Morgunblaðið - 22.12.2015, Side 31

Morgunblaðið - 22.12.2015, Side 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015 Hvar hittir maður vini sína? Hvenær kvikna tengsl sem endast svo að eimur af þeim finnur sér nýjan stað á síðum tímarita, blaða, í bréfum eða rabbi manna á milli? Kynnin við hjónin á Fornhaganum, þau Hjálmar og Möggu, hófust skömmu fyrir jólin 1985 þegar systir mín, söngfélagi Hjálmars úr Árnesingakórnum, gaf mér þau ráð að hringja til þeirra og leita liðsinnis hjá þeim – koma og æfa með okkur fyrir jóla- messurnar í Óháða söfnuðinum þar sem ég var nýtekinn við starfi organista. Þetta reyndist úrvalsráð og þau hjónin urðu traustir kór- félagar þau þrjú ár sem ég átti framundan að starfa þarna í frí- kirkjunni á Háteignum. Augna- blikið er eftirminnilegt þegar Hjálmar svaraði í símann og hlustaði á erindi mitt: „Talaðu við Möggu,“ var svar hans, hún markaði leiðina, þau voru löngu orðin heimavön í höfuðborginni, kunnu hátíðasöngvana og jóla- sálmana, ég nýfluttur þangað en var að eignast þarna trausta fé- laga í kirkjusöngnum og á sam- komum sem enn eru haldnar austur í Flóa og við nefnum söngkvöld. Þetta eina símtal og úrslit þess auðveldaði allt mitt starf. Söngkvöldið kviknaði svo á næsta ári en þar reyndist Hjálmar vera í essinu sínu, tók lagið, dreypti á glasinu og sýndi á sér gleðibragð. Þegar söng- stjórinn þurfti að taka sér smá- pásu kallaði hann til Hjálmars hvort hann ætti eina litla sögu sem gjarnan varð þá bragur eða þula ort af honum sjálfum. Hann var fæddur frostaveturinn mikla 1918, sagði oft heilmikla sögu af harðri lífsbaráttu, skopaðist of- urlítið að eigin persónu og upp- skar frá áheyrendum hlátur og lófatak. Það hafa oftast verið laun skáldsins. Hjónin á Forn- haganum, þau Margrét Guð- mundsdóttir og Hjálmar komu að vestan, hún úr Aðalvík og hann af Hesteyri og þau fluttu fyrst að Þingeyri þar sem hann vann við verslunarstörf. Síðan fluttu þau til höfuð- borgarinnar og Hjálmar fór að vinna á skattstofunni, eftir nokkur ár í ýmsum störfum, en skarpskyggni hans og ná- kvæmni nýttist vel hjá slíku fyrirtæki. Þau hjónin sóttu Nes- kirkju, Hjálmar söng um tíma þar í kórnum og einnig í Árnes- ingakórnum sem hann starfaði enn í þegar nýi organistinn í óháða fékk þau hjón til liðs á jól- unum 1985. Hjálmar fékk eftir- minnilegan útfarardag mánu- daginn 7. desember, óveðursspá og öllum leiðum úr bænum lok- að um nón. En í Neskirkjunni ríkti kyrrð og söknuður, vinir og frændur sungu Hærra minn Guð til þín og eftir guðspjallið söng kórinn nýlegan texta Hjálmars: Nú friður leggst um land og sjó er lýkur dagsins önn og jörðin hvít í kyrrð og ró á kafi í vetrarfönn en þjóðir heims í hildarleik samt heyja blóðugt stríð og hugsun okkar víst er veik með von um betri tíð. Ó, sendu góði guð þann frið sem gefur hugarró Hjálmar Benedikt Gíslason ✝ HjálmarBenedikt Gíslason fæddist 22. desember 1918. Hann lést 30. nóvember 2015. Útför Hjálmars fór fram 7. desem- ber 2015. og snauðum þjóðum leggðu lið á landi jafnt og sjó og þeim sem líða um loftsins geim í leit að nýrri sýn, gef að þeir komi heilir heim úr himnaför til þín. (HBG) Á aðfangadag verða 30 ár síðan þessi góðu hjón komu til liðs við kórinn í Óháða söfnuðinum en í dag er 