Morgunblaðið - 22.12.2015, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015
Áslaug Óskarsdóttirer fædd og uppaliní Garðabæ. Hún
ólst upp í Aratúni frá
tveggja ára aldri með for-
eldrum og systkinum. Hún
var með fyrstu árgöng-
unum sem útskrifuðust úr
Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ (FG) 1984 og út-
skrifaðist sem tannlæknir
frá tannlæknadeild HÍ
1994. Stuttu síðar kynntist
hún eiginmanni sínum,
Ingólfi Einarssyni, barna-
lækni. Þau eiga saman tvo
drengi, Óskar, 18 ára, og
Davíð, 16 ára, sem báðir
feta í fótspor móður sinnar
og stunda nám við FG. Ás-
laug rekur tannlæknastofu
á Garðatorgi 7 í Garðabæ.
Áslaug stundaði fimleika í mörg ár hjá fimleikafélaginu Gerplu í
Kópavogi, en í þá daga var ekkert fimleikafélag að finna í Garðabæ.
Hún tók síðan virkan þátt í stofnun og uppbyggingu fimleikadeildar
Stjörnunnar. Áslaug átti góðu gengi að fagna í áhaldafimleikum, en
hennar sterka hlið voru æfingar í stökki. Hún vann til margra verð-
launa og var meðal annars kjörin fimleikamaður ársins 1980.
Áslaug hefur fengist við þjálfun og dómgæslu í áhaldafimleikum og
var m.a. alþjóðlegur dómari í 15 ár. Undanfarin ár hefur Áslaug tekið
þátt í nefndarstörfum hjá Tannlæknafélaginu og er í stjórn Zonta-
klúbbsins Sunnu. Einkennandi fyrir Áslaugu er hversu góða rækt hún
leggur við að halda sambandi við vini sem hún hefur kynnst í gegnum
fyrstu 50 árin í lífi sínu. Hún á afskaplega auðvelt með að kynnast já-
kvæðu fólki og glaðlyndi hennar smitar út frá sér.
„Ferðalagið í tilefni afmælisins var ákveðið með löngum fyrirvara, en
það lagðist vel í fjölskylduna að komast í sól og hita á miðjum vetri.
Þetta er reyndar í fyrsta sinn sem fjölskyldan er að heiman á jólum og
líka á afmælisdegi mínum. Eftir að fjölskyldan flutti frá Englandi fyrir
14 árum hef ég komið upp þeirri hefð, sem margir gera nú ráð fyrir á
aðventunni, að hafa opið hús á afmælisdegi mínum. Þar hittast vinir og
vandamenn okkar Ingólfs. Þessarar hefðar sakna margir nú og voru
sumir sem óskuðu eftir að fá að mæta til Flórída 22. desember 2015! Í
dag ætla ég að spila golf á Reserve-vellinum í Orange Lake og fara svo
út að borða með Dóru systur og fjölskyldum okkar á notalegum veit-
ingastað.“
Á Flórída Áslaug Óskarsdóttir.
Ákvað að rjúfa hefð
á afmælisdeginum
Áslaug Óskarsdóttir er fimmtug í dag
Ó
lafur fæddist á Grettis-
götu 48b í Reykjavík
hinn 22.12. 1935 og ólst
þar upp fram yfir tví-
tugsaldur: „Grettis-
gatan var með fjölmennustu götum
Reykjavíkur á þessum árum og ég á
góðar minningar um gamla leik-
félaga í þessum fjölbreytilega og
skemmtilega, gamla hverfi.“
Ólafur var í Austurbæjarskól-
anum, Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar, stundaði nám við MR og lauk
þaðan stúdentsprófi árið 1955. Hann
lauk kandidatsprófi í tannlækn-
ingum frá tannlæknadeild HÍ 1966.
Á námsárunum í menntaskóla og
háskóla vann Ólafur víða um land við
landmælingar á vegum Rafmagns-
veitna ríkisins og Raforkumála-
skrifstofunnar, síðar Orkustofnunar,
til undirbúnings virkjana-
framkvæmdum. Á þeim árum lék
Ólafur á harmóniku á dansleikjum
og skemmtunum með ýmsum hljóm-
sveitum. Hann sat í Stúdentaráði HÍ
1963-64.
Ólafur opnaði tannlækningastofu í
Reykjavík árið 1967 og starfrækti
hana til ársins 2003. Hann var
stundakennari við tannlæknadeild
Ólafur G. Karlsson tannlæknir – 80 ára
Fjölskyldan Ólafur og Guðrún Anna á góðri stund í sumarfríi með börnunum sínum, Ingunni, Jóni Karli og Valdísi.
Fékk mikinn áhuga á
stangveiði í barnæsku
Í viðhafnarboði Ólafur, ásamt samferðakonu sinni, Erlu M. Frederiksen.
Kópavogur Heiðrún Hlín Ágústsdóttir
fæddist 22. desember 2014. Hún vó
4.260 g og var 52 cm löng. Foreldrar
hennar eru Þórdís Hrund Þórðardóttir
og Ágúst Elí Ágústsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Þór Oviedo fæddist 30.
apríl 2015 kl. 11.04. Hann vó 3.832 g
og var 52 cm langur. Foreldrar hans
eru Berglind Jóhannesdóttir og
Yannier Oviedo Rivas.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is