Víkurfréttir - 21.01.1993, Blaðsíða 14
14
21. JANUAR 1993
Víkurfréttir
Félagsfundur NFS
Fimmtudaginn fjórtánda janú-
ar var haldinn fyrsti félags-
fundur Nfs, þar sem hin ýmsu
mál voru kynnt.
Fundurinn byrjaði á því að
Ingvar Eyfjörð, formaður Nfs,
setti fundinn og ávarpaöi nem-
endur af sinni alkunnu snilld.
Næstur var svo Jón Björgvin, for-
maður skemmtinefndar, sem
kynnti og afhenti nemendum Cl-
ariu Libellus, sem er einhvers
konar mánaðar vasabrot af fé-
lagslífi Nfs og á að lýsa veg Nfs-
inga í gengum hið stórbrotna og
fjölskrúðuga félagslíf Nfs. Þar á
að Ieggja smiöshöggið á þessari
klúbbakynningu þá reið Gísli Níls
á vaðið og kynnti kynlífsklúbb
Nfs sem mun taka til starfa á
þessari önn. Fyrir fræðandi reiö-
túr kynnti íþróttaráð Nfs fyr-
irhugaöar íþróttauppákomur, svo
næst síðast en ekki síst lagði for-
maður Nfs fram uppgjör Nfs fyrir
síðastliðið haustönn fyrir hönd
gjaldkera Nfs sem var veikur. Síð-
asta málefni fundarins var hinn
margumtalaði skólaskattur rík-
isstjórnarinnar, en fyrirhugað
hafði verið að félagsfundur Nfs
tæki afstöðu til þessa máls með
Kaffiklúbburinn „Kaffibaun-
in" sem var stofnaður um dag-
inn er hugarfóstur Karls og
Hennings bakaranema. Ásamt
Kristni Ágústi og Guðna Lárus-
syni mynda þeir stjórn baun-
arinnar. Mikil gróska er í gangi.
eftir hélt ungur ljóshærður maður
að nafni Þór stutta ræðu um hvað
væri upp á teningnum hjá rit-
stjórn skólablaðs Nfs. Sfðan
kynnti María Rut, formaður Vox
Arena, leiklistarklúbb Nfs. Þar á
eftir kynnti bróðir hennar, Trausti
Freyr, ljósmyndaklúbb Nfs og til
Ah, ah, ah, ríðum
Nú þegar við í Nfs höfum náð
athygli þinni með þessari fyr-
irsögn þá er ágætt að byrja að
segja frá ballinu þann 22. þessa
mánaðar. Stemmingin hefst í dag
í fundum þar semþiar verður for-
leikur að ballinu. I þessum fund-
um verða ýmsir paraleikir eins og
þekkir þú maka þinn og margt
fleira. Þeir sem kaupa miða í for-
sölu í skólanum, þá er miðaverð
fyrir einstakling 1300 kr., en para-
miði fyrir tvo mun kosta 2000 kr.
Það er líka góður aukabónus fyrir
þá sem kaupa miða í forsölu, því
þeim er boðið í party sem haldið
verðu í húsi V.I.K. sem er staðsett
í gamla Dropanum. Nú þegar allir
eru komnir í góðan „filing". Þá
koma rútur og aka fólkinu á ballið
sem verður í Þotunni. Þar sem Ný
dönsk spilar fyrir dansi og heldur
uppi rosalega frábærilega, æð-
islega, geðveikislega, mega
stemmingu.
ÞAÐ SKAL TEKIÐ FRAM AÐ
ÞAÐ ER SNYRTILEGUR
KLÆÐNAÐUR OG ENGIN(N)
KEMSTINN í STRIGASKÓM OG
STUTTERMABOLUM.
P.s. „Party on dudes and
babes".