97. afmælisdagur Hjálm- ars heitins. Ljúft er að minnast stundanna með þessum góðu hjónum. Harpa Ólafsdóttir og Ingi Heiðmar Jónsson. Látinn er frændi minn, Hjálmar B. Gíslason. Einhvern veginn fóru lát hans og útför framhjá mér í Morgun- blaðinu, þangað til annar í fjöl- skyldunni benti mér á það nokkrum dögum síðar. Hjálmari kynntist ég í heim- sóknum til bróður hans, Krist- ins, er var eiginmaður Mar- grétar Jakobsdóttur Líndal, systur pabba míns, Baldurs Lín- dal. Hann kom úr kennarafjöl- skyldu, en var kynntur fyrir okkar fræða- og listafjölskyldu sem þeirra menningarfulltrúi. Var þar helst að nefna að hann hefði verið sviðsleikari. Var hann glaðbeittur maður með glimt í auga. Löngu seinna hitti ég hann svo í afmælisveislu hjá Kristni bróður hans, kringum 1995. Er fólk hafði þá setið undir borðum um sinn stóð hann allt í einu upp og ávarpaði bróður sinn með einhverju gamanmáli. Stóð sá þá þegar upp og svaraði nú fyndn- inni fullum hálsi. Fóru þeir þá báðir mjög á kostum og var mér ljóst að Kristinn var þar að kynna uppistandarann bróður sinn fyrir frændgarðinum. Í hléi á eftir hafði svo frænka mín, Anna G. Líndal myndlistarpró- fessor, á orði við mig að ekki hefði hún getað brugðist svona óvænt og skemmtilega við á samkomu. Svaraði ég þá til, að þar myndu hafa verið samantek- in ráð. Gaf ég honum síðan að skilnaði aðra ljóðabók mína, og mælti hann þá að þar hefði ég brugðist við með óvæntu en glæsilegu útspili! Síðast hitti ég hann í erfi- drykkju bróður hans, Kristins, eða hans konu, Margrétar, kringum 2012 og bauð honum þá að eiga þrettándu ljóðabók mína. Hafði hann þá varann á sér, og sagði að hann væri nú ekki lengur í stakk búinn til þess háttar loftsiglinga, og baðst því undan nú. Á árunum á eftir falaðist ég eftir að fá hann í mín árlegu ættarmótsheimboð, en gladdist þó yfir að systir hans var nú enn nógu hress til að mæta í staðinn. Mér þykir við hæfi að kveðja þennan leiklistarsinnaða frænda minn með harmljóði mínu um gamanleikjaskáldið Menander sem var uppi í Aþenu á fjórðu öld fyrir Krist. Í ljóði mínu frá 2009, er heitir Háðfuglinn Men- ander, segi ég m.a.: Háðfuglinn Menander sem skyldi eiga sér meðhlægjendur um aldur og ævi drukknaði í höfninni í Píreus þegar hann fékk sér helgarsund- sprett: Gamanleikjaskáldið góðkunna barðist við krampakast í eilífu sólskininu svo svartar krullur hárs og skeggs léku tvísöng við heiðbláar gárurnar. Tryggvi V. Líndal. Við kynnumst mörgu góðu fólki á lífsleiðinni, en sum- ir verða nánari en aðrir og vináttan meiri. Þannig var með kynni okkar Guðjóns sem við berum til hinstu hvíldar í dag. Leiðirnar lágu saman þeg- ar Katrín dóttir okkar hóf sam- búð með Eiríki dóttursyni þeirra Guðjóns og Alrúnar. Fljótlega urðu þau hjónin fasta- gestir í fjölskylduboðum og vinaheimsóknum. Við fundum vel hve Katrín bar góðan hug til þeirra og að það var gagn- kvæmt. Og litli dóttursonurinn, Valdimar Kolka, kunni vel að meta hlýja glettni langafans. Guðjón var hrókur alls fagn- aðar hvar sem hann fór, kvikur í hreyfingum, leiftrandi í samræð- um, víðlesinn og margfróður. „Veistu hvað, Jón,“ sagði hann eitt sinn þegar talið barst að slæmri færð og óveðri. „Ég veit fátt skemmtilegra en að keyra bílinn minn í hríðarbyl og ófærð. Það