Fréttablaðið - 06.01.2017, Side 16
Handbolti Íslenska handbolta-
landsliðið byrjar lokaundirbúning
sinn vel fyrir HM í Frakklandi
þrátt fyrir skakkaföll, mikla endur-
nýjun og meiðsli lykilmanna.
Þriggja marka sigur á HM-liði
Egypta, 30-27, í fyrsta leik Bygma-
æfingamótsins í gær gefur góð fyrir-
heit fyrir komandi mót þar sem við
Íslendingar munum sjá mörg ný
andlit í aðalhlutverkum hjá liðinu.
Aron Pálmarsson er heima á
Íslandi og margir reynsluboltanna
voru lengst af á bekknum í leiknum
í gær. Það skipti ekki máli því lands-
liðsþjálfarinn Geir Sveinsson henti
ungu strákunum út í djúpu laugina
og fékk mörg jákvæð svör frá fram-
tíðarmönnum liðsins.
„Við tökum átján leikmenn hing-
að út til þess að prófa þá. Ef ég spila
þeim ekki í þessum leikjum, hvenær
á ég þá að sjá þá? Það er stór munur
á milli æfinga og leikja. Við vildum
sjá viðbrögð manna,“ sagði Geir
Sveinsson eftir leikinn.
Gott leikhlé eftir tíu mínútur
Byrjunin lofaði vissulega ekki góðu.
Geir þurfti að taka leikhlé eftir
aðeins tíu mínútur en íslenska liðið
var þá búið að fá á sig átta auðveld
mörk og komið fjórum mörkum
undir, 8-4.
„Eftir brösuga byrjun þá var ég
ánægður með hvernig liðið kom
til baka eftir það. Þeir komu sterkir
til leiks og það var góður stígandi í
þessu. Ég er ánægður með sigurinn,“
sagði Geir og hann þurfti að tala
menn til.
„Við vorum komnir með einhver
átta eða níu mörk á okkur eftir tíu
mínútur og það hefði hugsanlega
verið hægt að bregðast fyrr við
miðað við það hvernig þetta var að
þróast,“ sagði Geir.
Aron Rafn Eðvarðsson kom
öflugur inn í íslenska markið
og Janus Daði Smárason keyrði
upp hraðann með ákefð sinni
en hann gaf með því tóninn.
Íslenska liðið minnkaði muninn
í eitt mark fyrir hálfleik, 14-13, og
náði síðan forystunni í fyrsta sinn
eftir 5-1 kafla um miðjan seinni
hálfleik.
Það var gaman að sjá kraftinn og
hungrið í íslenska liðinu í seinni
hálfleiknum sem liðið vann á end-
anum með fjögurra marka mun,
17-13. Sigur íslenska liðsins var
síðan nokkuð öruggur.
Ánægður með ungu strákana
„Við náðum að snúa þessu við og
ég var einstaklega ánægður með
það. Ég var líka sérstaklega ánægð-
ur með frammistöðu margra af
ungu strákunum sem komu ferskir
inn í þetta. Menn virkilega vildu og
gáfu í þetta. Það er margt jákvætt
sem við getum tekið út úr þessum
leik. Það er samt margt sem þarf að
vinna með og bæta. Aðalatriðið er
að menn séu áræðnir, þori og láti
vaða. Strákarnir gerðu það,“ sagði
Geir.
Ómar Ingi Magnússon og Arnar
Freyr Arnarsson eru tveir ungir leik-
menn sem minntu líka vel á sig í gær
en Ómar Ingi skoraði sex mörk og
nýtti vítin sín vel. Arnar Freyr fisk-
aði tvö víti og var að komast í færin
á línunni þótt nýtingin hefði mátt
vera betri.
Ólafur Guðmundsson tók mikla
ábyrgð í fjarveru lykilmanna og
skilaði fínum leik. Hann gerði fullt
af mistökum en missti aldrei móð-
inn sem var mjög ánægjulegt að sjá.
