Morgunblaðið - 22.12.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015
Verið velkomin í
glæsilega verslun okkar
við Laugaveg 99
(gengið inn við Snorrabraut)
aff.is
Concept
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Í nótt voru vetrarsólstöður á Íslandi og nú fer
vorið að nálgast! Síðla nætur var sólargangur á
norðurhveli jarðar skemmstur, en það var klukk-
an 04:49 nú í nótt sem leið að jörðin fór að sveigja
í átt að birtunni. Samkvæmt Almanaki Háskóla
Íslands eru vetrarsólstöður 22. desember í ár, en
þessi dagsetning getur hnikast lítillega til frá ári
til árs. „Þegar klukkuna vantaði ellefu mínútur í
fimm var halli á norðurhveli jarðar frá sól í há-
marki og sólin þá lengst í suðri á himinhvolfinu.
Þegar klukkuna vantaði tíu mínútur í fimm fór
dag aftur að lengja,“ sagði Sævar Helgi Braga-
son, jarðfræðingur og stjörnuáhugamaður.
Í dag, þriðjudag, nýtur sólar tveimur sekúnd-
um lengur en í gær. Eitt hænufet á dag er stund-
um sagt en ekki líður á löngu uns sólarstundum
hvers dags fer að fjölga hratt. Strax í kringum
þrettánda sést merkjanlegur munur.
Nokkru munar milli landshluta hve birtu nýt-
ur lengi á vetrarsólstöðum. Í Reykjavík er dag-
bjart í rúmlega fjórar klukkustundir en klukku-
stund skemur á Akureyri, en á móti kemur að á
sumrin er birtutími norðanlands ögn lengri.
sbs@mbl.is
Jörðin hallar sér nú að nýju í sólarátt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fallegt við Elliðavatn á vetrarsólstöðum og tveimur sekúndum lengri birtutími er í dag en var í gær
Þorsteinn Ásgrímsson Melén
thorsteinn@mbl.is
Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis,
var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í
fimm ára fangelsi fyrir umboðssvik í Stím-málinu
svokallaða. Jóhannes Baldursson, sem var fram-
kvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis, var
dæmdur í 2 ára fangelsi, einnig fyrir umboðssvik.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi
bankastjóri Saga Capital, var dæmdur í 18 mán-
aða fangelsi fyrir hlutdeild í umboðssvikum.
Lárus var ákærður fyrir umboðssvik með því
að hafa farið út fyrir heimildir sínar til lánveit-
inga hjá Glitni banka þegar hann beitti sér fyrir
því að félagið FS37, sem síðar varð Stím, fengi
um 20 milljarða króna lán frá bankanum með veði
í öllu hlutafé félagsins og bréfum í FL Group sem
lánsféð var notað til að kaupa. Lánsféð var einnig
notað til að kaupa bréf í Glitni.
Jóhannes var ákærður fyrir umboðssvik, fyrir
að hafa beitt sér fyrir því að fjárfestingasjóðurinn
GLB FX, í eigu Glitnis banka, keypti framvirkt
skuldabréf í Stím af Saga Capital. Þorvaldur var
ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikum með því
að hafa hvatt til þeirra viðskipta og liðsinnt Jó-
hannesi í þeim. Markmiðið með viðskiptunum
hefði verið að tryggja að Saga Capital fengi kröfu
sína að fullu bætta.
Bíða niðurstöðu Hæstaréttar
Þorvaldur hefur þegar lýst því yfir að hann
muni áfrýja málinu til Hæstaréttar. Þá hefur
stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, þar
sem Þorvaldur er framkvæmdastjóri, lýst því yfir
að hann muni njóta vafans og sinna starfinu þar
til málið hefur farið fyrir Hæstarétt.
Í dómnum segir að Lárus hafi 16. nóvember
2007 sem forstjóri og formaður áhættunefndar
Glitnis banka, misnotað stöðu sína með því að
fara út fyrir heimildir sínar til lánveitinga og
stefna fjármunum bankans í verulega hættu
þegar hann lét bankann veita FS 37 ehf. rúm-
lega 19,5 milljarða króna lán án fullnægjandi
trygginga og í andstöðu við reglur stjórnar bank-
ans og lánareglur.
42,6 milljónir króna í kostnað
Í dómsorði kemur fram að Lárus sæti fangelsi
í 5 ár en til frádráttar refsingu kemur gæslu-
varðhald hans frá 30. nóvember 2011 til 7. desem-
ber sama ár.
Þremenningunum er gert að greiða lögmönn-
um sínum 42,6 milljónir í málsvarnarlaun og út-
lagðan kostnað þeirra í tengslum við Stím-málið.
