Víkurfréttir - 14.04.1994, Síða 18
18
14. APRÍL 1994
VlKUHFRÉTTIR
Þórarinn St.
Sigurðsson látinn
Þórarinn St. Sigurðsson, fyrr-
verandi sveitarstjóri í Höfnum lést á
Sjúkrahúsi Keflavíkur 8. apríl sl.
Hann var sveitarstjóri Hafna í sex ár
og starfaði einnig mikið fyrir Sam-
band sveitarfélaga á Suðurnesjum
samfara starfi sínu.
Þórarinn lét sér annt um málefni
Hafna og þróun sveitarstjórnarmála
á Suðurnesjum þó svo hann væri
hættur beinum afskiptum af mál-
unum. Mjög stutt er síðan Þórarinn
ritaði grein í blaðið um nafn á sam-
einað sveitar-félag.
Hann verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju nk. föstudag 15.
apríl kl. 14.
Litla bikar•
Á laugardaginn kemur hefst
litla bikarkeppnin í knattspyrnu
og taka 16 lið þátt í inótinu þar
af fjögur lið af Suðurnesjum.
Liðin sem taka þátt héðan
eru, IBK. Grindavík, Víðir og
Reynir S.
I fyrstu umferð mæta Grind-
víkingar Haukum í Grindavík,
Stjarnan og Víðir mætast í
Garðabæ og ÍBK og Reynir
eigast við í Keflavík. Allir
þessir leikir hefjast kl. 14.00.á
laugardaginn að leik IBK og
Reynis undanskildum en hann
hefst kl. 12.00. Seinni umferðin
verður háð þann 21. apríl
(Sumardaginn fyrsta).
IBUARIHOFNUM
- KEFLAVÍK OG NJARÐVÍK
LÁTIÐ YKKUR NAFNIÐ VARÐA!
ATKVÆÐASEÐILL
FITJAR
HAFNAVÍK
NESÐÆR
REYKJANES
SUÐURNES
Aðeins má merkja ( X ) við eitt
nafn á seðlinum.
Ef kjósanda líkar ekki við neitt
ofangreindra nafna, er honum
heimilt að rita það nafn sem hann
kýs, í auðu línuna.
Kjörstaðir:
Hafnir.......... Samkomuhúsið
Keflavík ......... Holtaskóli
Njarðvík ....... Grunnskólinn
Á sameiginlegum lundi sveitarst jórnarmanna
Kellavíkur, Njarðvíkur og Hal'na í Sanikonmluisimi
Höfnum var el'tirfarandi samþykkt:
Sameiginlegur fundur sveitarstjórnarmanna í Keflavík, Njarðvík og
Höfnum hvetur alla bæjarbúa til þátttöku í kosingu um nafn á nýja sveit-
arfélagið.
Þeir sem ekki sætta sig við þau fimm nöfn er lögð eru fyrir dóm kjósenda
en ætla sér að rita nafn á kjörseðilinn eru beðnir um að gæta þess að nafnið
lúti þeim reglum sem giltu um hugmyndasamkeppnina.
Þær meginreglur voru helstar að nafnið verði þjált í munni, hljómfagurt
og falli vel að íslenskri tungu og beygingarkerfi málsins.
Öll nöfn, örnefni, jafnt og nýyrði eru gjaldgeng. Kjósendur gæti þess eins
að nafnið geti orðið samnefndari nýs sveitarfélags og núverandi nöfn verði
einungis hverfanöfn.
Nafn á nýja sveitarfélagið:
Núverandi nöfn
verði einungis
hverfanöfn
Á miklum hitafundi sveit-
arstjórnarmanna Keflavíkur,
Njarðvíkur og Hafna var sam-
þykkt tillaga sem birtist neðst
í auglýsingu um kosninguna
hér á síðunni. í tillögu segir
m.a. að þeir kjósendur sem séu
ekki ánægðir með nöfnin Fimm
gæti þess að nafnið sem þeir
skrifi í auðu línuna lúti þeim
reglum sem giltu um hug-
myndasamkeppnina. I lok til-
lögunar segir: „Kjósendur gæti
þess eins að nafnið geti orðið
samnefnari nýs sveitarfélags
og núverandi nöfn verði ein-
ungis hverfanöfn."
• Kvennakarfa/úrslit:
Fimmtív leik-
inn þarf
Ekki tókst Keflavíkurstúlkum
að tryggja sér Islandsmeistara-
titilinn þegar liðið mætti KR í
Hagaskóla í gærkvöldi. KR fór
með sigur af hólmi í hörkuleik
64:60. Vesturbæjarliðið var í
forystu mest allan leikinn. ÍBK
náði að laga stöðuna sér í hag rétt
eftir leikhlé en þá tóku KR-
stúlkurnar sig til og náðu tíu stiga
forystu sent meisturum IBK tókst
ekki að kljtífa aftur. Lokatölur
urðu því 64:60. Björg Haf-
steinsdóttir var stigahæst ÍBK
stúlkna með 18 stig og Olga
Færset skoraði 17. Stigahæst KR
stúlkna var Helga Þorvaldsdóttir
með 18 stig.
♦ Sigurður Bergmann lilaut sitt
fyrsta Norðurlandagull í Fær-
eyjum um síðustu lielgi.
♦ íslandsmeistarar IBK í 7. flokki i körfuknattleik. Aftari röð f.v: Jón
Guðbrandsson, þjtílfari, Gtsli Einarsson, Jón Hafsteinsson, Sverrir
Jónsson, Sæmundur Oddsson, Hdkon Magmisson, Eyþór Ar-
inbjömsson ogMagnús Gummrsson. Fremri röð f.v:Eiður Brynjarsson,
Sævar Sævarsson, Hafþór Skúlason, fyrirliði, Davtð Jónsson og
Trausti Hafliðason.
