Fréttablaðið - 06.01.2017, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 06.01.2017, Blaðsíða 15
EULA, YOLO V ið höfum öll hlaðið niður forriti á tölvurnar okkar eða snjallsíma. Það er ekkert mál. Það er nóg að ýta á einn takka og svo koma upp varúðargluggar og maður tikkar í box þar sem stendur: „I have read and agree to the terms“ og svo ýtir maður á install og innan skamms getur maður byrjað að njóta dýrðarinnar. Stundum þarf maður reyndar að skruna yfir skilmálana sem maður er að samþykkja en það er ekki vinnandi vegur að lesa þá alla og taka inn merkinguna. Ég er sjálfur menntaður lögfræðingur en samt dettur mér ekki í hug að lesa yfir hugbúnaðarskilmála. Hvers vegna ætti ég að gera það? Það er ekki eins og ég geti samið um þessa skilmála. Það er ekki eins og ég geti sent litlar athugasemdir til Apple og fengið einstökum ákvæðum breytt. Mikið af hástöfum Tökum sem dæmi LICENSED APP- LICATION END USER LICENSE AGREEMENT frá Apple. Þar segir í e-lið (hástafir ekki gerðir af mér): “THE LICENSED APPLICATION AND ANY SERVICES PERFORMED OR PROVIDED BY THE LICENSED APPLICATION (“SERVICES”) ARE PROVIDED “AS IS” AND “AS AVA- ILABLE”, WITH ALL FAULTS AND WITHOUT WARRANTY OF ANY KIND, AND LICENSOR HERE BY DISCLAIMS ALL WARRANT- IES AND CONDITIONS WITH RESPECT TO THE LICENSED APPL ICATION AND ANY SERV- ICES, EITHER EXPRESS, IMPLIED, OR STATUTORY, INCLUDING, BUT NOT LIMITED TO, THE IMPLIED WARRANTIES AND/OR CONDIT- IONS OF MERCHANTABILITY, OF SATISFACTORY QUALITY, OF FIT- NESS FOR A PARTICULAR PUR- POSE, OF ACCURACY, OF QUIET ENJOYMENT, AND OF NONIN- FRINGEMENT OF THIRD-PARTY RIGHTS.” Það sem ég les út úr þessu er eftirfarandi: „VIÐ HJÁ APPLE TÖKUM EKKI ÁBYRGÐ Á NEINU. ALLT SEM VIÐ GERUM ER TÚLKAÐ OKKUR Í HAG. EN EF ÞÚ KLÚÐRAR EINHVERJU GÆTIR ÞÚ VERIÐ Í MJÖG VONDUM MÁLUM. ÞÚ ERT LÍTILL LABBAKÚTUR MEÐ LITLA PUTTA AÐ PIKKA Á LÍTIÐ LYKLA- BORÐ OG SVONA LILLAMENN EINS OG ÞÚ MUNU ALDREI EIGA SÉNS Í STÓRFYRIRTÆKI EINS OG OKKUR OG VIÐ NOTUM STÓRA STAFI EINS MIKIÐ OG OKKUR SÝNIST ÞVÍ VIÐ ERUM EKKI REIÐIR BLOGGARAR EÐA VIRKIR Í ATHUGASEMDUM HELDUR MILLJARÐA DOLLARA STÓRFYR- IRTÆKI OG VIÐ GERUM ÞAÐ SEM OKKUR SÝNIST HVENÆR SEM ER TYPPI TYPPI PÍKA ÞÚ ERT LABBA- KÚTUR OG EF ÞÚ ERT ENN ÞÁ AÐ LESA ÞETTA ERTU MEÐ DRULLU Í STAÐINN FYRIR HEILA ÞVÍ ÞÚ GRÆÐIR EKKERT Á ÞVÍ OG ÞETTA HELDUR ÁFRAM Í 40 BLAÐSÍÐUR ÞANNIG AÐ ÞÚ GETUR HÆTT AÐ LESA NÚNA.“ Við eigum bara eitt líf Ég veit ekkert hvort ég er að semja af mér eða ekki. Ég geri bara ráð fyrir að ég sé að því. Lífið er of stutt til að semja um hluti við Apple eða Amazon. Einhver merkur hugsuður sagði að skattar og dauði væri það eina örugga í lífinu og líklega má Bergur Ebbi Í dag bæta svona samningum í upptaln- inguna. Þeir eru kallaðir EULAs, End User License Agreement, sem er hálf óskiljanleg orðaruna í sjálfu sér. Flestir sem lesa þetta hafa sam- þykkt tugi slíkra samninga, án þess að hafa gefið því gaum. Þetta er samt ákveðin synd því það er gefandi að semja um hluti. Eitt það besta sem hægt er að gera fyrir sjálfstraustið er að semja um hagsmuni sína við aðrar manneskj- ur. Þess vegna er fólk sem stundar viðskipti montið og sjálfsöruggt. Það kann að semja. Það gengur í gegnum lífið og sér