Fréttablaðið - 06.01.2017, Blaðsíða 4
www.apotekarinn.is
- lægra verð
NICOTINELL Gildir af öllu lyfjatyggigúmmíi, öllum styrkleikum og pakkningarstærðum. 15%AFSLÁTTUR
Nicotinell-15%-5x10-apotekarinn copy.pdf 1 29/12/16 15:05
Tækni AlphaGo, gervigreind
fyrirtækisins DeepMind sem gerði
garðinn frægan þegar hún vann
heimsmeistarann Lee Sedol í kín-
verska spilinu Go, hefur undanfarið
keppt í leyni á netinu. Þar hefur hún
pakkað saman mörgum af bestu Go-
spilurum heims.
AlphaGo, sem gekk undir not-
andanafninu Master, hafði vakið
furðu margra í Go-samfélaginu fyrir
undarlegan en árangursríkan leik-
stíl. Vakti leikstíllinn grunsemdir
um að þarna væri ekki maður
að verki heldur gervigreind. Sú
reyndist raunin og staðfesti Demis
Hassabis, forstjóri DeepMind, þetta
í tilkynningu í gær.
„Niðurstöðurnar gera okkur
spennt fyrir framhaldinu og því
sem Go-samfélagið gæti lært af leik-
stíl AlphaGo. Eftir að hafa spilað við
AlphaGo sagði stórmeistarinn Gu
Li að mannkynið gæti komist að
dýpstu leyndarmálum Go,“ segir í
tilkynningunni.
Hassabis segir framhaldið vera
það að gervigreindin spili á opin-
berum vettvangi í samstarfi við Go-
sambönd og sérfræðinga. Með því
væri hægt að varpa ljósi á leyndar-
dóma spilsins og hjálpa því að
þróast.
AlphaGo hefur nú unnið sextíu
leiki í röð og meðal annars gegn
heimsmeisturunum Lee Sedol og
Ke Jie. Hinn undarlegi leikstíll er
sagður slá mennska spilara út af
laginu og þá leikur gervigreindin
mun hraðar en flestir menn gera.
Go er fyrir tvo leikmenn og er
spilið talið vera allt að þrjú þúsund
ára gamalt. Þótt reglur þess séu
einfaldar eru mögulegar stöður í
spilinu sagðar vera fleiri en atómin
í hinum sjáanlega alheimi. Leik-
borðið er nokkru stærra en í skák og
því geta leikirnir orðið mun lengri.
– þea
Gervigreind malar netspilara í Go
Frá því er Lee Sedol
keppti við AlphaGo í Go.
Eftir að hafa spilað
við AlphaGo sagði
stórmeistarinn Gu Li að
mannkynið gæti komist að
dýpstu leyndarmálum Go
Demis Hassabis, forstjóri DeepMind
aTvinnumál Verið er að segja upp
starfsfólki hjúkrunarheimilisins
Kumbaravogs þessa dagana.
Eins og kunnugt er ákvað heil-
brigðisráðherra að starfseminni
verði hætt í lok mars á grundvelli
skýrslu Embættis landlæknis um
ýmsa ágalla á staðnum og starf-
seminni sem ekki hafi verið bætt
úr þrátt fyr r í rekuð tilmæli.
Að sögn Margrétar Bjarkar Ólafs-
dóttur vinna um fimmtíu manns á
Kumbaravogi í misstóru starfshlut-
falli.
Um helmingur þeirra búi á Sel-
fossi en einnig margir á Stokkseyri
auk annarra staða í nágrenninu.
Margrét telur þessar uppsagnir
skiljanlega mikla blóðtöku fyrir
svæðið enda sé Kumbaravogur
stærsti vinnustaðurinn á Stokkseyri
fyrir utan skólann í þorpinu. – gar
Uppsagnir á Kumbaravogi
Kumbaravogi verður lokað í mars. FréttAbLAðið/Eyþór
Björgun Leitað var að tveimur
ferðamönnum við Langjökul í gær
eftir að þeir höfðu orðið viðskila
við hóp vélsleðafólks í skipulagðri
ferð. Ferðin var á vegum fyrirtækis-
ins Mountaineers. Ríkisútvarpið
greindi frá því að haldið hefði verið
í ferðina þrátt fyrir stormviðvörun.
Ferðamennirnir fundust rétt fyrir
klukkan níu í gær, heilir á húfi.
