Fréttablaðið - 06.01.2017, Qupperneq 50
Spáin gildir fyrir árið 2017
Lengri útgáfa af stjörnuspá á visir.is/SiggaKlingNýársspá Siggu Kling
21. mars–19. apríl
Hrúturinn
20. apríl–20. maí
Nautið
21. maí–20. júní
Tvíburinn Krabbinn
23. júlí–22. ágúst
Ljónið
23. ágúst–22. september
Meyjan
23. september–22. október
Vogin
23. október–21. nóvember
Sporðdrekinn
22. nóvember–21. desember
Bogmaðurinn
22. desember–19. janúar
Steingeitin
20. janúar–18. febrúar
Vatnsberinn
21. júní–22. júlí
Ár ástarinnar
Þú ert að fara inn á sömu orku og landið okkar,
Ísland. Lýðveldið okkar á afmæli 17. júní og Ísland
er að fara inn í dásamlegt ár fjölskyldu og sam-
einingar og það er bara akkúrat tengingin sem
á líka við þig, elsku Naut. Þetta ár einkennist af
ást, magnaðri vináttu og þú átt eftir að sjá miklu
betur hvað skiptir máli. Þetta er ár regnbogans, og
þú nærð mestum árangri þegar þú sýnir auðmýkt
og þú ert svo sannarlega búið að læra það. Ég
myndi segja það, hjartað mitt, ef þú ert á lausu
og ert eitthvað að spá í ástina að þá sé þetta árið
sem þú átt fótum fjör að launa af því að ótrú-
legasta fólk verður skotið í þér. Ef þú ert að gera
of mikið eða vinna of mikið þá muntu finna leið
til að gera vinnu eða skólatímana auðveldari, þá
sérstaklega með haustinu. Það er oft sagt um þig
að þú sért kletturinn, en í ár ertu fjall og þú hefur
aðdráttarafl Esjunnar. Þetta gæti orðið svolítið
erfitt fyrir fáskiptin Naut sem eru ekkert hrifin af
athygli en breytingar eru þeim týpum bara góðar
og jafnvel hollar. Þú átt það til að detta í dálitla
þráhyggju og þá aftengir þú þig við ár regnbogans.
Mun auðveldara ár.
Elsku hjartans Tvíburinn minn. Þetta er ár upp-
skeru án þess að þú þurfir svo mikið að hafa fyrir
því. Síðasta ár hefur liðið svolítið í kappi og jafnvel
með svolitlum kvíða en þú færð hlutina miklu
auðveldlegar upp í hendurnar á þessu ári og sér-
staklega mun mars heilsa þér fallega. Það verður
mikið að gera hjá þér en þú hefur minna fyrir
hlutunum heldur en á síðasta ári. Þar af leiðandi
getur þú sleppt stressinu: Ég treysti því að allt fari
vel. Því ekkert er fallegra en Tvíburi sem slakar á
og leyfir lífinu að flæða. Það sem ég sagði við þig
í upphafi, að þetta verði auðveldara ár heldur en í
fyrra, það á líka við fjármálin en peningar koma til
þín auðveldlega. Það er mjög gott fyrir þig, hjartað
mitt, að ákveða hvað þú þarft mikið af peningum
í vikulaun, því þú sendir skilaboð til alheimsins og
hann mun færa þér það sem þér finnst sanngjarnt
en þú verður að trúa því. Þetta sumar verður rosa-
legt og eins og þú sért á festivali frá enda maí þar
til í lok ágúst. Þú blómstrar, hlærð og dansar og
vaknar jafnvel þar sem þú vilt ekki vakna. Því þú
ert 1000% sumartýpan og sumarið elskar þig.
Litríkt og gott ár
Elsku spennandi Krabbinn minn. Þetta ár lítur út
hjá þér eins og Rammagerðin lítur út á jólunum.
Þú ert að fara inn í litríkasta ár í langan tíma. Þetta
verður líka ár þar sem ýmsar torfærur verða á
vegi þínum en það mun bara auka þér kraft og
þú munt setja í 5. gírinn og komast yfir það sem
þú þarft. Fyrri partinn af árinu ertu í alls kyns
uppbyggingu. Spekúlerar í svo mörgu, lífinu,
dauðanum og hamingjunni. Þú finnur út á þessu
tímabili hvað hentar þér best til þess að hafa
þann kraft sem þetta ár mun svo sannarlega sýna
þér. Lífsgleði er það sem einkennir þetta ár og er
það ekki í raun og veru það eina sem við viljum?
