Fréttablaðið - 10.01.2017, Side 15
Fjölmargir einstaklingar skrifuðu undir ábyrgðir á árunum fyrir efnahagshrunið og jafnvel fyrr.
Dæmi eru um að ábyrgðarmenn séu
nú að fá greiðsluáskoranir frá fjármála
stofnunum þar sem þeir eru krafðir
um greiðslu á grundvelli ábyrgðar.
Getur þetta komið flatt upp á marga,
enda í mörgum tilfellum langt um
liðið frá því að gengist var í ábyrgðina
og lántaki hefur ekki greitt af skuldinni
í lengri tíma.
Skýringar á þessum langa tíma eru
oft þær að lántakar hafa ekki fengið
úrlausn sinna mála hjá embætti
umboðsmanns skuldara af einhverj
um orsökum og fjármálastofnanir ekki
gengið á ábyrgðarmann á meðan lán
taki var í greiðsluskjóli. Oftar en ekki
eru það foreldrar, makar eða einhverj
ir nákomnir, sem skrifuðu undir sjálf
skuldarábyrgð eða veittu veð í fasteign
sinni til tryggingar.
Allnokkur dæmi eru nú um að fjár
málastofnanir gangi nokkuð hart
fram gegn þessum hópi og innheimti
kröfur sínar hjá ábyrgðarmönnum,
geti lántaki á annað borð ekki greitt.
Mikilvægt er þó að benda ábyrgðar
mönnum á rétt sinn til að mótmæla
kröfum fjármálastofnana, áður en þeir
fara huga að því að greiða kröfurnar.
Ábyrgðarmenn ættu því að kanna
rétt sinn og hvort þeim ber lagaleg
skylda til greiðslu. Fjölmörg dæmi
eru um að kröfurnar séu hreinlega
fyrndar. Í öðrum tilfellum hafa lána
stofnanir ekki framkvæmt greiðslu
mat með fullnægjandi hætti og í þeim
tilfellum kann að vera að um ógildan
legar ábyrgðir sé að ræða.
Í þessu samhengi athugast að fjár
málafyrirtækin gæta ekki að hagsmun
um ábyrgðarmanna. Fjármála fyrir
tækin benda ábyrgðarmönnum því
ekki á að skuldin sé fyrnd eða mistök
hafi verið gerð við upphaf lánveitingar
sem leiði til þess að ábyrgðin sé ógild
og því niður fallin. Þvert á móti eru
ábyrgðirnar innheimtar af krafti. En
hvað er til ráða fyrir ábyrgðarmenn?
Fyrning ábyrgða
Í fyrsta lagi kann að vera að krafa fjár
málafyrirtækisins gagnvart ábyrgðar
manni sé fyrnd. Um ábyrgðir sem
stofnað var til fyrir 1. janúar 2008
gilda eldri fyrningarlög. Samkvæmt
þeim lögum fyrnast kröfur á borð við
sjálfskuldarábyrgðir á fjórum árum
frá þeim tíma sem lánið féll í gjald
daga. Nokkuð algengt er að ekki hafi
verið greitt af kröfum í lengri tíma,
t.d. vegna þess að skuldari hafi verið í
ferli hjá umboðsmanni skuldara. Séu
atvik þau að ekki hafi verið greitt inn
á kröfuna í meira en fjögur ár og skuld
ara hvorki stefnt inn vegna ábyrgðar
né tekið hjá honum fjárnám getur sú
aðstaða hæglega verið uppi að krafan
sé fyrnd gagnvart ábyrgðarmanni. Það
athugast að fyrningartími kröfu gagn
vart lántaka sjálfum er þó yfirleitt
annar og lengri.
Oft á tíðum reyna fjármálafyrir
tækin að fá skuldara eða ábyrgðar
menn til að greiða inn á lánin, í því
skyni að rjúfa fyrningu. Slík gylliboð
eru gjarnan sett fram af fjármálafyrir
tækjunum með þeim formerkjum
að ábyrgðarmaðurinn fái afslátt af
skuldinni ef hann greiði inn á hana,
eða ef hann taki nýtt lán til að greiða
upp ábyrgðina. Með því kann þó
fyrning kröfunnar að rofna og því
getur verið varhugavert að skrifa upp
á slíka samninga nema að ráðfæra sig
við hlutlausa sérfræðinga.
Greiðslumat skilyrði
Þrátt fyrir að ábyrgð verði ekki talin
fyrnd gilda þó ákveðnar reglur um
skuldbindingar ábyrgðarmanna sem
vert er að kynna sér vel. Í gildi eru lög
Að gefnu tilefni: Ábending til ábyrgðarmanna
Arnar Ingi
Ingvarsson
lögmaður
Ábyrgðarmenn ættu því
að kanna rétt sinn og hvort
þeim ber lagaleg skylda til
greiðslu. Fjölmörg dæmi eru
um að kröfurnar séu hrein-
lega fyrndar.
um ábyrgðarmenn sem kveða á um að
lánastofnun skuli vinna greiðslumat
á skuldara og kynna fyrir ábyrgðar
manni áður en ábyrgðarmaðurinn
skrifar undir. Vanræki lánveitandi að
sinna þessum skyldum þýðir það að
ábyrgðin eða lánsveðið er að öllum
líkindum ólögmætt.
Lögin tóku gildi vorið 2009 en fram
að þeim tíma og allt aftur til ársins 1998
var í gildi samkomulag um sambæri
legar verklagsreglur við gerð ábyrgða
og veðleyfa. Hið sama átti við þar, þ.e.
lánastofnunum, sem staðfest höfðu
samkomulagið, bar að vinna greiðslu
mat af skuldara og kynna ábyrgðar
manni, með þeirri undantekningu að
ef lánsfjárhæðin var ein milljón króna
eða minna gat ábyrgðarmaðurinn
skriflega undanþegið sig þeim rétti að
vera kynnt greiðslumat skuldara.
Ábyrgðarmenn hugi að
réttarstöðu sinni
Fjölmörg dæmi eru um að lánastofn
anir hafi ekki fylgt ofangreindum
reglum og að ábyrgðir hafi verið felldar
úr gildi í kjölfarið. Þá eru mörg dæmi
þess að ábyrgðir séu fyrndar eða við
það að fyrnast. Þeir sem hafa gengist
í ábyrgð fyrir skuld geta og eiga að
kanna stöðu sína að þessu leyti. Hver
og einn verður að sækja þennan
rétt fyrir sig, þar sem lánveitendur
skoða þetta ekki að eigin frumkvæði.
Það getur því margborgað sig fyrir
ábyrgðar menn að fá óháða sérfræð
inga til að kanna stöðu sína og hvað
varðar fyrningu og lögmæti ábyrgða.
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15Þ R i ð J u D A G u R 1 0 . J A n ú A R 2 0 1 7
1
0
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
E
5
-8
1
6
8
1
B
E
5
-8
0
2
C
1
B
E
5
-7
E
F
0
1
B
E
5
-7
D
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K