Fréttablaðið - 06.01.2017, Qupperneq 26
Nemendur sem hafa lokið þessu
námi geta bætt við sig 2-3 önnum
erlendis og lokið þannig BS-gráðu.
Tækniskólinn er með samning
við skóla annars vegar í Kaup-
mannahöfn fyrir Vefskólann og
hins vegar Englandi fyrir Marg-
miðlunarskólann. Þessir skólar
hafa verið að meta diploma-nám-
ið hér að fullu upp í BS-gráðu hjá
sér. Einnig eru þessir skólar með
masters nám í boði ef vilji er til að
fara enn lengra.
Vefskólinn – nýtt tækifæri
Jónatan Arnar Örlygsson er verk-
efnastjóri í Vefskólanum sem
er nýtt nám í Tækniskólanum.
Fyrstu nemendur verða útskrif-
aðir í vor. Miklir atvinnumögu-
leikar eru í þessari grein. Jón-
atan segir námið byggt á kennslu
í vefþróun með áherslu á viðmóts-
forritun. „Nemendur sem sækja í
námið þurfa að hafa stúdentspróf
og einhvern tölvubakgrunn, annað
hvort í grafískri hönnun eða forrit-
un. Við höfum reyndar líka feng-
ið nemendur með brennandi áhuga
á faginu sem hafa staðið sig vel.
Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
Í náminu þarf nemandinn að vera
mjög skapandi og hafa gott auga
fyrir útliti. Mikilvægt er að lausn-
ir sem búnar eru til á vefnum séu
notendavænar og einfaldar,“ segir
Jónatan en námstíminn er fjórar
annir. Vefskólinn er í samstarfi við
skóla í Kaupmannahöfn um fram-
haldsnám. Með því að bæta við
sig einu og hálfu ári fær nemandi
bachelor- gráðu.
Nemendur sem sótt hafa nám
í Vefskólanum eru á aldrinum
20-40 ára. Meðalaldur er 25-26
ára. Námið er að miklu leyti verk-
legt og mörg verkefni eru raun-
veruleg en skólinn er í náinni sam-
vinnu við atvinnulífið. „Nemendur
þurfa að leysa ákveðin verkefni en
um leið að kynna sér fræðin. Að
námi loknu eru fjölbreyttir starfs-
möguleikar hjá hinum ýmsu fyrir-
tækjum. Þetta er fyrsta sérhæfða
námið á Íslandi sem býður upp
á svona sérhæfingu. Hingað til
hefur verið boðið upp á tölvunar-
fræði eða grafíska hönnun. Við
tökum það besta úr báðum þessum
greinum. Sumir nemendur stefna á
að verða viðmótshönnuðir á meðan
aðrir vilja verða viðmótsforritar-
ar,“ segir Jónatan. Ásókn er mikil
í námið og Jónatan hvetur áhuga-
sama til að vanda umsóknina vel
og láta verkefni fylgja með henni.
Margmiðlunarskóli fyrir frjóa
hugsun
Halldór Bragason er fagstjóri í
Margmiðlunarskólanum. Námið
er orðið gamalgróið og skólinn
hefur útskrifað marga nemendur
sem hafa ýmist farið í þrívíddar-
vinnslu, tækni- og sjónbrellur fyrir
kvikmyndagerð eða tölvuleikja-
og teiknimyndagerð. Skólinn er í
miklum samskiptum við atvinnu-
lífið, til dæmis CCP, RVX og fleiri
stóra aðila.
„Nemendur skiptast í tvennt,
annars vegar þá sem hafa áhuga á
tölvuleikjum eða annarri afþrey-
ingu í tölvum og síðan er kvik-
myndahópurinn sem er í brellun-
um,“ segir Halldór. Bæði kynin
sækja í námið sem er tvö ár. Nem-
endur þurfa stúdentspróf en þeir
útskrifast síðan með diplóma.
Skólinn er í samvinnu við Art Uni-
versity of Bournemouth í Bretlandi
um framhaldsnám sem margir
nýta sér.
Halldór segir að nemendur fái
atvinnu bæði hér á landi og erlend-
is eftir útskrift. „Þessi markaður
hefur verið að stækka á Íslandi og
atvinnutækifærum hefur fjölgað.
Margir Íslendingar eru að gera það
gott í þessum bransa, bæði í kvik-
myndabrellunum og tölvuleikj-
um.“ segir hann. „Skólinn legg-
ur áherslu á að útskrifa nemendur
með frjóa hugsun sem eru tilbún-
ir að fara nýjar leiðir. Reynslan af
þessu námi hefur verið mjög góð
og við höfum notið margra góðra
gestafyrirlesara. Við reynum að
temja okkur góð vinnubrögð í hóp-
vinnu enda gerast góðir hlutir
þegar menn vinna saman,“ segir
Halldór.
Bæði Vefskólinn og Margmiðl-
unarskólinn innrita nemendur að
hausti.
Nánari upplýsingar um þessi nám
og önnur í Tækniskólanum má sjá á
heimasíðunni www.tskoli.is
Það er mikilvægt að borða hollan
og góðan mat þegar setið er við
lærdóminn. Heilinn þarf næringu
alveg eins og önnur líffæri og eru
nokkrar fæðutegundir sérstaklega
góðar fyrir toppstykkið.
Til þess að fólk geti einbeitt sér
þarf það næga og stöðuga orku
og er því gott að velja grófkorna
brauð, brún hrísgrjón og gróft
pasta.
Omega-3 fitusýrur eru mikil-
vægar fyrir heilastarfsemina og
þær er best að fá úr feitum fiski,
svo sem laxi, silungi, makríl, síld
og fleirum. Fitusýrurnar er einn-
ig hægt að fá úr jurtaríkinu, úr
hörfræjum, sojabaunum, gras-
kersfræjum og valhnetum.
Þegar löngunin til að fá sér eitt-
hvað sætt hellist yfir námsmenn
er gott að grípa til bláberja til að
gæða sér á en þau eru talin bæta
skammtímaminnið.
Brokkólí er góð uppspretta
K-víta míns sem er þekkt fyrir að
auka virkni heilans og salvía hefur
lengi verið talin bæta minni og
einbeitingu. Þetta eru því
góðir kostir til að bæta
við mataræði náms-
manna sem og
annarra.
Matur fyrir heilann
Nemendur og kennarar í Margmiðlunarskólanum að vinna í „greenscreen“.
Nemendur í Vefskólanum eru áhugasamir og sköpunarkrafturinn nýtur sín til fulls.
Framhaldsnám þar sem
sköpunarkraftur fær að njóta sín
Tækniskólinn býður tvær námsleiðir sem metnar eru til háskólaeininga. Það er nám í Vefskólanum og Margmiðlunarskólanum. Í báðum
tilfellum er um að ræða tveggja ára diploma-nám sem er með námslok á 4. þrepi en inntökuskilyrðin er útskrift úr framhaldsskóla.
skólar & NáMskeið kynningarblað
6. janúar 20174
0
6
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
F
-1
7
B
0
1
B
D
F
-1
6
7
4
1
B
D
F
-1
5
3
8
1
B
D
F
-1
3
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
5
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K