Fréttablaðið - 10.01.2017, Page 20
Þegar Prius-bíll
Toyota náði mikilli sölu í
Bandaríkjunum á fyrstu
árum þess bíls seldist
hann í afar litlu magni
í Evrópu og meira en
helmingur bílkaupenda í
Evrópu valdi dísilbíla.
Ampera-e fyrst til Noregs
Kia náði metsölu á Ís-
landi á árinu 2016.
Alls seldust
1.722 nýir Kia-
bílar á árinu
og hafa aldrei
áður selst jafn
margir nýir
Kia-bílar á einu
ári hér á landi. Kia
er í öðru sæti á eftir
Toyota yfir mest seldu
bílamerkin hér á landi á árinu
2016. Þetta er í fyrsta skipti sem
Kia nær öðru sætinu yfir heilt
ár en áður hefur Kia hæst náð
þriðja sætinu. Markaðshlutdeild
Kia var 9,3% árið 2016. Þetta er
hæsta markaðshlutdeild hjá Kia
í allri Evrópu. Salan á Kia-bílum
jókst um 28% á milli áranna 2015
og 2016 hér á landi. Ef borið er
saman við árið 2011 er söluaukn-
ingin 380 prósent.
Nýir og spennandi bílar á
leiðinni
,,Þetta er besta ár Kia frá upphafi
á Íslandi og það er frábær árangur
að ná öðru sætinu yfir
mest seldu merkin
á árinu 2016. Það
er líka mjög
ánægjulegt að
við erum með
hæstu mark-
aðshlutdeild
hjá Kia í Evrópu.
Kia hefur verið að
bæta verulega við sig
í sölu á Evrópumarkaði. Það
er margt spennandi fram undan
hjá Kia á nýju ári. Má þar nefna
nýjan Rio, Picanto og Optima Wa-
gon auk þess sem Rio-jepplingur
verður kynntur og einnig Kia GT.
Kia er mjög framarlega varðandi
rafvæðingu bílaflotans. Nú þegar
fæst Kia Soul sem 100% rafbíll og
er með eitt mesta drægið í sínum
flokki rafbíla á markaðnum. Auk
þess er væntanleg ný útgáfa af
rafbíl sem við kynnum í haust og
tvær mismunandi gerðir af Plug-
in-Hybrid, raftengiltvinnbílum
sem eru afar vinsælir í dag,“ segir
Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá
Bílaumboðinu Öskju.
Kia næststærsta
bílamerKið á íslandi
Margir bíða í ofvæni eftir Skoda
Kodiaq, fyrsta jeppa tékkneska
bílaframleiðandans, en bíla-
blaðamönnum var gefinn kostur
á að reyna bílinn á Mallorca
á dögunum. Greinarritari var
búinn að gleyma því hve falleg
Miðjarðarhafseyjan Mallorca er,
en var þó ekki búinn að gleyma
því hve vel Skoda tekst yfirleitt
upp við smíði bíla sinna. Því var
hvors tveggja notið, þ.e. að aka
um hrikalegar strendur eyjar-
innar þar sem vegirnir hanga
gjarnan í mikilli hæð í snarbrött-
um hlíðum og til þess að gera
það á glænýjum vel heppnuðum
jeppa frá Skoda. Skoda hefur
greinilega ekki ætlað að klikka
á neinu með smíði þessa fyrsta
jeppa síns, hann er hlaðinn
búnaði, með stærsta farangurs-
rými í sínum flokki, eða 720 lítra
og mesta fótarými farþega í
aftursæti. Auk þess má fá Kodiaq
í 7-manna útfærslu. Hjá Heklu
fengust þær upplýsingar að von
væri á Kodiaq í mars á næsta ári
og þá mun áhugasömum gefast
kostur á að reynsluaka þessum
jeppa sem hæglega gæti orðið
ódýrasti kosturinn hér á landi
fyrir fullvaxinn jeppa. Ítarleg
reynsluakstursgrein verður í
bílablaði Fréttablaðsins er nær
dregur komu Kodiaq til Íslands.