tekur sko í,“ sagði kappinn og ók sér um leið. Nokkuð lýsandi fyrir kraftinn og baráttugleðina sem einkenndi fas hans allt. Við eigum ljúfar minningar frá kaffispjalli við eldhúsborðið á heimili þeirra hjóna í Hafn- arfirði þar sem margt bar á góma svo sem landsmálin en ekki síður frásagnir af sam- ferðafólki og ferðum þeirra Al- rúnar um landið. Guðjón var sérlega róttækur í skoðunum, einarður félags- hyggjumaður með ríka réttlæt- iskennd. Á heimaslóðum hans fyrir austan var hann kallaður Kommúnistinn með stóru K-i og var stoltur af. Hann var eitt sinn á fundi á Akureyri og samferða miklum sjálfstæðismanni heim í gistingu seint um kvöld. Sá var þó nokk- uð hærri en Guðjón og tals- verður á velli. Götur voru blaut- ar og pollar hér og hvar. Þessi Guðjón Einar Jónsson ✝ Guðjón EinarJónsson fæddist 20. apríl 1931. Hann lést 12. desember 2015. Útför Guðjóns fór fram 21. desem- ber 2015. göngufélagi Guð- jóns sem var nokk- uð við skál, vildi ybbast upp á hann og „leggja þennan kommúnista í svað- ið þar sem hann ætti heima“. Guð- jón var þéttur á velli og sterkur þótt lágvaxinn væri. Fór svo að honum leiddist þetta þóf og tók undir bring- spalirnar á göngufélaganum, hóf hann á loft, setti hann á rassinn ofan í drullupoll og sagði hóglát- lega: „Svona fer kommúnistinn með sjálfstæðismanninn ef hann hegðar sér ekki sæmilega.“ Þessa sögu sagði Guðjón okkur nokkrum dögum fyrir andlátið og hló dátt við. Guðjón naut þess að ferðast um landið, var mikill náttúru- unnandi og prýðilega hagmælt- ur. Með kvæðinu „Í skóginum“ fléttaði hann saman skáldgáfuna og lotninguna fyrir vorinu og grænu laufi skógarins: Að ganga í grænum skógi það græðir sérhvert mein. Og þessu fallega kvæði lýkur hann með þakkaróði: Og því skal þessa njóta og þakka sérhvert blað. Því guð sem lífið gefur, hann gefur líka það. Guðjón lét sig svo sannarlega málefni samtímans varða. Í greininni „Fordómar“ sem hann skrifar í Morgunblaðið 29. des- ember 2007 fjallar hann um þetta hugtak frá ýmsum hliðum. Þar segir hann m.a.: „Að for- dæma annað fólk fyrir að kom- ast að annarri niðurstöðu en það sjálft er reyndar kallað þröng- sýni eða heimska.“ Greininni lýkur Guðjón með tilvitnun í Sigurbjörn biskup sem gætu verið einkunnarorð hans sjálfs: „Betri er íhugandi efi en hugs- unarlaus trú.“ Við hjónin erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Guð- jóni og eiga hann að vini. Við sendum Alrúnu og fjölskyldunni allri einlægar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning góðs vinar. Ingibjörg Kolka og Jón Bjarnason. Ég er svo hepp- in að vera skírð í höfuðið á merkum konum. Ein þeirra var Ingibjörg Jónsdóttir, eða Mína. Mína var nágranni minn, yndislega list- ræna konan á neðri hæðinni á Kirkjuteignum. Fyrir mér var Mína svo margt; amma, kenn- ari, ferðafélagi og nágranni. Ég fæddist og ólst upp á Kirkju- teigi 14, ég fæddist inn í yndis- legt samfélag nágranna sem var sem ein fjölskylda. Við gerðum mikið saman; ferðalög á Arnarvatnsheiðina, tína orma í garðinum eftir myrkur, ferðir í Bláfjöll og góð- ar stundir í garðinum fagra. Fyrir mig var það mikill fjár- sjóður að eiga aukaömmu í Mínu. Hún hafði endalausa Ingibjörg Jónsdóttir ✝ Ingibjörg Jóns-dóttir fæddist 23. september 1928. Hún