Sigurður Bergmann,
júdókappi úr Grindavík
vann langþráð gull á
Norðurlandamótinu í
júdó sem fram fór í
Færeyjunt um síðustu
helgi. Sigurður hefur
fjórum sinnum áður
komist í úrslit en aldrei
náð að sigra. Sigurður
vann íþungaviktarflokki
en tapaði í glímu gegn
Dana unt 3. sætið í opna
flokknum. I þunga-
viktinni sigraði Sigurður
alla sína andstæðinga á
„ippon".
7. flokkur
ÍBK íslands-
meistari
IBK varð Islandsmeistari Í7. flokki
karla í körfuknattleik. Liðið sigraði
KR í úrslitum 48:45. Bæði liðin sigr-
uðu andstæðinga sína auðveldlega í
úrslitakeppninni en úrslitaleikurinn
sjálfur var jafn og spennandi.
ÍBK innbyrti Islandsmeistaratitil
númer tvö þegar minniboltalið kvenna
sigraði örugglega í fjórðu umferðinni
í Ketlavík á dögunum. Liðið fékk 28
stig í fjórum umferðum og tapaði að-
eins einum leik í vetur. Úrslitakeppni
yngri flokkana heldur áfram um
helgina. I stúlknaflokki er IBK og
UMFG í undanúrslitum og leika gegn
UBK og Tindastóli. Það gæti því orðið
Suðurnesjaúrslitaleikur í þeim llokki.
Þá er Njarðvík eina liðið í 4ra liða úr-
slitum í drengjaflokki.
Mæðrasynir
/ gang
Fyrsta æfing Mæðrasona
verður nk. föstudag kl. 18:00
við Myllubakkaskóla. Þeir
sem ætla að vera með þessu
stórkostlega liði skulu mæta í
inntökupróf eða hafa sam-
band í síma 14760 kl. 19:45
sama kvöld. Allir velkomnir.
Fundur eftir æfingu.
Dagur í kafi, til hvers?
I lok maí munu átta krakkar úr
Sundfclaginu Suðurnes ásamt þjálfara
sínum fara til Canet í Frakklandi í æf-
ingabúðir. Tilgangur ferðarinnar er að
veita þcssum sundmönnum tækifæri á
að æfa af kappi í 50 m sundlaug, við
hinar ákjósanlegustu aðstæður. Hér á
landi er tæpast kostur á slíku. en það er
fullvíst að reynslan af þessum æf-
ingabiiðum á eftir að nýtast krökkunum
vel á mótum erlendis, þar sem keppt er
við svipaðar aðstæður.
Seinna í sumar mun svo hópur yngri
sundmanna fara til Siegen í Þýskalandi
í æfingabúðir. Þar sækja þau heim
sundfélagið í Siegen og gista hjá
krökkunum í félaginu. Þegar þetta bréf
er skrifað eru þýsku sundkrakkarnir
einmitt í svipaðri heimsókn hér á Suð-
urnesjum. Þessi ferð á án efa eftir að
verða bæði stórskemmtileg og upp-
örvandi fyrir ungt og efnilegt íþrótta-
fólk.
Til þess að standa straum af kostnaði
við þessar ferðir hafa þeir 16 sundmenn
sem ætla nieð í þær ákveðið að synda
áheitasund á vægast sagt óvenjulegan
máta. Á sumardaginn fyrsta ætla þau
að synda stanslaust í kafi í 12
klukkustundir. Þetta hefur aldrei verið
reynt áður svo vitað sé og óvíst hvort
það takist. Þetta verður gert þannig að
synt verður boðsund, einn sundmaður
syndir í kafi yfir laugina og sá næsti
tekur við. áður en sá fyrri er kominn
uppúr til að anda. Fylgst verður með að
rétt verði að öllu staðið. Þegar tekið er
til athugunar að þetta verður gert sam-
fleytt í 12 klukkustundir, er Ijóst að um
gífurlegt þrekvirki er að ræða, sem
bæði reynir á andlegt og líkamlegt þol
og atgervi. Lauslega má áætla að
vegalengdin sem farin verður í kafi, sé
rúmir 40 km. eða langleiðin til
Reykjavíkur. Þad er því um ad gera
að styðja við bakið á okkar fólki, svo
að allt fari eins og best verði á kosið.
Dagana fyrir sundið munu krakk-
arnir leita til vina og vandamanna, ná- |
granna og stuðningsmanna og biðja um .
að heitið sé á þau. Þau munu hafa 1
meðferðis blöð sem þau biðja vel- |
vildarmenn sína um að skrifa nöfn sín .
á og að merkja við þá upphæð sem þeir 1
eru tilbúnir að veita ef sundmönnunum |
tekst ætlunarverk sitt. Einnig verður .
farið til fyrirtækja í leit að stuðningi. *
Sundið fer fram í Sundhöll Keflavíkur |
sumardaginn fyrsta og mun hetjast kl. -
8 og lýkur væntanlega kl. 20. Laugin *
verður opin öllum sem áhuga hafa á að |
líta inn og fylgjast með afrekinu og
veitingar verða í boði á staðnum. ■
Með þessari fjáröflun vonast sund- I
menn til að geta skemmt stuðnings-
mönnum sínum í leiðinni og afrekað ■
eitthvað sem allir Suðurnesjamenn gcta I
verið stoltir af.
/*’.//. sundmanna, |
Magitús Konráðssoit.
j