Þú ert, elskan mín, tilfinningaríkasta merkið en
það verður mjög lítið af drama í kringum þig og
miklu meira af spennu sem byggist á jákvæðni
og krafti til að sjá hlutina í réttu ljósi, þú átt eftir
að sýna öðru fólki mikla sanngirni. Þetta ár hefur
tákn eilífðarinnar sem lítur út eins og átta á hlið
og það eina sem þú þarft að gera er að tengja þig
við fólk. Þora að lifa, því að lífið er að bjóða þér í
skemmtiferð sem er líka dálítill hasar og heilmikil
rómantík og þessi kraftur mun aukast.
Ár hreinsunar
Elsku fallega Ljónið mitt. Þetta er ár hreinsunar,
nákvæmlega eins og maður setur bara skítug föt í
hreinsun, þau koma eins og ný til baka. Þannig er
þema þessa árs hjá þér, hjartað mitt. Þú færð svo
sterka innri sýn á hvað er að hindra þig og hvernig
þú getur leyst það. Þetta er ár þar sem mun verða
mikill agi hjá þér í svo mörgu. Þú finnur styrk þinn
aukast eftir því sem líður á árið. Fyrri parturinn
af þessu ári verður töluvert hraðfleygur. Það er
ekki endilega það sem hentar þér best, þó að þú
vinnir mjög vel undir stressi eða álagi. Þú átt eftir
að tímasetja hlutina betur og vera með það á
hreinu að eina manneskjan sem þú getur stólað
á, ert þú. Þegar þú sérð þetta eykst þér krafturinn.
Þegar líða tekur á árið þá verða jafnvægi, ró, friður
og öryggi sterkustu orðin sem ég get sent þér. Þú
verður búið að vinna mikið í sjálfu þér og ekkert
er fegurra en Ljón sem er ánægt með sjálft sig.
Hafðu það í huga að það er engum að kenna og
engum að þakka hver þú ert. Heldur skapar þú
orkuna þína með því að trúa á að þú getir þetta
og getir hitt sem þú vilt og sért það sem þú vilt
vera og leyfir þér að vera montið af sjálfu þér.
Breytingar fram undan
Þú ert alltaf svo töff með mikla útgeislun og lítur
svo vel út. Þú sendir svo mikla hlýju í gegnum
fallega brosið þitt. Þó að þér líði jafnvel ekki
ofboðslega vel. Það er svo mikilvægt að þú
mætir þeim skilningi að þú getir verið þú sjálf
heima hjá þér og leyft þér að fara í smá fýlu ef
þig langar. Þú ert að fara inn í ótrúlega merkilegt
ár sem er upphafið á tíu ára tímabili og mun gera
undirstöður þínar mjög sterkar. Það eru miklar
líkur á flutningum, breytingum á vinnu jafnvel
þótt það gæti verið innan vinnustaðarins. Þetta
er allt til batnaðar, vegna þess að þú ert að fara
inn í nýtt tímabil. Þér á eftir að ganga mjög vel
í ástamálunum í ár en þú skalt steinhætta að
reyna að sálgreina maka þinn og leyfa bara lífinu
að flæða í blessaðri ástinni. Þú hefur kraft til að
breyta og þú færð tækifæri til þess í ár. Þetta er
árið sem þú þarft að taka áhættu, henda öllu
Excel-dóti því í þér býr djammari.
Þetta er besta árið þitt
Elsku hjartans Vogin mín. Það er mjög spennandi
að skoða árið hjá þér. Ég sé það að ég á svo mikið
af vinum í þessu merki og ég heillast svo rosalega
af karakterunum sem eru í Vog, það er kannski
vegna þess að þið eruð getin á gamlárskvöld
og það er einmitt ástæðan fyrir því að aðal-
bomburnar af stjörnumerkjunum eru í voginni.
Vogin er svo sterkur karakter með hæfileika til að
skara fram úr. Þú átt eftir að fá þá virðingu sem
þú sækist eftir. Þú þarft að byrja á því að hella yfir
þig þeirri virðingu sem þú átt skilið því öðrum
finnst þú nefnilega vera nákvæmlega eins og þér
finnst þú vera. Það er magnaður kraftur yfir þessu
ári hjá þér og þú verður að gæta þess að vera
aðeins þolinmóðari því orkan þín vill að hlutirnir
gerist strax og þú nennir ekki að vera að dútla í
hlutunum. Þú ert svo sterk fjölskyldumanneskja
og fjölskyldan mun skipa stóran sess á þessu ári.
