Fréttablaðið - 06.01.2017, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 06.01.2017, Blaðsíða 50
Spáin gildir fyrir árið 2017 Lengri útgáfa af stjörnuspá á visir.is/SiggaKlingNýársspá Siggu Kling 21. mars–19. apríl Hrúturinn 20. apríl–20. maí Nautið 21. maí–20. júní Tvíburinn Krabbinn 23. júlí–22. ágúst Ljónið 23. ágúst–22. september Meyjan 23. september–22. október Vogin 23. október–21. nóvember Sporðdrekinn 22. nóvember–21. desember Bogmaðurinn 22. desember–19. janúar Steingeitin 20. janúar–18. febrúar Vatnsberinn 21. júní–22. júlí Ár ástarinnar Þú ert að fara inn á sömu orku og landið okkar, Ísland. Lýðveldið okkar á afmæli 17. júní og Ísland er að fara inn í dásamlegt ár fjölskyldu og sam- einingar og það er bara akkúrat tengingin sem á líka við þig, elsku Naut. Þetta ár einkennist af ást, magnaðri vináttu og þú átt eftir að sjá miklu betur hvað skiptir máli. Þetta er ár regnbogans, og þú nærð mestum árangri þegar þú sýnir auðmýkt og þú ert svo sannarlega búið að læra það. Ég myndi segja það, hjartað mitt, ef þú ert á lausu og ert eitthvað að spá í ástina að þá sé þetta árið sem þú átt fótum fjör að launa af því að ótrú- legasta fólk verður skotið í þér. Ef þú ert að gera of mikið eða vinna of mikið þá muntu finna leið til að gera vinnu eða skólatímana auðveldari, þá sérstaklega með haustinu. Það er oft sagt um þig að þú sért kletturinn, en í ár ertu fjall og þú hefur aðdráttarafl Esjunnar. Þetta gæti orðið svolítið erfitt fyrir fáskiptin Naut sem eru ekkert hrifin af athygli en breytingar eru þeim týpum bara góðar og jafnvel hollar. Þú átt það til að detta í dálitla þráhyggju og þá aftengir þú þig við ár regnbogans. Mun auðveldara ár. Elsku hjartans Tvíburinn minn. Þetta er ár upp- skeru án þess að þú þurfir svo mikið að hafa fyrir því. Síðasta ár hefur liðið svolítið í kappi og jafnvel með svolitlum kvíða en þú færð hlutina miklu auðveldlegar upp í hendurnar á þessu ári og sér- staklega mun mars heilsa þér fallega. Það verður mikið að gera hjá þér en þú hefur minna fyrir hlutunum heldur en á síðasta ári. Þar af leiðandi getur þú sleppt stressinu: Ég treysti því að allt fari vel. Því ekkert er fallegra en Tvíburi sem slakar á og leyfir lífinu að flæða. Það sem ég sagði við þig í upphafi, að þetta verði auðveldara ár heldur en í fyrra, það á líka við fjármálin en peningar koma til þín auðveldlega. Það er mjög gott fyrir þig, hjartað mitt, að ákveða hvað þú þarft mikið af peningum í vikulaun, því þú sendir skilaboð til alheimsins og hann mun færa þér það sem þér finnst sanngjarnt en þú verður að trúa því. Þetta sumar verður rosa- legt og eins og þú sért á festivali frá enda maí þar til í lok ágúst. Þú blómstrar, hlærð og dansar og vaknar jafnvel þar sem þú vilt ekki vakna. Því þú ert 1000% sumartýpan og sumarið elskar þig. Litríkt og gott ár Elsku spennandi Krabbinn minn. Þetta ár lítur út hjá þér eins og Rammagerðin lítur út á jólunum. Þú ert að fara inn í litríkasta ár í langan tíma. Þetta verður líka ár þar sem ýmsar torfærur verða á vegi þínum en það mun bara auka þér kraft og þú munt setja í 5. gírinn og komast yfir það sem þú þarft. Fyrri partinn af árinu ertu í alls kyns uppbyggingu. Spekúlerar í svo mörgu, lífinu, dauðanum og hamingjunni. Þú finnur út á þessu tímabili hvað hentar þér best til þess að hafa þann kraft sem þetta ár mun svo sannarlega sýna þér. Lífsgleði er það sem einkennir þetta ár og er það ekki í raun og veru það eina sem við viljum? Þú ert, elskan mín, tilfinningaríkasta merkið en það verður mjög lítið af drama í kringum