Morgunblaðið - 22.12.2015, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015
Sumir halda því fram að vín-fræði og -smökkun séu baradulbúinn alkóhólismi (alkó-hólisti myndi ekki leyfa vín-
inu að anda segir drykkfelld sögu-
hetja The Irresistible Inheritance of
Wilberforce eftir Paul Torday) og
þeir eru til líka til sem draga í efa að
hægt sé að greina allt það mergjaða
bragð sem vínfróðir smjatta á;
súkkulaði, sedrusviður, hey, tjara,
kaffi, asetón, ritblý, málningareyðir
(vatnsleysanlegur), kattahland og
svo má telja. Svar við þessu er:
vissulega er vínsmökkun ekki vís-
indagrein, en það er hægt að þjálfa
bragðskynið til að njóta eðalvína
eins og hver getur reynt á sjálfum
sér með handbók við höndina, til að
mynda þá sem hér er gerð að um-
talsefni.
Umhverfis jörðina á 110 flöskum
er frekar uppflettirit en bók sem
lesa á í einum rykk, og ég var líka
búinn að grípa niður í hana hvað eft-
ir annað áður en ég settist niður og
las hana í einni lotu eða þar um bil. Í
bókinni er gríðarmikill fróðleikur
um vínrækt og vínsmökkun og ekki
bara um þær 110 tegundir sem
Steingrímur segir frá heldur um vín
almennt, sögulega þróun vín-
drykkju, tískufyrirbæri í vínneyslu
og -framleiðslu, efnahagslega þætti
og fleira má telja. Saga víns er nefni-
lega að miklu leyti saga Vesturlanda
og eitt af því markverðasta sem
Vesturlönd hafa breitt út um heim-
inn er einmitt vínmenning.
Þó að mikinn fróðleik sé að finna í
bókinni, þá er
þeim fróðleik
pakkað svo vel
inn í aðgengileg-
an og yfirlætis-
lausan texta að
maður tekur ekki
eftir fræðunum,
innbyrðir þau
ljúflega, svona
rétt eins og, tja, glas af kældu Isole e
Olena Chardonnay á heitum sum-
ardegi. Og já, mikið af því víni sem
sagt er frá í bókinni er hægt að
kaupa í Vínbúðinni, hitt má panta frá
útlöndum, þó að nokkrar flöskur
verði eflaust erfitt að næla í nema
menn séu því fjáðari.
Það eina sem ég fetti fingur út í
við þessa afbragðsbók er að meiri
vinnu hefði mátt leggja í texta bók-
arinnar, hreinsa út slys eins og þeg-
ar orðið spennandi kemur tvisvar
fyrir í sömu setningu og eins að
losna við orðleysur eins og „arómat-
ískt“, sem bregður oft fyrir, og
„míneralískt“ svo dæmi séu tekin.
Ég geri aftur á móti enga athuga-
semd við orðaforðann sem notaður
er til að lýsa viðkomandi vínum,
maður getur svo sem gert sér í huga-
lund hvernig þau vín bragðast sem
eru hæglát, djúp, íhugul, stór, mikil,
þykk, samþjöppuð, stíf eða erfið.
Sumstaðar vantar smá skýringar,
nefni sem dæmi að þegar IGT kem-
ur fyrst fyrir í bókinni er ekki út-
skýrt um hvað sé að ræða og hvern
vegna það skipti máli. Tvisvar er svo
of miklum upplýsingum troðið inn í
textann svo maður tognar á heila við
lesturinn (ekki nema tvisvar, takið
eftir: Isole e Olena Chardronnay og
Venciva & Venica Collio Friulano).
Að þessu sögðu þá er textinn í
senn fræðandi og skemmtilegur,
eins og ég nefndi, kumpánlegur eins
og Steingríms er von og vísa, og
kryddaður af brennandi áhuga hans
og yfirgripsmikilli þekkingu. Upp-
setning á bókinni er til mikillar fyr-
irmyndar og myndskreytingar í
henni eru hreint út sagt frábærar –
fjölbreyttar og fyndnar.
