Morgunblaðið - 22.12.2015, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015
Umboðsaðili: Yd heildverslun, s. 587 9393, yd@yd.is, YdBolighus
Íbúar á svæðinu segja að ástæðan fyrir skriðunni sé
að um árabil hafi byggingafyrirtæki losað sig þar við
mold og annan úrgang í trássi við lög. „Margir hafa
kvartað yfir vandanum en ekkert hefur verið gert,“
segir kaupsýslumaður sem rekur drykkjarvöruverk-
smiðju í Guangming. Dagblað í Shenzhen tekur undir
og hefur eftir verkfræðingi að byggst hafi upp þrýst-
ingur undir haugnum sem loks hafi látið undan. Jarð-
vegur á svæðinu sé auk þess blautur og óstöðugur.
Björgunarmenn leita að fólki í borginni Shenzhen í Gu-
angdong-héraði í sunnanverðu Kína eftir að geysimikil
aurskriða féll á iðnaðarhverfið Guangming. Um 30
mannvirki, þ.á m. íbúðar- og skrifstofuhús og verk-
smiðjur munu hafa grafist í aurnum eða skemmst og
óttast er að yfir 90 manns hafi týnt lífi auk þess sem all-
margir slösuðust. Mikil sprenging varð þegar öflug
gasleiðsla sprakk. Sjónarvottar segjast hafa séð skrið-
una nálgast eins og háan múr af rauðri mold og möl.
AFP
Um 90 saknað í Kína eftir aurskriðu
Talið er að Rússar hafi gert loftárás
sem varð yfir 40 óbreyttum borgur-
um að bana á útimarkaði í borginni
Idlib í norðanverðu Sýrlandi á
sunnudag. Uppreisnarhópar, and-
vígir Bashar al-Assad forseta, ráða
borginni. Hún er höfuðstaður héraðs
með sama nafni og varð mikilvæg
miðstöð uppreisnarmanna þegar
þeir náðu henni snemma á árinu.
Málið gæti orðið vatn á myllu upp-
reisnarmanna og þá ekki síst liðs-
manna Ríkis íslams, IS. Um 30 upp-
reisnarhópar taka þátt í vopnaða
andófinu gegn Assad, þar af eru fá-
einir skipaðir mönnum sem vestræn
ríki álíta að séu hófsamir múslímar.
En ofstækismenn IS sækja stuðning
langt út fyrir raðir hryðjuverkasam-
takanna, að sögn hugveitunnar CRG
í Bretlandi.
Al-Nusra hagnast þegar menn
einbeita sér gegn IS
Fram kemur í nýrri skýrslu CRG
um Sýrland að meirihluti uppreisn-
arhópanna aðhyllist mjög svipaða
hugmyndafræði og túlkun á íslam og
IS. Hvergi í heiminum sé nú jafn
mikil fjöldi ofstækisfullra íslamista,
sem oft eru nefndir salafist-jihadist-
ar. Ef stórveldunum takist að gera
út af við IS séu um 65.000 félagar
þessara hópa reiðubúnir að lyfta
merkinu. Varað er við því að öfga-
hópar á borð við al-Nusra, sem teng-
ist al-Qaeda og Ahrar al-Sham hagn-
ist á baráttunni gegn IS. Á meðan
séu þeir sjálfir og fleiri öfgahópar
látnir í friði.
„Vesturveldin eiga á hættu að
gera grundvallarmistök með því að
einbeita sé að IS,“ segir í skýrslunni.
„Þótt samtökin bíði hernaðarlegan
ósigur merkir það ekki að búið sé að
sigra hnattrænan jihadisma. Við get-
um ekki varpað sprengjum á hug-
myndafræði en þetta stríð okkar er
hugmyndafræðilegs eðlis.“
Berjast verði einnig gegn jihadist-
um íslams með röksemdum og guð-
fræðilegum aðferðum til að kveða of-
stækið í kútinn. kjon@mbl.is
Tugir óbreyttra
borgara féllu í
loftárás á Idlib
Fjöldi uppreisnarhópa jihadista í
Sýrlandi með svipaða stefnu og IS
AFP
Eftirlit Rússnesk Súkhoj-þota und-
irbúin fyrir árásarferð í Sýrlandi.
Marskönnuður
NASA, Curiosity,
hefur fundið
miklar kísil-
myndanir á plán-
etunni og er það
sagt benda til að
mikið vatn hafi
verið þar. Slíkur
kísill tengist oft
aðstæðum sem
séu ákjósanlegar fyrir örverulíf.
Einnig hafi fundist jarðefnið tridy-
mite, sem er sjaldgæft á jörðunni
og hefur ekki fundist fyrr á Mars.
Curiosity verður nú látinn rann-
saka sama svæði aftur.
kjon@mbl.is
NASA segir líklegt
að örverulíf hafi
þróast á Mars
Curiosity á Mars.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Herskáir íslamistar, sennilega fé-
lagar í sómölsku al-Shabab-hryðju-
verkasamtökunum, réðust á sunnu-
dag á rútu í Kenía, skammt frá
landamærunum að Sómalíu og
myrtu einn mann, ef til vill tvo. Rút-
an var á leið frá höfuðborginni Nai-
robi til Mandera í norðausturhluta
landsins með um 50 farþega.