þig og miklu meira af spennu sem byggist á jákvæðni og krafti til að sjá hlutina í réttu ljósi, þú átt eftir að sýna öðru fólki mikla sanngirni. Þetta ár hefur tákn eilífðarinnar sem lítur út eins og átta á hlið og það eina sem þú þarft að gera er að tengja þig við fólk. Þora að lifa, því að lífið er að bjóða þér í skemmtiferð sem er líka dálítill hasar og heilmikil rómantík og þessi kraftur mun aukast. Ár hreinsunar Elsku fallega Ljónið mitt. Þetta er ár hreinsunar, nákvæmlega eins og maður setur bara skítug föt í hreinsun, þau koma eins og ný til baka. Þannig er þema þessa árs hjá þér, hjartað mitt. Þú færð svo sterka innri sýn á hvað er að hindra þig og hvernig þú getur leyst það. Þetta er ár þar sem mun verða mikill agi hjá þér í svo mörgu. Þú finnur styrk þinn aukast eftir því sem líður á árið. Fyrri parturinn af þessu ári verður töluvert hraðfleygur. Það er ekki endilega það sem hentar þér best, þó að þú vinnir mjög vel undir stressi eða álagi. Þú átt eftir að tímasetja hlutina betur og vera með það á hreinu að eina manneskjan sem þú getur stólað á, ert þú. Þegar þú sérð þetta eykst þér krafturinn. Þegar líða tekur á árið þá verða jafnvægi, ró, friður og öryggi sterkustu orðin sem ég get sent þér. Þú verður búið að vinna mikið í sjálfu þér og ekkert er fegurra en Ljón sem er ánægt með sjálft sig. Hafðu það í huga að það er engum að kenna og engum að þakka hver þú ert. Heldur skapar þú orkuna þína með því að trúa á að þú getir þetta og getir hitt sem þú vilt og sért það sem þú vilt vera og leyfir þér að vera montið af sjálfu þér. Breytingar fram undan Þú ert alltaf svo töff með mikla útgeislun og lítur svo vel út. Þú sendir svo mikla hlýju í gegnum fallega brosið þitt. Þó að þér líði jafnvel ekki ofboðslega vel. Það er svo mikilvægt að þú mætir þeim skilningi að þú getir verið þú sjálf heima hjá þér og leyft þér að fara í smá fýlu ef þig langar. Þú ert að fara inn í ótrúlega merkilegt ár sem er upphafið á tíu ára tímabili og mun gera undirstöður þínar mjög sterkar. Það eru miklar líkur á flutningum, breytingum á vinnu jafnvel þótt það gæti verið innan vinnustaðarins. Þetta er allt til batnaðar, vegna þess að þú ert að fara inn í nýtt tímabil. Þér á eftir að ganga mjög vel í ástamálunum í ár en þú skalt steinhætta að reyna að sálgreina maka þinn og leyfa bara lífinu að flæða í blessaðri ástinni. Þú hefur kraft til að breyta og þú færð tækifæri til þess í ár. Þetta er árið sem þú þarft að taka áhættu, henda öllu Excel-dóti því í þér býr djammari. Þetta er besta árið þitt Elsku hjartans Vogin mín. Það er mjög spennandi að skoða árið hjá þér. Ég sé það að ég á svo mikið af vinum í þessu merki og ég heillast svo rosalega af karakterunum sem eru í Vog, það er kannski vegna þess að þið eruð getin á gamlárskvöld og það er einmitt ástæðan fyrir því að aðal- bomburnar af stjörnumerkjunum eru í voginni. Vogin er svo sterkur karakter með hæfileika til að skara fram úr. Þú átt eftir að fá þá virðingu sem þú sækist eftir. Þú þarft að byrja á því að hella yfir þig þeirri virðingu sem þú átt skilið því öðrum finnst þú nefnilega vera nákvæmlega eins og þér finnst þú vera. Það er magnaður kraftur yfir þessu ári hjá þér og þú verður að gæta þess að vera aðeins þolinmóðari því orkan þín vill að hlutirnir gerist strax og þú nennir ekki að vera að dútla í hlutunum. Þú ert svo sterk fjölskyldumanneskja og fjölskyldan mun skipa stóran sess á þessu ári. Það fylgir því svo mikil spenna að vera ung Vog því hún þarf alltaf að tipla svo mikið á tánum og er oft svo hrædd um að