Morgunblaðið - 22.12.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.12.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015 Silkimjúkar hendur Sjá útsölustaði Crabtree & Evelyn á www.heggis.is Minjastofnun hefur enn ekki tekið afstöðu til þess hvort fyrirhuguð sala á fágætu íslensku frímerkja- safni í Svíþjóð brjóti gegn lögum um menningarminjar. Agnes Stef- ánsdóttir, deildarstjóri hjá Minja- stofnun, segir að málið sé einnig til skoðunar í Þjóðskjalasafni Íslands, en það varðveitir íslensk frímerki frá upphafi. Samkvæmt lögunum má ekki flytja úr landi menningarminjar sem teljast til þjóðarverðmæta nema með samþykki ráðherra. Minja- stofnun annast mat á slíkum hlutum og stjórnsýslulega þáttinn. Stofn- unin getur stöðvað flutning menn- ingarminja úr landi um stundarsakir meðan leitað er umsagna sérfróðra manna. Það hefur gerst einu sinni. Um var að ræða forna altarisbrík úr bændakirkju í Eyjafirði. Frímerkja- safnið sem um ræðir hefur hins veg- ar þegar verið flutt úr landi eins og fram hefur komið hér í blaðinu. Til stendur að bjóða það upp hjá Post- iljonen í Malmö í Svíþjóð í mars á næsta ári. gudmundur@mbl.is Enn að skoða sölu frí- merkjasafnsins í Svíþjóð Frímerki Safnið sem um ræðir er í eigu erfingja Indriða Pálssonar.  Selja á safnið á uppboði í mars Þjóðarverðmæti » Ekki má flytja úr landi menningarminjar sem teljast til þjóðarverðmæta. » Algengt er að Minjastofnun veiti leyfi til útflutnings menn- ingarminja. » Sala á fornri altarisbrík úr landi var stöðvuð. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mikill áhugi er á starfsemi skóla- hljómsveita Reykjavíkur. Í hljóm- sveitunum fjórum eru samtals um 440 börn. Fyrr í þessum mánuði voru 256 börn á biðlista eftir því að komast í skólahljómsveit í borginni. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur óskuðu eftir því við fræðslustjóra að gerðar yrðu ráðstafanir svo fleiri börn kæmust að í skólahljómsveit- unum. Þeir vildu að gripið yrði til sérstakra ráðstafana til að stytta biðlista eftir sæti í skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts. Vilja hleypa fleirum að Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs, sagði mikinn áhuga á öflugri starfsemi skóla- hljómsveitanna vera jákvæðan. „Við höfum mikinn vilja til að skoða allar leiðir til að hleypa fleiri börnum að, en það kostar fjármuni,“ sagði Skúli. Hann sagði áherslu lagða á sparnað í rekstri borgar- innar um þessar mundir. Þrátt fyrir það væri vilji til að leita leiða til að grynnka á biðlistanum. Á þessu ári er varið tæplega 200 milljónum til skólahljómsveitanna. Fjórar skólahljómsveitir eru starfandi í borginni og um 110 börn í hverri eða alls um 440 börn. Þau leika aðallega á málm- eða tréblást- urshljóðfæri, auk slagverks. „Það myndi muna miklu að geta fjölgað um tíu í hverri hljómsveit. Þá væru þær komnar í hentugustu stærð frá faglegu sjónarmiði. Með 120 börn í hverri hljómsveit gætu þær haft næga mönnun á hvert hljóðfæri til að geta fengist við næst- um hvað sem er,“ sagði Skúli. Þverflautan er vinsælust Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins óskuðu eftir sundurliðuðum upplýs- ingum um fjölda nemenda á biðlist- um eftir skólahljómsveit í Reykjavík þann 25. nóvember sl. Svar frá Helga Grímssyni, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, var lagt fram á fundi skóla- og frístundaráðs 16. desember sl. Þar kom fram að í des- ember 2015 voru 56 börn á biðlista eftir því að komast í Skólahljómsveit Austurbæjar, 126 voru á biðlista Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts, 74 á biðlista Skóla- hljómsveitar Vesturbæjar og Mið- bæjar en engin börn voru að þessu sinni á biðlista hjá Skólahljómsveit Grafarvogs. Þannig voru alls 256 börn á biðlistum eftir plássi í skóla- hljómsveitum í Reykjavík. Miðað var við umsóknir sem komu inn vegna núverandi skólaárs. Ekki var um eldri umsóknir að ræða. Helgi bætti því við í svari til Morgunblaðsins að skólahljómsveit- irnar væru með tiltekinn fjölda sem spilar á hvert hljóðfæri. Biðlisti er lengri á sum