Teikning/Lóa Hjálmtýsdóttir
Eðalvín Ein teikninganna sem skreyta bókina um vínin. Svona upplifir Lóa
Hjálmtýsdóttir sílska vínið Almaviva frá Puente Alto í Maipo-dal.
Hæglát, íhugul,
djúp, stór og mikil
Vínfræði
Vín – Umhverfis jörðina á
110 flöskum bbbbm
Eftir Steingrím Sigurgeirsson. Teikn-
ingar eftir Rán Flygerning, Lóu Hjálm-
týsdóttur & Siggu Björgu. Crymogea
gefur út. 254 bls. innb. í stóru broti.
ÁRNI MATTHÍASSON
BÆKUR
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Forráðamenn menningarhúsanna
Hörpu í Reykjavík og Hofs á Akur-
eyri gengu í gær frá samningi um
samstarf; um menningarbrú á milli
húsanna, eins og það er kallað. Hús-
in munu skv. þessu skiptast á ýms-
um viðburðum árlega.
Halldór Guðmundsson, forstjóri
Hörpu, og Sigurður Kristinsson, for-
maður stjórnar Menningarfélags
Akureyrar (MAk), skrifuðu undir
samninginn í Hofi og sögðust afar
glaðir með fyrirhugað samstarf.
„Hugmyndin er sú að fólki héðan,
til dæmis Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands og Leikfélagi Akureyrar,
verði kleift að koma til okkar og
setja upp sýningar eða tónleika á
góðum kjörum og að það verði gagn-
kvæmt; við getum líka sent tónleika
eða sýningar hingað norður,“ sagði
Halldór Guðmundsson við Morgun-
blaðið í gær. Þar kemur nánast allt
til greina; tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands, listviðburðir fram-
leiddir í Hörpu eða jafnvel ráð-
stefnur.
Þeir Sigurður bentu báðir á mjög
vel heppnað samstarf húsanna
tveggja í haust, annars vegar tón-
leika Dimmu og Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands í Hörpu og leik-
sýninguna Þetta er grín, án djóks á
sama stað. Hvort tveggja hafði áður
verið sett upp í Hofi. „Þeir viðburðir
sýndu okkur að þetta er hægt, og
gott fyrir báða aðila. Við vildum því
innsigla samstarfið og þróa,“ sagði
Sigurður.
Hús allra landsmanna
„Því má ekki gleyma að Harpa er
hús allra landsmanna og verður þá
líka að koma þannig fram,“ sagði
Halldór Guðmundsson. Hann tók
þannig til orða að samningurinn
væri frábært tækifæri enda búið að
sameina starfsemi Hofs, Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands og Leik-
félags Akureyrar undir einn hatt.
„Þetta er orðið mjög öflugt hús og
ég held að samstarfssamningurinn
sé ekki síður mikilvægur fyrir okkur
í Hörpu en ykkur hér fyrir norðan.“
Halldór sagði að mjög góð sala
hefði verið á bæði tónleika Dimmu
og SN í Hörpu, svo og leiksýninguna
sem þó hefði verið ákveðið að setja
upp í Hörpu með mjög stuttum fyr-
irvara.
Samkvæmt samningnum verður
um einn viðburð að ræða á ári sem
skipst verður á, að lágmarki, en nán-
ast öruggt að þeir fleiri, að sögn Sig-
urðar.
„Þetta eru góð tíðindi fyrir allan
almenning vegna þess að menning-
arviðburðir sem framleiddir eru hér
á Akureyri verða iðulega í boði á höf-
uðborgarsvæðinu og öfugt. Mörg
ljón, sem gætu hafa orðið á veginum,
eru í raun fjarlægð með samn-
ingnum og allir græða. Það ríkir
mikill samhugur um þetta,“ sagði
Sigurður Kristinsson.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Samstarf Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar, Halldór Guðmundsson for-
stjóri Hörpu, Sigurður Kristinsson, formaður stjórnar menningarfélagsins og Jón Páll Eyjólfsson leikhússtjóri.
Reisa menningarbrú
á milli Hörpu og Hofs
Menningarhúsin tvö munu skiptast á ýmsum viðburðum