Bjarki Már Elísson kom inn í vinstra
hornið fyrir Guðjón Val Sigurðsson
í hálfleik og sýndi að við eigum tvo
háklassa vinstri hornamenn.
Allir inná nema Bjarki
Geir Sveinsson var ánægður með
marga leikmenn íslenska liðsins
í gær. „Bjarki Gunnarsson var sá
eini sem fór ekkert inn á en annars
náðum við að keyra á sautján leik-
mönnum sem er ansi mikið í einum
leik. Það er ánægjulegt að það skyldi
takast. Við eigum eftir að skera
niður um tvo leikmenn og þá þurfa
menn að sýna karakter og frammi-
stöðu inni á vellinum. Það var sterkt
að sjá marga gera það,“ sagði Geir.
Íslenska landsliðið mætir Ung-
verjum í dag en lokaleikurinn er
síðan á móti Dönum á sunnudag-
inn. Danir, undir stjórn Guðmundar
Guðmundssonar, unnu þriggja
marka sigur á Ungverjalandi í gær.
ooj@frettabladid.is
Í dag
19.45 West Ham - Man. City Sport 2
19.45 Tindastóll - KR Sport
22.00 Körfuboltakvöld Sport
23.00 Tourn. of Champions Golfst.
03.30 NBA: Grizzlies-Warriors Sport
19.15 Þór Þ.- Grindavík Þorláksh.
20.00 Tindastóll - KR Sauðárkrókur
HAFA SokkIð SEx SInnUM Í
SÍkInU á SÍðUStU FIMM áRUM
Jón Arnór Stefánsson snýr aftur
í lið kR í kvöld og það á einum
erfiðasta útivelli kR-liðsins síðustu
fimm árin.
Þetta verður fyrsti leikur Jóns með
kR í sjö ár, átta mánuði og 24 daga
eða síðan að hann varð Íslands-
meistari eftir eins stigs sigur í
oddaleik á móti Grindavík 13. apríl
2009.
kR hefur ekki unnið deildarleik á
Sauðárkróki síðan 25. febrúar 2011
og aðeins unnið einn af síðustu sjö
leikjum sínum í Síkinu. kR-liðið
hefur reyndar bara tapað þessum
sex leikjum með samtals 30 stigum
eða 5 stigum að meðaltali í leik.
kR-ingar eiga þó frá-
bærar minningar
frá eina sigurleik
sínum í Síkinu
undanfarna 66
mánuði en kR-
liðið tryggði
sér þar
Íslands-
meist-
ara-
titilinn
í apríl
2015.
Ísland - Egyptaland
30 -27 (13-14)
Mörk Íslands (Skot): Ómar Ingi
Magnússon 6/4 (10/4), Ólafur Guð-
mundsson 6 (11), Bjarki Már Elísson 5
(6), Guðjón Valur Sigurðsson 5 (7/1),
Arnór Þór Gunnarsson 2 (2), Janus
Daði Smárason 2 (4), Gunnar Steinn
Jónsson 1 (1), Rúnar Kárason 1 (3),
Ásgeir Örn Hallgrímsson 1 (4), Arnar
Freyr Arnarsson 1 (4), Arnór Atlason
(1), Vignir Svavarsson (2),
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson
17/1 (36/4, 47%), Björgvin Páll Gúst-
avsson 1 (9, 11%).
Hraðaupphlaup: 10 (Bjarki Már 3,
Guðjón Valur 2, Ómar Ingi, Ólafur G.,
Arnór Þór, Janus Daði, Ásgeir Örn).
Fiskuð víti: 5 (Janus Daði 2, Arnar
Freyr 2, Gunnar Steinn)
Utan vallar: 4 mínútur.
Aðalatriðið er að
menn séu áræðnir,
þori og láti vaða. Strákarnir
gerðu það,
Geir Sveinsson,
þjálfari íslenska
handboltalands-
liðsins.
Ungu strákana langar á HM
Íslenska handboltalandsliðið vann þriggja marka sigur á Egyptum í gær í fyrsta undirbúningsleik fyrir HM
í Frakklandi. Liðið kom sterkt til baka eftir slaka byrjun. Ungu strákarnir mættu mjög grimmir til leiks.