hljóðfæri en önnur og þar er þverflautan vinsælust. Skólahljóm- sveitirnar eru mjög vinsælar  256 börn eru á biðlista eftir plássi í skólahljómsveit í Reykjavík Morgunblaðið/Ómar Tónar Margir vilja komast í skóla- hljómsveit Árbæjar og Breiðholts. Skólahljómsveitir » Skólahljómsveit Austur- bæjar er elsta skólahljómsveit Reykjavíkur og hefur starfað í tæp 60 ár, fyrstu 30 árin í nafni Laugarnesskóla. » Skólahljómsveit Vestur- bæjar og Miðborgar er um fimm árum yngri en Austur- bæjarhljómsveitin. » Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts var stofnuð vet- urinn 1968-69 og Grafarvogs- sveitin veturinn 1993. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hafa ber Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna til hliðsjónar þegar hælis- umsóknir fjölskyldna með veik börn eru teknar til meðferðar á Ís- landi. Þetta er mat Bjarna Más Magnússonar, lektors í alþjóða- lögum við laga- deild Háskólans í Reykjavík. Tilefnið er að Alþingi sam- þykkti að veita tveimur albönsk- um fjölskyldum ríkisborgararétt. Hafði Útlendingastofnun áður synjað umsókn þeirra um dvalarleyfi. Í báð- um fjölskyldum eru langveik börn. Eins og sýnt er á töflu hér til hliðar hafa borist 338 umsóknir um hæli á Íslandi í ár. Tæpur þriðjungur, eða 107 umsóknir, er frá fólki frá Albaníu. Að baki þessum 338 umsóknum eru 73 börn, þar af 26 börn frá Albaníu. Meta þarf heilsufar barnanna Í 12. gr. útlendingalaga segir að veita megi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, til dæmis af heilbrigðisástæðum. Bjarni Már segir að meta þurfi heilsufar barna hælisleitenda, sem sækja um hæli á grundvelli mannúðarsjónarmiða, til að hægt sé að skera úr um hvort 1. mgr. 24. gr. Barnasáttmálans geti átt við í þeirra tilvikum. Þar segir m.a.: „Aðildarríki viðurkenna rétt barns til að njóta besta heilsufars sem hægt er að tryggja, og aðstöðu til læknismeð- ferðar og endurhæfingar. Aðildarríki skulu kappkosta að tryggja að ekkert barn fari á mis við rétt sinn til að njóta slíkrar heilbrigðisþjónustu.“ Bjarni Már bendir á það lögskýr- ingarsjónarmið að lagaákvæði ber al- mennt að túlka til samræmis við önn- ur lagaákvæði; skilja verði efnisreglu í tilteknu lagaákvæði í samræmi við aðrar nátengdar efnisreglur. Þegar hælisumsóknir séu metnar út frá út- lendingalögum beri að horfa til Barnasáttmálans sem var innleiddur í íslenskan landsrétt með lögum nr. 19 frá 2013 þegar börn eiga í hlut. „Þessi þjóðréttarsamningur, sem við eigum aðild að, verður miklu sterkari við það að hann er gerður hluti af landsrétti. Hann ætti því að hafa meira vægi þegar ákvarðanir eru teknar í stjórnsýslunni. Ég er ekki viss um að allir í stjórnsýslunni séu nógu meðvitaðir um efni hans. Hann- er helsta réttarheimildin varðandi réttindi barna, ásamt barnalögun- um,“ segir Bjarni Már, sem telur að- spurður að við mat á hælisumsóknum á grundvelli mannúðarsjónarmiða geti dvalartími fólks á Íslandi „al- mennt séð skipt máli“. Hafi hælisleit- endur skotið hér rótum geti það styrkt umsóknir þeirra. Ofangreindar fjölskyldur frá Alb- aníu, sem hafa fengið ríkisborgara- rétt, höfðu verið hér í nokkurn tíma þegar Útlendingastofnun hafnaði um- sókn þeirra um dvalarleyfi og sendi þær í kjölfarið úr landi. Morgunblaðið/Ómar Alþingishúsið Samþykkt var á Alþingi um síðustu helgi að veita tveimur albönskum fjölskyldum ríkisborgararétt. Dvalartíminn getur styrkt réttarstöðuna  Lektor í lögum ræðir stöðu veikra barna hælisleitenda Upprunaland hælisleitenda á Íslandi á árinu 2015 Til og með 21. desember Heimild: Rauði krossinn. Albanía 107 Sýrland 29 Írak 27 Makedónía 25 Kósóvó 14 Afganistan 13 Íran 13 Hvíta-Rússland 11 Gana 11 Pakistan 9 Úkraína 9 Marokkó 8 Palestína 6 Serbía 6 Sómalía 6 Nígería 5 Úsbekistan 5 Bandaríkin 4 Kasakstan 3 Alsír 2 Armenía 2 Erítrea 2 Líbía 2 Rússland 2 Án ríkisfangs 2 Sviss 2 Kamerún 1 Kanada 1 Egyptaland 1 Georgía 1 Ísrael 1 Malí 1 Níkaragva 1 Rúmenía 1 Senegal 1 Taíland 1 Túnis 1 Tyrkland 1 Vestur-Sahara 1 Samtals 338 Bjarni Már Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.