BBC hefur eftir sjónarvottum og
bílstjóra rútunnar að múslímar með-
al farþeganna hafi snúist til varnar
kristnum samferðamönnum sínum.
Þeir hafi sagt árásarmönnum að þeir
gætu annaðhvort drepið alla eða lát-
ið alla farþegana í friði.
„Fólkið á staðnum sýndi ættjarð-
arást og samstöðu,“ sagði Ali Roba,
ríkisstjóri í Mandera, en múslím-
arnir neituðu að skiljast við kristna
samferðamenn sína. Hryðjuverka-
mennirnir hefðu ákveðið að hverfa á
brott þegar þeir stóðu frammi fyrir
eindrægni farþeganna, sagði Roba.
Al-Shabab hefur ekki gengist við
árásinni en samtökin gera oft árásir
á svæðinu. Í lok nóvember í fyrra
réðust þau á rútu í Mandera-sýslu og
myrtu 36 farþega sem voru á leið til
Nairobi til að verja þar jólunum.
Hryðjuverkamennirnir höfðu þá áð-
ur skilið fólkið frá öðrum farþegum
sem voru múslímar.
Sama var upp á teningnum þegar
íslamistarnir réðust á Garissa-há-
skóla í apríl á þessu ári. Þá munu
þeir hafa einbeitt sér að því að drepa
kristna en sleppt mörgum múslím-
um. Í þeirri árás féllu 148 manns.
Múslímarnir vörðu kristna
Sómalskir íslamistar réðust á rútu í Kenía en farþegarnir sýndu mikla samstöðu
Al-Shabab hefur einbeitt sér að því að myrða kristna en oft sleppt múslímum
Í stríði við Kenía
» Fjöldi manna af sómölskum
uppruna býr í norðausturhluta
Kenía.
» Al-Shabab hefur barist við
Keníamenn frá því að kenískar
hersveitir réðust inn í Sómalíu
2011 til að reyna að gera út af
við samtökin.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Úrslit þingkosninganna á Spáni á
sunnudag gerbreyta pólitísku lands-
lagi sem varað hefur í nær 40 ár.
Tveir flokkar, Lýðflokkurinn, PP, og
Sósíalistaflokkurinn, PSOE, hafa
skipst á að stýra landinu frá því að
fullu lýðræði var komið á 1978. En
báðir töpuðu miklu fylgi, nú hefur
hvorugur nægilegan þingstyrk.
Stjórnarmyndun gæti orðið afar
snúin og óvissan er mikil. Fjárfestar
seldu í gær hlutabréf í spænskum
fyrirtækjum og álag á skuldabréf
hækkaði. Tveir nýir flokkar, róttæki
vinstriflokkurinn Podemos og
miðju-hægrimenn í Ciudadanos,
sem hefur rætur í Katalóníu, fengu
annars vegar um 20% fylgi og hins
vegar 13,9%. „Þetta er sögulegur
dagur fyrir Spán, nýtt skeið er hafið
í stjórnmálunum,“ sagði Pablo Ig-
lesias, leiðtogi Podemos.
Flokkur hans, sem hreppti 69
sæti, hefur lagt áherslu á að berjast
gegn aðhaldsstefnu PP og út-
breiddri spillingu. Leiðtogi PP, Mar-
iano Rajoy forsætisráðherra, verður
við völd fram í miðjan janúar þegar
nýtt þing kemur saman og segist
hann ætla að reyna að mynda sam-
steypustjórn. Hann hlaut 123 sæti
en þarf að fá minnst 176 þingmenn
af 350 til að styðja stjórn sína.
Ciudadanos, sem berst gegn sjálf-
stæði Katalóníu, hefur þegar lagt til
að PP myndi minnihlutastjórn og
reyni að fá vinstriflokkana og hér-
aðsflokka í Katalóníu og víðar til að
styðja mikilvægustu málin eða sitja
amk. hjá. En hætt er við að Rajoy
yrði að kaupa þann stuðning dýru
verði, smáflokkarnir myndu heimta
sitt. Nýjar kosningar gætu orðið nið-
urstaðan.
Sögulegar sættir?
Ljóst er að gömlu erkifjendurnir
tveir, PP og PSOE, hafa saman
nægan þingstyrk en ráðamenn
PSOE, sem er með 90 sæti, hafa
þegar útilokað þann möguleika, hvað
sem síðar verður. Fordæmi fyrir
slíkum sögulegum sættum í öðrum
Evrópulöndum eru þó mörg.
Líklegra er að menn óttist annað
fordæmi, grannlandið Portúgal. Þar
missti einnig hægri-miðjuflokkur
meirihlutann í fyrra. Í kjölfarið
sigldi umrót þar sem forsetinn, Ani-
bal Cavaco Silva, misnotaði í fyrstu
herfilega vald sitt til að útnefna for-
sætisráðherra en gafst loks upp. Á
Spáni er nú nýkrýndur konungur,
Filippus 6., með sama vald og Silva.
Búist við erfiðri stjórn-
armyndun á Spáni
Róttækir vinstrimenn í Podemos hlutu um 20% atkvæða
AFP
Sigurþreyta Örmagna stuðnings-
maður Podemos á kosninganótt.