Það fylgir því svo mikil spenna að vera ung Vog
því hún þarf alltaf að tipla svo mikið á tánum og
er oft svo hrædd um að gera hlutina ekki 100
prósent. Þetta er besta ár sem þú hefur átt í mörg
ár, 2017 er svo sannarlega þitt ár.
Gamlir vinir koma aftur
Þetta ár hefur svo merkilegan tilgang í lífi þínu.
Það er komið til að heilsa þér með nýjum tæki-
færum og í raun og veru er þetta tímabil nú þegar
hafið. Gamlir vinir munu skjóta upp kollinum og
tengingar við vinnustaði eða skóla eða eitthvað
þaðan af merkilegra. Þessar persónur munu
skjóta upp kollinum á hárréttum tíma og þú þarft
að læra að treysta, því það er besta orkan fyrir þig
á árinu 2017. Þú þarft að fara eftir því sem hjartað
segir þér og gera það sem þér finnst skemmti-
legt. Efnahagslega og andlega verður þú miklu
sterkari þegar við lítum á þetta ár. Þetta verður
ástríðufullt ár og spennandi tímabil, sama hvort
þú ert í sambandi eða á lausu. Þeir sem eru að
leita sér að maka þurfa að gera það nákvæmlega
eins og þeir væru að leita sér að appelsínugulum
buxum með vasa á hliðinni á Ali Express. Þú
þarft að vita hvernig maka þú vilt og ástin í lífinu
hefur greinilega ekki gengið upp ef þú ert á lausu
núna. Þó að þú sért búinn að fara í gegnum mikla
erfiðleika þá vinnur þú akkúrat úr þeim á þessu
herrans ári 2017. Þá sérðu og sýnir þeim manni
sem þú hefur að geyma meiri virðingu.
Verður mikil fyrirmynd
Elsku hjartans Bogmaðurinn minn. Þú ert kannski
að ímynda þér að þú sért að hvíla þig eftir anna-
samt ár 2016, en það verður nú eitthvað lítið um
hvíld, ef hún verður einhver. Þú ert strax á nýju
ári byrjaður að hugsa um hvað þú ætlar að gera
meira á þessu ári en því síðasta og það munu ekki
líða margir mánuðir þangað til að þú ert búinn
að flækja þig í alls kyns hluti sem krefjast þess að
þú sért á tánum. Ef þú vilt hafa líf þitt rosalega
auðvelt þá er best að gera ekki neitt og vera ekki
neitt og taka aldrei áhættu. Það er samt óalgengt
að þú, kæri Bogmaður, gerir það. Ef þér finnst
allt ómögulegt núna, þá gæti verið að pínulítið
þunglyndi sé að læðast að þér. Á árinu geta
komið upp verkefni sem þú ert spenntur fyrir en
leysast ekki endilega á þeim tíma sem þú vilt. Þú
munt sjá það þegar fram í sækir að það verði þér
fyrir bestu. Þú átt eftir að verða mikil fyrirmynd á
árinu og ólíklegustu Bogmenn eiga eftir að hysja
sig upp á rassinum og koma sér í form og finnast
það jafnvel bara gaman.
Engin lognmolla á nýju ári
Elsku hjartans Steingeitin mín. Þetta ár sem er
að fæðast hjá þér verður sko aldeilis spennandi
og engin lognmolla mun fylgja því. Það er alveg
rosalega mikilvægt að þú standir með sjálfri þér
í öllu sem þú gerir. Það eina sem gæti neglt þig
niður fyrstu tvo til þrjá mánuði ársins er að þú
rífir þig niður. Svo í hvert skipti sem þú ert með
einhver leiðindi og skammir við sjálfa þig segðu
þá: Nei! Ég ætla að standa með mér því það er
lágmark að ég sé besti vinur minn. Þegar þú sérð
þetta, er þetta það eina sem þú þarft að hafa
að vopni til að ná þeim áfanga sem þér ber. Þú
hefur þann hæfileika að vera þrautseigari en flest
stjörnumerkin og það er það sem er nauðsyn-
legt til velgengni. Það er líka í kortunum að þú
ert búin að finna fyrir leiða eða jafnvel þreytu í
sambandi við vinnu eða verkefni. Það væri betra
að endurskipuleggja það sem þú varst þegar
búin að ákveða að gera í ár og taka því með meiri
gleði, fremur en að snúa við blaðinu og veðja á
eitthvað glænýtt. Margir gætu orðið hissa á breyt-
ingunum á þér en mikið er það nú skemmtilegt.