„Það er hvers og eins fyrirtækis
að meta aðstæður hverju sinni og
setja sínar öryggisreglur. Það eru
engar almennar reglur til en það
er rétt að geta þess að þetta fyrir-
tæki hefur starfað lengi á markaði
og er meðal annars í Vakanum,
gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjón-
ustunnar,“ segir Helga Árnadóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar (SAF).
Aðspurð hvort ásættanlegt sé
í augum SAF að halda í slíka ferð
eftir að hafa fengið stormviðvörun
segir Helga: „Ég held það sé ekki rétt
á þessari stundu að svara því. Maður
þarf að kynna sér betur hvað hafi
legið að baki.“
Samkvæmt því sem segir í
umfjöllun Ríkisútvarpsins hafði
annað fyrirtæki aflýst vélsleða-
ferðum vegna veðurs. Mountaineers
hafi hins vegar ekki þótt veðurspáin
svo slæm að þess þyrfti.
Í samtali við Fréttablaðið í gær-
kvöldi sagði Þorsteinn G. Gunn-
arsson, upplýsingafulltrúi Lands-
bjargar, að fjölmargir hafi tekið þátt
í leitinni. Áður en fólkið fannst hafi
um 160 manns tekið þátt í leitinni.
Meðal annars göngufólk, skíðafólk
og vélsleðafólk.
Þorsteinn sagði að svo virtist sem
hópurinn hefði ekki farið upp á
jökulinn. Hann hafi farið frá Geld-
ingafelli, að Skálpanesi og þaðan að
jökulsporðinum.
„Þar sneri hópurinn við því þá
skall á vonskuveður. Það var orðið
það dimmt að menn hættu að sjá
á milli sleða. Í staðinn fyrir að gera
eins og áhersla er lögð á, að stoppa,
virðist sem þessi sleði hafi haldið
áfram og týnst.“
Ferðamennirnir áttuðu sig hins
vegar á mistökum sínum, stoppuðu
og biðu eftir aðstoð norðaustan
við Skálpanes. Þar fundust þeir og
færðu björgunarsveitarmenn þeim
heita drykki enda blautir og kaldir.
thorgnyr@frettabladid.is
Hvers og eins að meta
aðstæður hverju sinni
Tveggja ferðamanna var leitað við Langjökul í gær eftir vélsleðaferð. Varað hafði
verið við stormi áður en haldið var af stað. Framkvæmdastjóri SAF segir hvers
og eins fyrirtækis að meta aðstæður. Ferðamennirnir fundust seint í gærkvöldi.
Á Langjökli. þar var vonskuveður í gær, frost, úrkoma og rok. FréttAbLAðið/StEFÁn
Það er hvers og eins
fyrirtækis að meta
aðstæður hverju sinni og
setja sínar öryggisreglur.
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF
viðskipTi Tryggingafélagið VÍS hefur
gengið frá kaupum á um 22 prósenta
hlut í Kviku fjárfestingabanka og
nemur kaupverðið um 1.655 millj-
ónum króna. Kaupin eru gerð með
fyrirvara um samþykki Fjármála-
eftirlitsins til að fara með virkan
eignarhlut í bankanum. VÍS verður
í kjölfarið stærsti einstaki hluthafi
Kviku.
Á meðal hluthafa í Kviku sem selja
bréf sín til VÍS er Skúli Mogensen,
forstjóri og stofnandi WOW air, sem
átti um 7,3 prósenta hlut í gegnum
eignarhaldsfélagið Títan B. Skúli
hefur verið á meðal stærstu eigenda
bankans allt frá því að hann leiddi
hóp fjárfesta sem keyptu MP banka
í apríl 2011. MP banki sameinaðist
Straumi fjárfestingabanka fjórum
árum síðar undir nafninu Kvika.
Með kaupverðinu á bréfum Kviku
er gert ráð fyrir að þau sé keypt á
genginu 5,4 krónur á hlut. Bankinn
er metinn á um 7,5 milljarða í við-
skiptunum en í lok þriðja ársfjórð-
ungs 2016 var eigið fé Kviku um 6,2
milljarðar. – hae
VÍS kaupir 22% í Kviku
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP
Straums FréttAbLAðið/Anton brinK
6 . j a n ú a r 2 0 1 7 F ö s T u D a g u r4 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð
0
6
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
E
-F
F
0
0
1
B
D
E
-F
D
C
4
1
B
D
E
-F
C
8
8
1
B
D
E
-F
B
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
5
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K