gera hlutina ekki 100 prósent. Þetta er besta ár sem þú hefur átt í mörg ár, 2017 er svo sannarlega þitt ár. Gamlir vinir koma aftur Þetta ár hefur svo merkilegan tilgang í lífi þínu. Það er komið til að heilsa þér með nýjum tæki- færum og í raun og veru er þetta tímabil nú þegar hafið. Gamlir vinir munu skjóta upp kollinum og tengingar við vinnustaði eða skóla eða eitthvað þaðan af merkilegra. Þessar persónur munu skjóta upp kollinum á hárréttum tíma og þú þarft að læra að treysta, því það er besta orkan fyrir þig á árinu 2017. Þú þarft að fara eftir því sem hjartað segir þér og gera það sem þér finnst skemmti- legt. Efnahagslega og andlega verður þú miklu sterkari þegar við lítum á þetta ár. Þetta verður ástríðufullt ár og spennandi tímabil, sama hvort þú ert í sambandi eða á lausu. Þeir sem eru að leita sér að maka þurfa að gera það nákvæmlega eins og þeir væru að leita sér að appelsínugulum buxum með vasa á hliðinni á Ali Express. Þú þarft að vita hvernig maka þú vilt og ástin í lífinu hefur greinilega ekki gengið upp ef þú ert á lausu núna. Þó að þú sért búinn að fara í gegnum mikla erfiðleika þá vinnur þú akkúrat úr þeim á þessu herrans ári 2017. Þá sérðu og sýnir þeim manni sem þú hefur að geyma meiri virðingu. Verður mikil fyrirmynd Elsku hjartans Bogmaðurinn minn. Þú ert kannski að ímynda þér að þú sért að hvíla þig eftir anna- samt ár 2016, en það verður nú eitthvað lítið um hvíld, ef hún verður einhver. Þú ert strax á nýju ári byrjaður að hugsa um hvað þú ætlar að gera meira á þessu ári en því síðasta og það munu ekki líða margir mánuðir þangað til að þú ert búinn að flækja þig í alls kyns hluti sem krefjast þess að þú sért á tánum. Ef þú vilt hafa líf þitt rosalega auðvelt þá er best að gera ekki neitt og vera ekki neitt og taka aldrei áhættu. Það er samt óalgengt að þú, kæri Bogmaður, gerir það. Ef þér finnst allt ómögulegt núna, þá gæti verið að pínulítið þunglyndi sé að læðast að þér. Á árinu geta komið upp verkefni sem þú ert spenntur fyrir en leysast ekki endilega á þeim tíma sem þú vilt. Þú munt sjá það þegar fram í sækir að það verði þér fyrir bestu. Þú átt eftir að verða mikil fyrirmynd á árinu og ólíklegustu Bogmenn eiga eftir að hysja sig upp á rassinum og koma sér í form og finnast það jafnvel bara gaman. Engin lognmolla á nýju ári Elsku hjartans Steingeitin mín. Þetta ár sem er að fæðast hjá þér verður sko aldeilis spennandi og engin lognmolla mun fylgja því. Það er alveg rosalega mikilvægt að þú standir með sjálfri þér í öllu sem þú gerir. Það eina sem gæti neglt þig niður fyrstu tvo til þrjá mánuði ársins er að þú rífir þig niður. Svo í hvert skipti sem þú ert með einhver leiðindi og skammir við sjálfa þig segðu þá: Nei! Ég ætla að standa með mér því það er lágmark að ég sé besti vinur minn. Þegar þú sérð þetta, er þetta það eina sem þú þarft að hafa að vopni til að ná þeim áfanga sem þér ber. Þú hefur þann hæfileika að vera þrautseigari en flest stjörnumerkin og það er það sem er nauðsyn- legt til velgengni. Það er líka í kortunum að þú ert búin að finna fyrir leiða eða jafnvel þreytu í sambandi við vinnu eða verkefni. Það væri betra að endurskipuleggja það sem þú varst þegar búin að ákveða að gera í ár og taka því með meiri gleði, fremur en að snúa við blaðinu og veðja á eitthvað glænýtt. Margir gætu orðið hissa á breyt- ingunum á þér en mikið er það nú skemmtilegt. Þú munt geisla af orku Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Þú ferð með svo dásamlega skemmtilega tölu inn í árið, það er talan 3 sem lýsir upp þetta