lést 5. desember 2015. Útför Ingibjarg- ar fór fram 16. des- ember 2015. þolinmæði fyrir mér og við eyddum mörgum stundum saman þar sem ég sat og horfði á hana mála, ég á henni að þakka að ég þroskaði mynd- listaráhuga minn. Kirkjuteigur 14 var góður staður til að alast upp á þar sem aldrei var læst á milli hæða enda nýtti ég mér það óspart. Oftar en ekki þurfti faðir minn að sækja (oft um miðja nótt) mig niður á neðri hæðina, þar var gott að kúra. Það kom sér sérstaklega vel þegar mamma og pabbi þurftu að mæta í vinnuna snemma og ég fékk að kúra þar til Mína fór með mig á leikskól- ann. Ég er þakklát fyrir að Mína hafi verið í lífi mínuog auðgað það. Takk fyrir að auðga líf mitt, fyrir að vera til staðar og allt sem þú gerðir fyrir mig, Mína. Þín nafna, Ingibjörg Elísabet Garðarsdóttir. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts, minningarathafnar og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, INGVARS ÞÓRHALLS GUNNARSSONAR Laxárbakka, Hvalfjarðarsveit. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki deildar 11C-B á Landspítalanum og starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Akranesi, fyrir yndislega umönnun og umhyggju. Sendum ykkur öllum hugheilar jóla- og nýárskveðjur. . Hulda Bryndís Hannibalsdóttir, Sigríður K. Ingvarsdóttir, Skúli Hermannsson, Helga Þ. Ingvarsdóttir, Jesus Salvador Tabarnero, Berglind S. Ingvarsdóttir, Sævar Guðjónsson, Inga Bryndís Ingvarsdóttir, Karl R. Freysteinsson og barnabörn. Elskulegur bróðir okkar og mágur, GUÐJÓN BJARNI KARLSSON frá Ísafirði, lést á Hjúkrunarheimilinu Ísafold 16. desember síðastliðinn. Útför fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 29. desember klukkan 13. . Geirlaug Karlsdóttir, Hörður Sófusson, Dagný Karlsdóttir, Auðunn Karlsson, Fríður Jónsdóttir, Sigurður Karlsson, Hallfríður Jónsdóttir, Anna Karlsdóttir, Erlendur Erlendsson. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR ÖRN GUNNARSSON, Þingvallastræti 27, Akureyri, lést laugardaginn 19. desember. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 29. desember klukkan 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri. . María Jóhannsdóttir, Arna Borg Einarsdóttir, Helgi Magnússon, Birkir Einarsson, Anna Sylvía Sigmundsdóttir, Eydís Einarsdóttir, Stefán Viðar Finnsson, barnabörn og langafabarn. Ástkær móðir okkar, amma og systir, BERGLJÓT ELLERTSDÓTTIR, fyrrverandi skrifstofukona á Hafnarskrifstofunni í Reykjavík, Gnoðarvogi 40, Reykjavík, lést 9. desember á líknardeild LSH í Kópavogi. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Við þökkum auðsýndan hlýhug og samúð og bendum þeim er vildu minnast hennar á líknardeild LSH í Kópavogi. . Auður Matthea Matthíasdóttir, Aldís Hugbjört Matthíasdóttir, Ellen Guðmundsdóttir, Karen Bergljót Knútsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BRAGI HELGASON, Hlíðarvegi 23 í Bolungavík, andaðist fimmtudaginn 17. desember á hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á Ísafirði. Útförin fer fram frá Hólskirkju í Bolungavík þriðjudaginn 29. desember klukkan 14. . Þorbjörg Maggý Jónasdóttir, Sigríður Jóna Bragadóttir, Helgi Bragason, Ásdís Gústavsdóttir, Brynjar Bragason, Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.