemur Kjartan Másson með
25 rétta (9-8-8), Hallgrímur Guð-
mundsson er ekki iangt undan
með 23 rétta (7-9-7) en lestina
rekur Ingvar Guðmundsson með
20 rétta (7-6-7). Sá tippari sem
verður með flesta leiki rétta að
lokinni síðustu umferðinni hlýtur
eins og áður hefur komið fram,
titilinn „Getraunaspekingur Vík-
urfrétta" og hlýtur að launum
Wembleyferð og miða á úrslita-
leik ensku bikarkeppninnar milli
Liverpool og Sunderland.
Eins og í undanfömum um-
ferðum eru fimm leikir úr sænsku
deildarkeppninni en hitt leikir úr
lokabaráttu 1. deildarinnar ensku.
A laugardag verður bein útsend-
ing í boði Samvinnuferða-Land-
sýnar en það er leikur Chelsea og
Arsenal á Stamford Bridge I
Lundúnum.
I H K Þ
AIK-Malmö FF 1 X 1X2 1
IFK Göteborg-Djurgárden X 1 1 1
Norrköping-GAIS 12 1 1 1
T relleborg-Örebro 1 1X2 2 2
Öster-Frölund X 1 1 1
Chelsea-Arsenal 2 12 2 1X2
Crvstal Palace-Sheff. Wed. 1 2 12 X2
Liverpool-Man.Utd. X X2 1X2 1X2
Luton-Aston Villa 1X2 1 12 2
Norwich-Wimbledon 1 X 1 1
Notth. Forest-Q.P.R. 1X2 1X2 1 1
Southampton-Oldham 12 1 1 1
Tottenham-Everton 1 1 1 IX