Víkurfréttir - 21.01.1993, Síða 4
4
YÍkurfréttir
Fasteignaþjónusta
Suðurnesja %
FASTEIGNA-&
SKIPASALA
Tjarnargötu 2 - Keflavík
Símar 15188 - 15722 • Fax: 13900
Bjarnavellir 16, Keflavík
Mjög gott 126 ferm. timbur raö-
hús, ásamt 24 ferm. bílskúr.
Parket og flísar á gólfum. Heitur
pottur og afgirt lóð. Skipti
möguleg á 4ra lierb. íbúð.
9.000.000.-
Holtsgata 31, Sandgerði
Rúmlega 140 ferm. einbýlishús
ásamt 54 ferm. bílskúr. I húsinu
er m.a. 4 svefnherbergi, stofa og
borðstofa. Góð eign á góðum
stað. 11.500.000.-
Heiðarbraut 5h, Keflavík
Um 170 ferm. raðhús á tveimur
hæðum ásanit 22 ferm. bílskúr. I
húsinu er m.a. 5 svefnherbergi,
sjónvarpsherbergi og 13 ferm.
sólstofa. Skipti möguleg á minni
eign. 11.000.000.-
Hjallavegur 5, Njarðvík
Um 76 lerm. þriggja herbergja
íbúð á þriðju hæð í tjölbýli.
Hagstæð lán áhvílandi.
4.400.000,-
Litluvellir 12, Grindavík
Gott tveggja herbergja raðhús.
Flísar og parket á gólfum. Skipti
möguleg á stærri eign.
4.550.000.-
Heiðarbraut 9, Sandgerði
Tæplega 100 ferm. raðhús ásamt
30 ferm. bílskúr. Hitalögn í inn-
keyrslu og verönd. 7.700.000,-
Brekkustígur 3la, Njarðvík
117 ferm. raðhús á tveimur hæð-
um ásamt 25 ferm. bílskúr.
6.500.000.-
Njarðvíkurbraut 20, Njarðvík
120 ferm. einbýlishús ásamt 47
ferm bílskúr. Hagstæð lán áhvíl-
andi. 6.900.000.-
Kirkjuvegur 14, Keflavík
Um 93 ferm. þriggja herbergja
ný íbúð á jarðhæð. 7.800.000.-
Hciðarhól 8, 3ja hæð, Keflavík
Góð 70 ferm. þriggja herbergja
íbúð á annarri hæð. Mjög hag-
stæð lán áhvílandi. 5.300.000,-
Suðurgata 38, Keflavík
Um 190 ferm. einbýlishús á
þremur hæðum. Eignin er öll ný
endurbyggð. Skipti möguleg.
11.500.000.-
Opið kl. 09:30 til 18:00 alla virka daga.
Sölumenn: Guðlaugur H. Guðlaugsson
og Margrét Emilsdóttir.
21. JANÚAR 1993
Aðeins milljón
boðin í frystihús
-sýslumaður lætur aukauppboð
fara fram
• Keflavíkur-
prestakall:
Staða að-
stoðarprests
auglýst
Þess er vænst að í þessari
viku verði staða aðstoðar-
prests við Keflavíkurkirkju
auglýst laus til umsóknar.
Liðið er um eitt ár frá því að
Alþingi samþykkti að ráða
í stöðuna, en vegna form-
galla hefur staðan ekki ver-
ið auglýst fyrr en nú.
Samkvæmt lögum um
aðstoðarpresta, er gert ráð
fyrir að sá er skipi stöðuna
starfi sem aðstoðarmaður
núverandi sóknarprests
séra Ólafs Odds Jónssonar.
Hrafnkell ráð-
inn yfirlæknir
Stjórn Sjúkrahúss Keflavík-
urlæknishéraðs hefur samþykkt
að ráða Hrafnkel Óskarsson í
stöðu yfirlæknis við sjúkra-
húsið. Er staðan var auglýst
bárust þrjár umsóknir og voru
umsóknirnar sendar hæfnis-
nefnd til skoðunar. Fyrir síðustu
helgi bárust niðurstöður nefnd-
arinnar. Þar kom fram að allir
umsækjendurnir voru hæfir og
númeraði nefndin engan þeirra
sem hæfari en annan.
Afgreiddi stjórn Sjúkrahúss-
ins máliða á fundi sínum á
föstudag. Hrafnkell hefur gengt
stöðu þessari frá því að Kristján
Sigurðsson hætti á síðasta ári.
Við framhald uppboðs á
hraðfrystihúsi Garðskaga hf. í
Garði, þ.e. síðara nauðungar-
uppboð, sem fram fór á mið-
vikudag í síðustu viku, gerðist
það að Islandsbanki átti hæsta
boð upp á eina milljón krónur.