sKoda Kodiaq
í prufu á mallorca
F
yrir mörgum árum ákvað
Toyota að veðja á hybrid-
bíla fyrir Evrópumarkað
og tók með því ekki slag-
inn við evrópska bílafram-
leiðendur í framleiðslu
dísilbíla. Sú ákvörðun virðist nú
vera að bera ríkulegan ávöxt því
sala hybrid-bíla í Evrópu hefur
vaxið um 40% á árinu á meðan
dísilbílasala evrópsku bílafram-
leiðendanna hefur dregist saman.
Á þessu fyrsta heila ári frá dísil-
vélasvindli Volkswagen og þeirri
andstöðu sem dísilbílar hafa mætt
síðan þá er sala Toyota-bíla með
hybrid-tækni orðin þriðjungur af
allri sölu Toyota í Evrópu og á að
fara yfir helmingshlutdeild í lok
þessa áratugar.
evrópskir bílaframleiðendur
nauðugur einn kostur
Þegar Prius-bíll Toyota náði heil-
mikilli sölu í Bandaríkjunum á
fyrstu árum þess bíls seldist hann
afar lítið í Evrópu og meira en
helmingur bílkaupenda í Evrópu
valdi dísilbíla. Toyota er reyndar
enn þá með fremur litla markaðs-
hlutdeild í Evrópu, í samanburði
við Volkswagen. Volkswagen er
með 24,1% hlutdeild en Toyota
aðeins 4,3%. Hins vegar er evr-
ópskum bílasmiðum nú nauðugur
einn kostur að snúa sér að smíði
bensínbíla og það með hybrid- eða
tvinnbílatækni. Það þarf Toyota
hins vegar ekki að glíma við og því
hentar samsetning bílgerða Toyota
miklu fremur evrópska markaðn-
um nú en þeirra evrópsku.
Veðjuðu á réttan hest
Líklegt er að dísilbílar verði hrein-
lega horfnir af framleiðslulínum
evrópskra bílaframleiðenda árið
2025 þar sem hvert landið á fætur
öðru ætlar að banna þá í löndum
sínum er það ár gengur í garð.
Bensínbílar með rafmótorum eru
langlíklegastir til að leysa þá af
hólmi og það tekur tímann sinn
að laga verksmiðjur og fram-
leiðsluferli evrópsku bílaframleið-
endanna að því, en þann vanda
á Toyota ekki við að glíma. Mikil
pressa var á Toyota fyrir örfáum
árum að koma fram með dísilbíla
fyrir Evrópumarkað, en fyrirtækið
þrjóskaðist við og taldi að fram-
tíðin lægi ekki í slíkum bílum og
það hefur reynst rétt.
Þvert á evrópska
bílaframleiðendur
Toyota bað söluaðila sína í Evrópu
að leggja áherslu á bíla með hybrid-
tækni árið 2012 þvert á stefnu evr-
ópsku bílaframleiðendanna sem
lögðu alla áherslu á dísilbíla. Ef
viðskiptavinur vildi prófa Yaris var
honum einnig boðið að prófa Yaris
með hybrid-tækni áður en hann
fékk að prófa Yaris með dísilvél.
Þessir sömu söluaðilar áttu heldur
ekki í neinum vanda með að taka
inn notaða hybrid-bíla Toyota þar
sem þeir héldu endursöluverði svo
vel og seldust því jafnharðan aftur.
75% fyrirframpantana í c-Hr
eru hybrid
Toyota telur að þegar hybrid-bílar
þeirra verða komnir með 50-60%
hlutdeild af öllum nýjum seldum
Toyota-bílum í Evrópu muni
fyrirtækið selja 400-500.000 bíla
í Evrópu á ári. Sífellt fleiri fyrir-
tæki í Evrópu eru farin að halla sér
að hybrid-bílum Toyota þar sem
endur söluverð dísilbíla þeirra,
sem þau hafa hingað til keypt, er
orðið svo lágt og því hefur Toyota
vart undan að svara fyrirspurnum
þeirra. Sem dæmi um góða sölu
hybrid-bíla Toyota er hinn nýi
C-HR sem liggur á milli þess að
teljast fólksbíll og jepplingur.
