Morgunblaðið - 22.12.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015
Styrmir Gunnarsson segir aðsamskipti aðildarríkja ESB um
lausn á vanda flóttamanna og hæl-
isleitenda séu í uppnámi. Í sept-
ember sl. samþykktu leiðtogar ESB
að 160 þúsund hæl-
isleitendum, sem
komið hafa til Ítalíu
og Grikklands, yrði
dreift á önnur aðild-
arríki á næstu
tveimur árum:
Frank-WalterSteinmeier, utanríkisráðherra
Þýzkalands, hótar lagalegum að-
gerðum gegn aðildarríkjum í
austri, þ.e. Tékklandi, Slóvakíu og
Ungverjalandi, ef þau neiti að taka
þátt í þessum aðgerðum. Á svipað-
an veg talar kanslari Austurríkis.
Utanríkisráðherra Ungverja-lands svarar honum fullum
hálsi, að sögn RÚV. Þá hafa Ung-
verjar og Slóvakar ákveðið að
draga ESB fyrir rétt.
Dönsk stjórnvöld hafa kallað yfirsig mikla gagnrýni alþjóðlega
vegna áforma um að taka peninga
og skartgripi af flóttamönnum, sem
þangað koma, til þess að standa
undir kostnaði við móttöku þeirra.
Aðgerðum Dana er líkt við vinnu-
brögð nazista á tímum þriðja ríkis-
ins. Danskur þingmaður á Evrópu-
þinginu hefur af þessum sökum
sagt sig úr Venstre.
Af 760 þúsund flóttamönnum,sem hafa komið til Grikklands
á þessu ári hafa 429 þúsund verið
skráðir og fingraför verið tekin af
121 þúsundi.
Nokkur aðildarríki ESB undirforystu Pólverja eru mjög
andvíg hugmyndum framkvæmda-
stjórnar ESB um landamæravörzlu
án samþykkis viðkomandi aðildar-
ríkis.“
Styrmir
Gunnarsson
Klögumálin
ganga á víxl
STAKSTEINAR
TISSOT CHEMIN DES
TOURELLES AUTOMATIC.
TISSOTWATCHES .COM
1ST PRIZE IN THE CLASSIC CATEGORY
1ST PRIZE IN THE CHRONOGRAPH CATEGORY
GÞ SKARTGRIP IR OG ÚR · MICHELSEN ÚRSMIÐIR · JB ÚR & SKART · MEBA · GEORG HANNAH · LEONARD · GULLÚRIÐ · KLUKKAN
Veður víða um heim 21.12., kl. 18.00
Reykjavík 1 slydda
Bolungarvík 1 alskýjað
Akureyri -1 snjókoma
Nuuk -12 skafrenningur
Þórshöfn 7 súld
Ósló 5 heiðskírt
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Stokkhólmur 8 skýjað
Helsinki 7 skýjað
Lúxemborg 9 skýjað
Brussel 11 skúrir
Dublin 8 léttskýjað
Glasgow 7 alskýjað
London 12 skúrir
París 12 skýjað
Amsterdam 10 skýjað
Hamborg 10 skýjað
Berlín 10 skýjað
Vín 4 alskýjað
Moskva 7 skýjað
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 12 heiðskírt
Aþena 11 heiðskírt
Winnipeg -8 alskýjað
Montreal 2 skúrir
New York 8 heiðskírt
Chicago 8 alskýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:23 15:31
ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:53
SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:34
DJÚPIVOGUR 11:02 14:51
Lenda þurfti farþegavél frá Turk-
ish Airlines á Keflavíkurflugvelli
um helgina vegna flugfreyju sem
hafði slasað sig um borð. Flug-
freyjan hafði fest tvo fingur í rusla-
opi inni á salerni vélarinnar og sat
þar föst í um klukkustund. Í vélinni
var bráðaliði sem gat aðstoðað við
að losa fingurna, segir í frétt frá
Lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
Einnig hafði kvenfarþegi veikst í
fluginu og voru þær báðar fluttar á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til
aðhlynningar. Við skoðun á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja kom í
ljós að fingur flugfreyjunnar voru
óbrotnir og farþeginn fékk einnig
leyfi hjá lækni til að halda áfram
för sinni til áfangastaðar.
Flugfreyja festi
fingur í ruslaopi
Útlendingastofnun hefur farið þess
á leit við talsmann fjölskyldnanna
tveggja frá Albaníu að fá að tjá sig
efnislega um málið á opinberum
vettangi og birta gögn sem máli
skipta. „Er það gert í þeim tilgangi
að varpa ljósi á atvik og aðstæður
málsins og meðferð þess fyrir ís-
lenskum stjórnvöldum,“ segir í til-
kynningu frá stofnuninni.
Í tilkynningunni segir ennfremur
að Útlendingastofnun árétti að farið
hafi verið í einu og öllu að lögum við
meðferð mála albönsku fjölskyldn-
anna tveggja. Umboðsmaður Al-
þingis hefur óskað eftir upplýsing-
um frá stofnuninni um meðferð
málanna.
Jafnframt segir stofnunin að hún
hafi tjáð sig um málin eftir því sem
hún hafi leyfi til. „Þá hefur stofnunin
hingað til tjáð sig um málin að því
marki sem henni er það heimilt
vegna friðhelgi einkalífs skjólstæð-
inga hennar og trúnaðarskyldu við
þá,“ segir í tilkynningunni. Útlend-
ingastofnun hyggst svara fyrir-
spurnum Umboðsmanns Alþingis
innan tilskilinna tímamarka en
þangað til þeim verði svarað muni
hún ekki tjá sig frekar um málið við
fjölmiðla.
Vilja veita
efnislegar
upplýsingar