Fjártjónshætta var veruleg
Lárus Welding fékk fimm ára dóm í Stím-málinu Tveir aðrir Glitnismenn
fengu 18 mánaða og tveggja ára dóm Tryggingar taldar ófullnægjandi
Lárus
Welding
Jóhannes
Baldursson
Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Mörður Árnason, fulltrúi minnihlut-
ans í stjórn RÚV og varaþingmaður
Samfylkingarinnar, neitar að víkja
úr stjórn RÚV þrátt fyrir að fyrir
liggi álit fjölmiðlanefndar um van-
hæfi hans til setu stjórninni vegna
setu hans á Alþingi í júní. Er álit
nefndarinnar byggt á 9. grein laga
um Ríkisútvarpið þar sem segir að
kjörnir fulltrúar til Alþingis og
sveitarstjórna séu ekki kjörgengir í
stjórn Ríkisútvarpsins.
Stjórn RÚV fundaði í gær og þar
var athugasemd fjölmiðlanefndar
m.a. tekin fyrir. Að sögn Guðlaugs
G. Sverrissonar, stjórnarformanns
RÚV, hafnaði Mörður því að víkja af
fundi. „Stjórn samþykkti svo að
óska eftir því að Alþingi myndi
skera úr um hæfið og þá að forseti
Alþingis eða skrifstofustjóri mundi
gera það,“ segir Guðlaugur. Einnig
var rætt um stöðu Kristins Dags
Gissurarsonar, varabæjarfulltrúa
Framsóknarflokks í Kópavogi. „Í
framhaldinu var ákveðið að láta Al-
þingi um að kanna hæfi allra stjórn-
armanna,“ segir Guðlaugur. Mörður
Árnason segir að ásamt bréfi fjöl-
miðlanefndar hafi stjórninni borist
bréf frá menntamálaráðuneytinu. „Í
því var beðið um að stjórnin myndi
úrskurða um vanhæfi mitt,“ segir
Mörður. Hann bendir á að Friðrik
Rafnsson hafi verið á framboðslista
hjá Bjartri framtíð og sé þriðji vara-
maður Bjartar Ólafsdóttur, þing-
manns flokksins.
Mörður telur málið fræðilega
áhugavert. „Ef að menn vilja fara
eftir því hverjir hafa fengið kjör-
bréf, þá erum við Kristinn Dagur í
vondum málum,“ segir Mörður.
Hann bætir við að hann telji að ná-
kvæmari túlkunar sé þörf á því hver
teljist kjörinn fulltrúi og að tilgreina
þurfi sérstaklega ef varamaður
kjörins fulltrúa má ekki sitja í
stjórninni.
Mörður neitar að víkja
Morgunblaðið/Eggert
RÚV Stjórn RÚV lætur Alþingi
ákvarða um hæfi stjórnarmanna.
Fjölmiðlanefnd
ályktaði um vanhæfi
Marðar Árnasonar
Bandalag há-
skólamanna
(BHM) hefur
kært íslenska
ríkið til Mann-
réttindadómstóls
Evrópu fyrir
lagasetningu á
verkfall félags-
ins með lögum
31/2015 frá 13.
júní. Að sögn
Þórunnar Sveinbjarnardóttur,
formanns BHM, mun það taka
nokkra mánuði þar til kemur í ljós
hvort dómstóllinn tekur málið
fyrir.
Brjóti í bága við
samningsfrelsi
Þórunn segir félagið líta svo á
að lagasetningin í sumar brjóti í
bága við ákvæði um samnings-
frelsi stéttarfélaga í Mannrétt-
indasáttmála Evrópu. „Við trúum
því að það hljóti að vera hægt að
sækja réttlæti í þessum málum, ef
ekki til íslenskra dómstóla þá til
mannréttindadómstólsins,“ sagði
Þórunn.
Í framhaldi lagasetningarinnar
var gerðardómur skipaður til að
ákvarða laun 18 stéttarfélaga í
Bandalagi háskólamanna og fé-
lagsmanna í Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga. BHM fór með
lagasetninguna fyrir héraðsdóm
og Hæstarétt en tapaði á báðum
stöðum. bso@mbl.is
Kæra
mannrétt-
indabrot
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
BHM kærir
íslenska ríkið
Karlmaður á sextugsaldri lést í um-
ferðarslysi á Vesturlandsvegi í gær-
morgun, en hann var á reiðhjóli sem
bifreið ók á. Tilkynning um slysið
barst lögreglu kl. 6.34 og lokað var
fyrir umferð um Ártúnsbrekku í á
aðra klukkustund vegna þessa. Ekki
er hægt að upplýsa um nafn manns-
ins að svo stöddu.
Lögreglan leitar nú vitna í málinu
og hefur óskað eftir því að þeir sem
kunna að hafa orðið vitni að slysinu
hafi samband í síma 444 1000. Einn-
ig er hægt að hafa samband við lög-
regluna á Facebook-síðu hennar eða
með tölvupósti á netfangið sigurdur-
.petursson@lrh.is
Hjólreiða-
maður lést