Víkurfréttir - 21.01.1993, Síða 17
21. JANÚAR 1993
17
Vikurfrétt
ir
Gamli Hilmir KE
með þrjósku
Bæjar- og héraðsfréttablaðið
Eystrahorn, sem gefið er út á
Hornafirði birti í síðustu viku
skemmtilega og athyglisverða
frásögn af báti sem erfiðlega
gekk að eyða á áramótabrennu.
Skip þetta sem síðast bar nafnið
Þinganes SF 25, var betur þekkt
hér á Suðurnesjum á árum áður
sem Hilmir KE 7.
Frásögn blaðsins var
svohljóðandi: „ Gamla Þinga-
nesið var þrjóskulegt þar sem
það lá utan í Oslandsveginum
næstsíðasta dag ársins, (hafði
verið dregið þangað utan frá
bræðslu) og harðneitaði að láta
velta sér yfir veginn, út á bál-
köstinn fyrir utan Ásgarð. 011
tæki og tól Hjarðarnesmanna og
fleiri til, toguðu, rvkktu og
rembdust en Þinganesið lét ekki
undan og sat sem fastast.
Björgunarsveitarmenn, sjó-
menn, spekingar af ýmsum
stéttum fylgdust með og réðu
ráðum sínu, styrktu víra, beittu
nýjum brögðum. Ekkert dugði.
Allur dagurinn leið „og ekki
gekk rófan".
Er almenningur fór á stjá að
morgni gamlársdags mátt sjá að
unnið hafði verið alla nóttina við
Oslandsveginn. Hjarðarnes-
menn geta nefnilega verið
þrjóskir líka. Helmingur Þinga-
nessins kominn yfir veginn, af-
gangurinn í spón við hafn-
arbakkann.
Um kvöldið kom Haukur Óla
♦ Svonn er Þingancsið, áður Hilntir KE 7 í dag, hálfbrunnið.
Ljósm.: Eystrahorn.
♦ Hilmir KE 7 í Dráttarbraut Keflavíkur, tneðan báturinn vargerð-
ur útfrá Keflavtk. Ljósm.: epj.
og dældi olíu yfir hið forna fley,
eldur var borin að og kveikt í.
Enn þrjóskaðist Þinganesið og
bann ekki nema að hálfu leyti.
Kjörviðir úr skógum Amasons
og víðar ekki á því að gefast
upp.
Þar við situr", voru lokaorðin
í Eystrahorni.
Umræddur bátur var smíð-
aður í Lúbeck-Travemúnde,
Vestur-Þýskalandi fyrir Sig-
urbjörn Eyjólfsson, Keflavík,
eftir teikningum Egils Þor-
finnssonar, Keflavík, og af-
hentur Sigurbirni í mars 1960.
Var þetta 74 tonna eikarbátur.
Síðan var hann gerður út af
ýmsum aðilum í Keflavík s.s.
Jóni Sæmundssyni og síðar Sjö-
stjörnunni hf. o.fl. Árið 1970 var
hann seldur til Ólafsvíkur og
tveimur árum síðar til Hafnar í
Hornafirði þar sem hann var
gerður út þar til hann skemmd-
ist af eldi í Hornafjarðarhöfn
1989. Meðan hann var gerður út
frá Keflavík bar báturinn alltaf
sama nafn og númer.
Höldum ökunáminu
í heimabyggd
-Ökukennarar á Suðumesjum
fyrir Suðumesjamenn
Nú um áramót tók gildi ný
námsskrá til öflunar aukinna
ökuréttinda. Með breytingunni
hillir í að Ökuskóli Suðurnesja
verði að veruleika, að sögn
Valdimars Þorgeirssonar, öku-
kennara. Ökukennarar á Suð-
umesjum hafa staðið fyrir nám-
skeiðum hálfsmánaðarlega
undanfarin ár. Með tilkomu
Ökuskóla Suðurnesja verður
hægt að bjóða upp á bóklega sem
verklega kennslu á öllum svið-
um ökunáms. Þá er átt við bif-
hjólaréttindi, almenn öku-
réttindi, réttindi til að stjórna
leigubíl, vörubíl og hóp-
ferðabifreiðum. Ættu Suð-
urnesjamenn því að vera sér
nógir og þurfa ekki að fara í slíkt
nám út fyrir svæðið.
Mun Ökukennarafélag Suð-
urnesja hefja námskeið um
miðjan næsta mánuð. Á sama
tíma berast út fréttir að því að
Ökuskóli Sigurðar Gíslasonar í
Reykjavík sé að hefja námskeið
hér. Áð sögn Valdimars tengist
sá skóli ekki á nokkurn hátt
ökukennurum hér á Suð-
urnesjum.