umsemjanlega díla hvort sem það er að koma skoti ofan í félaga sinn við barinn eða fresta afmæli barna sinna þar til utanlandsferðinni er lokið. Ég öfunda fólk sem stundar viðskipti og ég segi þetta af einlægni. Ég tel viðskipti vera manninum holl. Að fá að semja um hagsmuni sína er ekki endilega frelsið sjálft, en það getur haft úrslitaþýðingu um hvort fólk hafi heilsteypta sjálfsmynd eða ekki. Það er ekki nóg að fá öll gæðin ef maður veit ekkert um skilmálana að baki þeim. En ég meina. You Only Live Once. Ég tilheyri kynslóð sem er dæmd til að segja YOLO og sam- þykkja EULAs. Lífið er of stutt til að vera kverúlant. Hvað lækaðir þú mikið af dóti í dag? En hvað með allt hitt sem við samþykkjum? Hvað með öll lækin og samþykktar-kvittanirnar á netinu? Hversu oft höfum við ritað nafn okkar á undirskriftasafnanir sem við skiljum ekki til fulls? Ég veit til dæmis ekkert hvort ég var í alvöru andsnúinn miðlægum gagnagrunni í heilbrigðiskerfinu þó ég hafi, að mig minnir fyrir mörgum árum síðan, skrifað undir beiðni þess efnis að ég yrði fjar- lægður úr honum. Ég gerði það eiginlega bara af því bara. Af því að það var stemning fyrir því þá stundina. Daglega læka ég tugi mál- efna án þess að skilja neitt og án þess að nein ábyrgð eða merking skapist. EULA, YOLO. Þetta er sami hluturinn. Með þessum rökum hef ég aldrei látið verða af því að skrá mig úr Þjóðkirkjunni. Ég lít þannig á málin að Þjóðkirkjan hafi verið EULA samfélagsins og foreldrar mínir hafi smellt á „I have read and agree to the terms“ fyrir löngu síðan og það sé ekki mitt að semja mig frá því. You Only Live Once virkar nefnilega í báðar áttir. Ég var skírður inn í þetta og ætla bara að deyja í þessu líka. Hvað tekur ann- ars við ef ég segi mig úr Þjóðkirkj- unni? Þá er ég ekki skilmálalaus. Guð hjálpi mér. Ég hef prinsip. Ég er plebbi sem lækar allt. EULA, YOLO. Pælið í þessu gott fólk. Þetta er thinker. Þetta er samt ákveðin synd því það er gefandi að semja um hluti. Eitt það besta sem hægt er að gera fyrir sjálfs- traustið er að semja um hagsmuni sína við aðrar manneskjur. Þess vegna er fólk sem stundar viðskipti montið og sjálfsöruggt. Það kann að semja. Fulltingi flyst á Höfðabakka 9 Fulltingi er framsækin og traust lögmannsstofa sem veitir einstaklingum þjónustu á sviði skaðabóta og vátryggingaréttar og er stærsta stofan hér á landi sem sérhæfir sig á þessu sviði. Hlutverk fyrirtækisins er að leysa vel úr málum fólks, ráða því heilt og stuðla að því að hver og einn fái þær bætur sem hann á rétt á. Sérfræðingar okkar hafa margir hverjir áratuga reynslu í meðferð slysa- og skaðabótamála. Föstudaginn 6. janúar flytjum við hjá Lögmannsstofunni Fulltingi slf aðsetur okkar að Höfðabakka 9, efstu hæð. Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum okkar í nýjum húsakynnum. Gott aðgengi er að húsinu og næg bílastæði. Verið velkomin! s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15F Ö s T u d a g u R 6 . j a n ú a R 2 0 1 7 0 6 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D E -F 0 3 0 1 B D E -E E F 4 1 B D E -E D B 8 1 B D E -E C 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 5 6 s _ 5 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.