Þú munt geisla af orku
Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Þú ferð með
svo dásamlega skemmtilega tölu inn í árið, það
er talan 3 sem lýsir upp þetta tímabil fyrir þig.
Hún táknar það að á komandi mánuðum verður
mikið um skemmtanir, spennandi stutt viðfangs-
efni og þú getur komið öllu í gegn sem þú vilt og
þessi orka fylgir þér fram á vorið. Þú munt hrein-
lega geisla af orku og þolir ekki neitt kjaftæði í
kringum þig. Þú átt eftir að segja hlutina sem þig
langar af ákveðni og þú munt segja sannleikann
algjörlega umbúðalaust. Þú verður svo ánægður
með þig og þetta er ár leiðtogans. Það þýðir
að þú hrífur aðra með þér í auðmýkt og kemst
þangað sem þú ætlar þér. Það eina sem þú þarft
að vara þig á, sérstaklega þegar fer að hausta. Þú
átt eftir að stökkva léttilega yfir allar hindranir og
þú átt eftir að koma með skemmtilegar nýjungar
sem heilla fólkið í kringum þig. Það eina sem
getur bundið þig niður og valdið þér kvíða eru
áhyggjur af öðru fólki. Því þú verður á svo miklu
hærri tíðni en þú hefur verið á.
Haustið er eins og bíómynd
Þetta verður svo sannarlega merkilegt ár sem
þú ert að fara í. Þetta er árið sem sýnir þér aðrar
leiðir heldur en þú hefur verið að fara í lífinu. Þú
þarft að vera mjög ákveðinn í því sem þig langar
að gera og hryllilega hamingjusamur með hlut-
verk þitt. Ef eitthvað skyggir á að þér finnist þetta,
þá verða töluverðar breytingar árið 2017. Það er
ekki alltaf sem maður er ánægður með breyt-
ingar í fyrstu en þegar þú skoðar málið betur, þá
sérð þú að það verður þér fyrir bestu. Þú átt það
til að mála skrattann á vegginn jafnvel þó að það
sé ekkert sem ætti að vera að pirra þig. Þannig
að núna skaltu bara henda penslinum því þetta
ár býður þér upp á að vera friðelskandi og leyfa
lífinu að flæða án þess að stjórna öllu í kringum
þig. Þú ert yfirburða greind týpa og átt það til að
vera svolítið dómharður í garð sjálfs þín og ann-
arra. Þú átt það líka til að rugla saman hugsunum
og tilfinningum. Þú átt nóg af aðdáendum, svo
baðaðu þig í því. Haustið er eins og bíómynd sem
er spiluð hratt. Þú ert einhvern veginn alls staðar
og í öllu. Ekki eins og það sé eitthvað nýtt en þú
munt skemmta þér alveg dásamlega við það.
19. febrúar–20. mars
Fiskarnir
Hér eftir birtist spáin
fyrsta föstudag hvers mánaðar
Ár bjartsýni og hugrekkis.
Þetta ár verður miklu skemmtilegra heldur en
árið sem var að líða. Þú ert einhvern veginn
orðinn svo miklu sterkari og jákvæðari og munt
bara yppa öxlum þótt einhver leggi stein í götu
þína. Við getum sagt að síðasta ár hafi skotið
styrkum stoðum undir þetta ár, það skiptir að
sjálfsögðu mjög miklu máli. Það er töluvert búið
að vera af uppgjörum, búið að klára mörg mál og
þú ert miklu ákveðnari núna heldur en þú hefur
verið. Þú átt meira að segja eftir að gefa þér tíma
til að hvíla þig og njóta lífsins þó að það verði að
sjálfsögðu mikið að gera hjá þér. Það verður allt
bara einhvern veginn svo miklu meira spennandi
sem verður að gerast. Það er svo margt ótrúlegt
sem á eftir að koma upp hjá þér á þessu spenn-
andi ári sem fram undan er. Það er eins og þú
flækist í alls konar net af uppákomum sem leiða
þig í nýjar áttir. Segðu bara já ef þú ert beðinn um
eitthvað (með varkárni þó í upphafi ársins) sem
þú myndir venjulega ekki gera, því það mun leiða
þig inn í spennandi aðstæður sem gerir lífsárið
þitt svo dásamlegt.
6 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r30 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð
Lífið
0
6
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
F
-2
1
9
0
1
B
D
F
-2
0
5
4
1
B
D
F
-1
F
1
8
1
B
D
F
-1
D
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
5
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K