Um 75% af fyrirfram pöntuðum
eintökum af honum eru í hybrid-
útgáfu og er það eftir spám Toyota
fyrirfram. Hann verður ekki í boði
með dísilvél.
ToyoTA sá frAm í
TímANN mEð HyBrid
Líklegt er að dísilbílar verði hreinlega horfnir af framleiðslulínum evrópskra
bílaframleiðenda sem annarra árið 2025. Toyota veðjaði ekki á dísilbíla heldur
lagði alla áherslu á framleiðslu hybrid-bíla og nýtur nú þeirrar ávörðunar.
www.visir.is/bilar
Umsjón blaðsins
Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is, Sími 512 5457
Bílar
Kodiaq-jeppinn í prufum
við bestu aðstæður
Rafbíllinn Opel Ampera-e var frum-
sýndur á bílasýningunni í París nú
í haust og vakti óskipta athygli.
Um er að ræða systurbíl rafbílsins
Chevrolet Bolt sem valinn var Bíll
ársins í Bandaríkjunum á árinu.
Ampera-e hefur ekki síður verið
hampað af evrópskum bílagagn-
rýnendum sem snarlega krýndu
hann einn af sigurvegurum 2016
AUTOBEST Awards með titlinum
ECOBEST 2016. Í umsögninni kvað
dómnefndin upp úr með það að
með þessum tímamótarafbíl hefði
Opel tekið forystuna í harðri sam-
keppni rafbíla og kynnt til sögunnar
„framtíðarlausn í framþróun raf-
bílavæðingar Evróp“, einsog það var
orðað. Opel Ampera-e er fullvaxinn
5-manna fjölskyldubíll með 500 km
drægi, samkvæmt Evrópska NEDC-
staðlinum, sem mun vera u.þ.b. 100
km meira en næsti keppinautur
hans í sambærilegum flokki. Raf-
hlöðusamstæðan sem er 60 kWh,
er innbyggð í gólf bílsins og tekur
því ekkert pláss hvorki í fólks- né
farangursrýminu. Ampera-e togar
360 Newtonmetra og er aðeins 3,2
sekúndur í 50 km hraða.
sala hófst 14. desember
Upphaflega var gert ráð fyrir að
bíllinn yrði fáanlegur í Evrópu með
vorinu, en í ljósi mikillar eftirspurn-
ar gerðu Opel-verksmiðjurnar ráð-
stafanir til að setja markaðssetningu
á Ampera-e í forgang. Nú liggur fyrir
að Noregsmarkaður varð fyrir val-
inu sem fyrsti stökkpallur rafbílsins
Opel Ampera-e í Evrópu og hófst
formleg sala hans hjá frændum
okkar 14. des. sl. Val Opel á Noregi
sem upphafspunkti markaðssetn-
ingarinnar hefur vakið athygli, en
það er stutt þeim rökum að Norð-
menn hafi verið með fyrstu þjóðum
til að setja sér langtímastefnu í
aukinni rafbílavæðingu bílaflotans
og fylgt henni eftir. Samkvæmt
upplýsingum frá Bílabúð Benna,
sem er umboðsaðili Opel á Íslandi,
standa vonir til að Ampera-e komi
til Íslands á næsta ári.
ToyoTA Prius ruddi brautina fyrir hybrid-bíla Toyota og brátt mun
Toyota líka auka úrvalið í tengiltvinnbílum.
1 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r2 Bílar
1
0
-0
1
-2
0
1
7
0
5
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
E
5
-9
5
2
8
1
B
E
5
-9
3
E
C
1
B
E
5
-9
2
B
0
1
B
E
5
-9
1
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K