Hringurinn
Nei, hér er ekki um að ræða
annað trúfélag í líkingu við
Krossinn eða Veginn, heldur
Gáfumannafélag FS. Hér er á
ferðinni starfsemi sem hefur það
að markmiði sínu ... að ..Ja
meðlimum Hringsins hefur
alltaf þótt erfitt að skilgreina
markmiðið en þessi klúbbur er
opinn ollum þeim er hafa áhuga
á einhverju milli himins og jarð-
ar. Þar er tekið á ýmsum mál-
efnum og þau rædd og krufin.
Sem dæmi um vinsæl við-
fangsefni má nefna: Er guð/Guð
til? Eigum við að ganga í EB? Á
að friða hvalina? og fleira og
fleira. Hringverjar hafa fengið í
heimsókn til sín öðru hverju,
fólk tengt þessum álefnum og
rætt við það. Sem dæmi má taka
heimsókn frá herstöðvaand-
stæðingum og Trúboða frá
Mormónakirkjunni og svo mun
Hringurinn fá næsta fimmtudag
klukkan átta að kvöldi, Magnús
nokkurn Skarphéðinsson sem
flestir þekkja og kenna við hval-
friðunarsamtökin „Sea Shep-
ard" og er búist við líflegum
umræðum. Félagið er eins og
flestum er kunnugt opið öllum
og hvetjum við alla til að mæta.
Höf: Trausti Freyr Reynisson
atkvæðagreiðslu. Eftir að fram-
tíöarpólitískir framagosar höfðu
stigið í pontu og tjáð sig um
skólaskattinn var ákveðið að und-
irskriftalistar færu í gang með og
á móti skólaskattinum. Þar með
lauk þessum fyrsta félagsfundi
Nfs.
Hvað veist þú
um kynlíf............?
Oft hefur verið sagt að
kynfræðsla í grunnskólum
landsins sé lítil, en eitt er
víst að kynfræðsla í fram-
halds- og menntaskólum
landsins er engin!! Þess
vegna hefur ungur maður í
FS ákveðið að stofna kyn-
lífsklúbb í skólanum í sam-
starfi við unga stúlku úr
Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti, sem fékk þessa
hugmynd í fyrra. Markmið
klúbbsins er að reyna að
fræða nemendur um hinar
fjölmörgu hliðar kynlífsins
og náið samband tveggja
einstaklinga. Til að ná settu
markmiði mun forsvars-
maður kynlífsklúbbsins fá
sprenglærða sérfræðinga á
kynlífssviðinu og einnig
fólk úr Samtökum '78, Já-
kvæða hópnum, til að miðla
sinni þekkingu til nemenda.
Með þessum markmiðum
að leiðarljósi vonar for-
svarsmaður klúbbsins að
æðstu menn skólans íhugi
það að taka kynfræðslu inn
í framhaldsskólakerfið, því
ekki veitir af....
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrif-
stofu embættisins að Vatns-
nesvegi 33, Keflavík, fimmtu-
daginn 28. janúar 1993 kl.
10:00, á eftirfarandi eignum:
Fífumói 1A, 0101, Njarðvík,
þingl. eig. Ingólfur Eggertsson,
gerðarbeiðendur Bygginga-
sjóður ríkisins og Innheimtu-
maður ríkissjóðs.
Fífumói 5B, 0102, Njarðvík,
þingl. eig. Magnús Hafsteinsson
o.fl., gerðarbeiðandi Bygg-
ingasjóður ríkisins.
Framnesvegur 11, Keflavík,
ás. vélum og tækjum og öllu s.
fylgi, þingl. eig. Örn Erlingsson,
Þorsteinn Erlingsson og Jök-
ulhamrar hf., gerðarbeiðendur
Landsbanki íslands, Reykja-
víkurhöfn og Samábyrgð Is-
lands á fiskiskipum.
Garðvegur 5, Sandgerði, á-
samt véluni, tækjum og áhöld-
um, þingl. eig. Njörður hf.,
gerðarbeiðandi Landsbanki ís-
lands.
Hellubraut 4, Grindavík,
þingl. eig. Hrafnhildur Gunn-
arsdóttir, gerðarbeiðandi Hús-
næðisstofnun ríkisins.