tímabil fyrir þig. Hún táknar það að á komandi mánuðum verður mikið um skemmtanir, spennandi stutt viðfangs- efni og þú getur komið öllu í gegn sem þú vilt og þessi orka fylgir þér fram á vorið. Þú munt hrein- lega geisla af orku og þolir ekki neitt kjaftæði í kringum þig. Þú átt eftir að segja hlutina sem þig langar af ákveðni og þú munt segja sannleikann algjörlega umbúðalaust. Þú verður svo ánægður með þig og þetta er ár leiðtogans. Það þýðir að þú hrífur aðra með þér í auðmýkt og kemst þangað sem þú ætlar þér. Það eina sem þú þarft að vara þig á, sérstaklega þegar fer að hausta. Þú átt eftir að stökkva léttilega yfir allar hindranir og þú átt eftir að koma með skemmtilegar nýjungar sem heilla fólkið í kringum þig. Það eina sem getur bundið þig niður og valdið þér kvíða eru áhyggjur af öðru fólki. Því þú verður á svo miklu hærri tíðni en þú hefur verið á. Haustið er eins og bíómynd Þetta verður svo sannarlega merkilegt ár sem þú ert að fara í. Þetta er árið sem sýnir þér aðrar leiðir heldur en þú hefur verið að fara í lífinu. Þú þarft að vera mjög ákveðinn í því sem þig langar að gera og hryllilega hamingjusamur með hlut- verk þitt. Ef eitthvað skyggir á að þér finnist þetta, þá verða töluverðar breytingar árið 2017. Það er ekki alltaf sem maður er ánægður með breyt- ingar í fyrstu en þegar þú skoðar málið betur, þá sérð þú að það verður þér fyrir bestu. Þú átt það til að mála skrattann á vegginn jafnvel þó að það sé ekkert sem ætti að vera að pirra þig. Þannig að núna skaltu bara henda penslinum því þetta ár býður þér upp á að vera friðelskandi og leyfa lífinu að flæða án þess að stjórna öllu í kringum þig. Þú ert yfirburða greind týpa og átt það til að vera svolítið dómharður í garð sjálfs þín og ann- arra. Þú átt það líka til að rugla saman hugsunum og tilfinningum. Þú átt nóg af aðdáendum, svo baðaðu þig í því. Haustið er eins og bíómynd sem er spiluð hratt. Þú ert einhvern veginn alls staðar og í öllu. Ekki eins og það sé eitthvað nýtt en þú munt skemmta þér alveg dásamlega við það. 19. febrúar–20. mars Fiskarnir Hér eftir birtist spáin fyrsta föstudag hvers mánaðar Ár bjartsýni og hugrekkis. Þetta ár verður miklu skemmtilegra heldur en árið sem var að líða. Þú ert einhvern veginn orðinn svo miklu sterkari og jákvæðari og munt bara yppa öxlum þótt einhver leggi stein í götu þína. Við getum sagt að síðasta ár hafi skotið styrkum stoðum undir þetta ár, það skiptir að sjálfsögðu mjög miklu máli. Það er töluvert búið að vera af uppgjörum, búið að klára mörg mál og þú ert miklu ákveðnari núna heldur en þú hefur verið. Þú átt meira að segja eftir að gefa þér tíma til að hvíla þig og njóta lífsins þó að það verði að sjálfsögðu mikið að gera hjá þér. Það verður allt bara einhvern veginn svo miklu meira spennandi sem verður að gerast. Það er svo margt ótrúlegt sem á eftir að koma upp hjá þér á þessu spenn- andi ári sem fram undan er. Það er eins og þú flækist í alls konar net af uppákomum sem leiða þig í nýjar áttir. Segðu bara já ef þú ert beðinn um eitthvað (með varkárni þó í upphafi ársins) sem þú myndir venjulega ekki gera, því það mun leiða þig inn í spennandi aðstæður sem gerir lífsárið þitt svo dásamlegt. 6 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r30 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð Lífið 0 6 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D F -2 1 9 0 1 B D F -2 0 5 4 1 B D F -1 F 1 8 1 B D F -1 D D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 5 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.