Þar sem svo lítið var boðið,
hefur sýslumaðurinn í Keflavík,
Jón Eysteinsson, ákveðið að
notfæra sér heimildarákvæði í
lögum, til að láta fara fram
aukauppboð. Sagði Jón í samtali
við blaðið að þetta væri gert til
að reyna að fá hærra verð fyrir
húsnæði, tæki og áhöld. Hefur
verið ákveðið að aukauppboðið
fari fram 3. febrúar nk.
Bæjarstjórn Keflavíkur:
A bærinn nð moka snjó
fró fjölbýlishúsum?
Vilhjálmur Ketilsson, bæj-
arfulltrúi lagði eftirfarandi
tillögu frarn á fundi bæj-
arstjórnar Keflavíkur síðasta
þriðjudag:
„Undirritaður leggur til að
Keflavíkurbær taki að sér að
ryðja snjó frá fjölbýlishúsum
í bænum þannig að bílfært
teljist að húsunum.
Jafnframt verði húsfélög-
um boðið upp á að véladeild
bæjarins taki að sér að annast
snjómokstur og ruðning frá
bílastæðum fyrir sanngjarnt
verð".
Rökstuddi flutningsmaður
tillöguna, með því að víða
væri illfært fyrir neyðarbíla
og aðra að fjölbýlishúsum,
þ.e. frá götu. I sumum hús-
anna byggi eldra fólk, jafnvel
farlama eða einstæðar hús-
mæður, sem hefðu ekki tök á
að moka frá húsunum.
Ellert Eiríksson, bæjar-
stjóri, sagðist mótfallinn til-
lögunni því ranglátt væri að
bærinn færi í samkeppni við
vinnuvélaeigendur í bænum
sem biðu upp á þá þjónustu
að hreinsa snjó af bílastæð-
um.
Drífa Sigfúsdóttir, lagði til
að tillögunni yrði vísað til
bæjarráðs og féllst flutnings-
maður á það gegn því að hún
yrði ekki svæfð þar. Var það
samþykkt með 8 atkvæðum,
Viktor Kjartansson, vara-
bæjarfulltrúi sem sat fundinn
sat hjá.
Njarövík:
Geymslustaður ónýtra skipa?
Sern kunnugt er hafa tveir
gamlir stálfiskibátar sem aðeins
bíða förgunar legið við bryggju í
Njarðvíkurhöfn undanfarin miss-
eri. Á dögunum kom dráttarskip-
ið Hvanneyri með það þriðja.
Skip þessi eru: Búrfellið gamla,
sem Bergþór Hávarðarson vill
breyta í skútu. Búið er að úrelda
það og semja við eigendur
Hvanneyrinnar um draga skipið
til írlands í brotajárn. Elliöi GK,
sem skemmdist mikið í eldi og er
óviðgerðarhæft og bíöur því sjálf-
sagt ekkert annað en að komast í
brotajárn. Loks er það skipið sem
komið var með á dögunum, Krist-
björg VE 70. Það er geymt þar til
Hvanneyrin mun draga það er-
lendis í brotajárn.
♦ Bátarnir sem sennílega bíða förgunar í Njarðvíkurhöfn. F.v. Krist-
björg VE 70, Elliði GK 443 og Búrfellið. Ljósm.: epj.
Fannst lótinn ó Reykjanesi
58 ára gamall Hvergerðingur
og starfsmaður á Reykjanesi
fannst látinn um tvo kílómetra frá
bifreið sinni við Sandvík á Reykja-
nesi á sunnudagskvöld. Maðurinn
hafði fest bílinn í snjóskafli og ekki
náð að losa hann. Slæmt veður var
þegar þetta átti sér stað, suðvestan
sjö vindstig og skafrenningur.
Hjálparbeiðni barst til lög-
reglunnar í Keflavík kl. tólf mín-
útur yfir átta á sunnudagskvöld.
Maðurinn hugðist sækja fjóra
starfsmenn Saltverksmiðjunnar á
Reykjanesi í Hafnir og lagði af
stað frá verksmiðjunni kl. 18:30.
Þegar hann hafði ekki komið fram
um kl.19:00 var hafin leit. Var
meðal annars óskað aðstoðar
björgunarsveitarinnar Eldeyjar úr
Höfnum sem þegar kallaði til
mannskap.
Eftir nokkra leit fannst mað-
urinn meðvitundarlaus í veg-
kantinum um 2 kílómetra frá
staðnum sem hann hafði fest bif-
reiðina, en hann hafði þá gengið í
átt að Saltverksmiðjunni. Mað-
urinn var fluttur með sjúkrabif-
reið á Sjúkrahús Keflavíkur-
læknishéraðs en reyndist látinn
þegar þangað var komið.
Hjálparaðilar unnu þarna við
mjög erfiðar aðstæður en á köflum
var skafrenningurinn mjög blind-
ur og vart sást fram fyrir bíla, þá
var einnig þung færð á Hafna-
veginum og á veginum út á
Reykjanes.