Með breytingunni um ára-
mótin verða meiraprófin í
höndum ökukennara á hverjum
stað. Auk þess breytist öll öku-
kennsla rnikið. Sem dæmi um
svonefnt meirapróf, þá þurfa
nemendur nú að ganga í gegn-
um grunnnám sem sam-
anstendur af „umferðarfræði,"
„bifreiðatæki 1" og „skyndi-
hjálp". Grunnnámið tekur 62
kennslustundir og að því loknu
stendur nemendum til boða að
velja á milli þess að öðlast rétt-
indi til aksturs vörubifreiðr og
síðan hópbifreið, eða t'ara beint
í nám til réttinda á vörubifreiðar
og síðan hópbifreiðar, sem
samanstendur af „bifreiðatæki
2", „stjórnun stórra ökutækja"
og „kennsluakstur á vöru-
bifreiðum". Bóklegt nám í þess-
um réttindaflokki tekur 36
kennslustundir og verklegi
þátturinn er að lágmarki 5
kennslustundir.
Þegar viðkomandi hefur lok-
ið þessum réttindaflokki,
stendur honum til boða að taka
nám til réttinda á hópbifreiðar.
Það nám samanstendur af
„ferða- og farþegafræði" sem
tekur 24 kennslustundir, auk
kennsluaksturs á hópbifreiðar
að lágmarki 5 kennslustundir.
Þeir sem ljúka fvrrgreinda
náminu þurfa eingöngu að taka
kennsluakstur á leigubifreið.
Einnig geta þeir sem taka
grunnnám farið beint í nám til
réttinda á leigubifreið og taka
þeir þá „ferða- og farþegafræði"
og „kennsluakstur á leigu-
bifreið".
Sagði Valdinrar að með þessu
yrði sú breyting að öll öku-
kennsla á Islandi væri komin í
hendur fagmanna. Nú á næst-
unni hefjist sambærileg nám-
skeið á landsbyggðinni í sam-
ráði við Ökukennarafélag
íslands, þannig að námið verði
sambærilegt á flestum stöðum
á Iandinu. Á vegum Öku-
kennarafélags Islands er nú
verið að taka saman námsefni,
þannig að námsgögn verði öll
sem best, og í takt við kröfur
nútímans.
Vegna þessa vildi Valdimar
skora á Suðurnesjamenn að
standa sjálfa að eigin ökuskóla
og þar væri kjörorðið: „Öku-
kennarar á Suðurnesjum fyrir
Suðurnesjamenn."
smá
auglýsingar
Til leigu
Lítil kjallaraíbúö.
Uppl. í síma 14987.
2ja herbergja
íbúð að Hringbraut 83, efri hæð.
Uppl. í síma 96-81156 á kvöldin,
vinnusími 96-81111.
Bílskúr
Ca. 17 ferm. í góðu ástandi við
Nónvörðu, hiti, rafmagn og vatn.
Leigist til lengri tíma, ef óskað er.
Sanngjörn leiga. Uppl. í síma
13952.
Tii sölu
Blár snjósleðagalli
ónotaður stærð 54. Uppl. í síma
11539.
Subaru Station 1800 4x4
'82 árgerð. Uppl. í síma 68708.
Ýmislegt
Knski miöillinn
Lesley James verður með
einkafundi og námskeið 24.-29.
jan. Uppl. í síma 12212.
Vanur handflakari
óskar eftir atvinnu. Uppl. í síma
15183.
Hafnargötu 37 - Keflavík - Sími 12012
; Fjölskyldutilboð
j á sunnudögum
S _ , .
t Fri pizza og is
I fyrir krakka 8 ára og yngri
J í fylgd með fullorðnum.
s Tommi og Jenni í sjónvarpinu.
Sýnishorn af matseðli:
PIZZUR
9", 12" og 16" -17 gerðir
Sérréttir hússins:
• Laukhringjakarfa m/salatsósu ... 310.-
• B.B.Q kjúklingavængir...... 530.■
• Chef s salat m/osti, kjúklingabitum,
bacon, eggi, ísbergkáli
og 1000 eyja sósu......... 670.-
• Brauðstangir m/sósu.........190.-
Eftirréttir:
• Eplabaka
• Hnetubaka
Allar bökur eru með ís
og rjóma.....................250,-
ÍSTERTA
Marengskaka, rjómaís, súkkulaðisósa,
þeyttur rjómi................... 320,-
FRÍ HEIMSENDING Á ÖLLUM RÉTTUM ALLA DAGA
i
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
*
♦
♦
♦
♦
\