Ísland fékk á sig 9 mörk á
fyrstu 11 mínútunum en
síðan bara 18 mörk á síðustu
49 mínútunum.
Leikir KR í Síkinu frá 2011
3. mars 2016 - Tindastóll vann 91-85
29. apríl 2015 - KR vann 88-81 (Úkep.)
23. ap. 2015 - Tindast. vann 80-72 (Ú.)
22. jan. 2015 - Tindastóll vann 81-78
17. jan. 2013 - Tindastóll vann 72-67
5. feb. 2012 - Tindast. vann 89-86 (bk.)
8. des. 2011 - Tindastóll vann 99-94
Ólafur Guðmundsson
gaf flestar stoðsendingar eða
3 en þeir Janus Daði og
Ásgeir Örn voru með þrjár.
6 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S t U d a G U r16 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
Stjörnumenn voru án Bandaríkjamannsins síns en höfðu Tómas
Besti maður vallarins Tómas Heiðar Tómasson átti frábæran leik með toppliði Stjörnunnar í sigri á Þór frá Akureyri í Garðabænum í gærkvöldi.
Tómas var stigahæstur í liði Stjörnunnar með 24 stig en hann hitti úr 6 af 9 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Þórsarar náðu ekki að stoppa
Tómas í gær en hér eru þrír þeirra, George Beamon, Danero Thomas og Tryggvi Snær Hlinason, búnir að umkringja hann. FRéTTABLAðið/eRNiR
Keflavík - Njarðvík 80-73
Stigahæstir: Amin Stevens 25/17 frák.,
Magnús Már Traustason 22, Reggie Dupree
9, Hörður Axel Vilhjálmsson 6/9 stoðs.,
Guðmundur Jónsson 6/4 frák./5 stoðs.-
Logi Gunnarsson 28, Jeremy Martez Atkin-
son 21/11 frák., Björn Kristjánsson 15.
Stjarnan - Þór Ak. 92-77
Stigahæstir: Tómas Heiðar Tómasson 24/6
frák./7 stoðs., Justin Shouse 21/7 stoðs.,
Hlynur Elías Bæringsson 13/12 frák./9
stoðs., Eysteinn Bjarni Ævarsson 10 - Darrel
Lewis 21, Danero Thomas 18/9 frák./5
stoðs., Tryggvi Snær Hlinason 10/6 frák./3
varin, George Beamon 10.
Skallagr. - Haukar 104-102
Stigahæstir: Flenard Whitfield 34/15 frá.,
Sigtryggur Arnar Björnsson 22, Magnús
Þór Gunnarsson 18/5 stoðs., Darrell Flake
10/6 stoðs., Eyjólfur Ásberg Halldórsson 9,
Davíð Ásgeirsson 9 - Sherrod Nigel Wright
48/7 frák./5 stoðs., Haukur Óskarsson 20,
Hjálmar Stefánsson 19/8 frák.
Snæfell - ÍR 82-98
Stigahæstir: Andrée Fares Michelsson 26,
Snjólfur Björnsson 19/7 frák./5 stoðs.,
Sveinn Arnar Davíðsson 15/10 frá - Svein-
björn Claessen 19/8 frák., Matthías Orri
Sigurðarson 18/8 frák./10 stoðs., Kristinn
Marinósson 18/7 frák., Quincy Hankins-
Cole 17/10 frák./5 stoðs
efri
Stjarnan 20
Tindastóll 18
KR 16
Grindavík 14
Skallagrímur 12
Keflavík 12
Neðri
Þór Ak. 12
ÍR 10
Þór Þ. 10
Njarðvík 8
Haukar 8
Snæfell 0
Nýjast
Dominos-deild karla
Sport
0
6
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
E
-F
5
2
0
1
B
D
E
-F
3
E
4
1
B
D
E
-F
2
A
8
1
B
D
E
-F
1
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
5
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K