Hjallavegur 9c, 0301, Njarð-
vík, þingl. eig. Unnar Ragn-
arsson, gerðarbeiðandi Hús-
næðisstofnun ríkisins.
Holtsgata 44, Sandgerði,
þingl. eig. Eyþór Jónsson, gerð-
arbeiðendur Húsnæðisstofnun
ríkisins, Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins, Vátrygginga-
félag Islands og Islandsbanki
hf.
Hrauntún 12, Keflavík, þingl.
eig. Einar Sigurbjörn Leifsson,
gerðarbeiðendur Innheimtu-
maður ríkissjoðs og Lífeyris-
sjóður verslunarmanna.
Stapakot I, ásamt lóð, Njarð-
vík, þingl. eig. Sturla Már Jóns-
son og Sigrún H. Gunnarsdóttir,
gerðarbeiðendur Benjamín
Friðriksson, Friðrik Á. Magn-
ússon og Lífeyrissjóður sjó-
manna.
Veiga GK-4 (1227), þingl. eig.
Eyþór Björgvinsson, gerðar-
beiðendur Hagræðingarsjóður
sjávarútvegsins, Landsbanki Is-
lands Sandgerði, Olíusamlag
Keflavíkur og nágrennis og Is-
landsbanki hf. Hafnargötu 60
Keflavík.
Víkurbraut 29, lóð, Keflavík,
þingl. eig. Þorsteinn Hákon-
arson, gerðarbeiðandi Gjald-
heimta Suðurnesja.
Vogagerði 9, efri hæð, Vog-
um, þingl. eig. Byggingasjóður
ríkisins, gerðarbeiðendur Gjald-
heimta Suðurnesja og Hús-
næðisstofnun ríkisins lögfræði-
deild.
Sýslumaðurinn í Keflavík
19. janúar 1993
♦ Verðlaunahafarnir ásamt fulltrúa Bókabúðar Keflavíkur sem gaf
verðlaunin að þessu sinni. F.v. Þorsteinn Marteinsson, bóksali; Hrefna
Gunnarsdóttir og Hilmar Örn Kristjánsson. Handhafi 1. verðlauna
Hulda Guðbjartsdóttir var fjarstödd er verðlaunaafhendingin fór
fram. Ljósm.: hbb.
Verðlauna-
afhending í
Bókabúðinni
Sigurvegararnir, sem dregnir
voru út úr hópi þeim er sendi
inn réttar lausnir á myndgátu
Vikurfrétta, sem birtist í síðasta
tölublaði Víkurfrétta 1992, hafa
fengið verðlaun sín afhent. Fór
afhendingin fram á mánudag í
Bókabúð Keflavíkur, en búðin
gaf verðlaunin að þessu sinni.
Handhafi 1. verðlauna er
Hulda Guðbjartsdóttir; hand-
hafi 2. verðlauna er Hilmar Örn
Kristjánsson og handhafi 3.
verðlauna er Hrefna Gunn-
arsdóttir. Voru þau Hilmar og
Hrefna viðstödd ásamt Þor-
steini Marteinssyni frá Bókabúð
Keflavíkur.
TIL
SÖLU
Byggingarlóð rúml. 1000 fm. við Bolafót
13, Njarðvík. Skipt hefur verið um jarð-
veg í lóðinni og teikningar af 400 fm.
iðnaðarhúsi á lóðinni eru fyrirliggjandi.
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12 á hádegi,
miðvikudaginn 3. febrúar nk. til Jóns
Sigfúsar Sigurjónssonar hdl. Laugavegi
18A Reykjavík.
Sími 91:11003, fax 91-15466.
+
Maðurinn minn og faðir okkar
KRISTJÁN SIGMUNDSSON
Heiðarbraut 15 Keflavík
sem lést 18. jan. sl. verður jarðsunginn frá Kefla-
víkurkirkju laugardaginn 23. jan. kl. 14:00.
Kristín Guömundsdóttir
Eygló Kristjánsdóttir
Soffía Kristjánsdóttir
Ólafur Benóný Kristjánsson
Bragi Kristjánsson