Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.03.1995, Page 10

Víkurfréttir - 16.03.1995, Page 10
10 16. MARS 1995 VlKURFRÉTTIR ul ' * J yf ‘“T'7/ *Jy*> irs.,!1 • ■ W 'j M ft ttSsk i :'jL S Jl ♦ Fjölskylduskemmtim t Stapa. Tískusýning undir stjóm Andreu Oddsteinsdóttur. ♦ Andrea Oddstcinsdóttir sýnir samkvxmiskjól. Hafist handa Sóknarpresturinn, séra Björn Jónsson, kvað sér hljóðs á stofn- fundinum, fagnaði stofnun fé- lagsins og hvatti til dáða. I máli hans kom frant að þar sem veru- leg stækkun og breytingar á Keflavíkurkirkju stæðu fyrir dyrum væri einkum þrennt sem nauðsynlega vantaði. Það væri nýtt orgel, nýjir bekkir og lag- færing og fegrun umhverfis kirkjuna. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Á næsta fundi, sem hald- inn var 27. apríl, var ákveðið að hrinda af stað fjársöfnun fyrir nýju orgeli. Frú Marta Her- mannsdóttir var valin til að veita orgelsjóðsnefnd forgöngu. Á fundinum var einnig ákveðið að gefa út minningarkort að tilhlut- an frú Ástu Árnadóttur. Skyldi þeim fjármunum sem í sjóðinn rynnu varið til menningar- og mannúðarmála. Var Ástu falin útgáfa kortanna, sem luin hann- aði, og formennska sjóðsnefnd- ar. Frú Ásta á enn sæti í stjórn- inni. Frú Marta Eiríksdóttir lagði til að efnt yrði til samskota á fund- um til að standa undir kostnaði á fegrun umhverfis kirkjuna. Það var santþykkt og var frú Marta kosin formaður blómasjóðs. Biðraðir við fyrsta jólabasarinn Á júnífundi var ákveðið að halda jólabasar. Frú Sigríður Aðalsteinsdóttir veitti forstöðu nefnd sem sá um framkvæmd- imar. Snemma um haustið hófst undirbúningurinn. Fyrir góðfús- legt leyfi skólastjóra Gagnfræða- skólans, Rögnvaldar Sæmunds- sonar og Randíar Træen kenn- ara, fékk basarnefnd afnot af handavinnustofu skólans eitt kvöld í viku endurgjaldslaust. Þar var svo komið saman og út- búnir alls konar jólamunir. Þegar leið að basarnum voru gluggar Verslunarbankans við Hafnar- götu fengnir að láni til að sýna vaminginn í. Þá var einnig efnt til leikfangahappdrættis sent frú Þorbjörg Pálsdóttir stóð fyrir. Við þetta tækifæri var svo selt kaffi í umsjón frú Katrínar Ólafsdóttur. Basarinn var haldinn 5. des- ember í Ungmennafélagshúsinu sem fékkst endurgjaldslaust. Ör- tröð myndaðist við dyrnar þó nokkuð fyrir auglýstan opnunar- tíma. Allt seldist á augabragði og þótti basarinn takast fram úr björtustu vonum. Ágóðinn af honum, leikfangahappdrættinu og kaffisölunni gerði kr. 108.428.35. Um sama leyti var söfnunin í orgelsjóðinn komin í tæp tvö hundruð þúsund. Af fjölskyldu- skemmtunum I febrúar 1966 var ákveðið að efna til tískusýningar hinn 13. mars. Frú Hólmfríður Jónsdóttir var kosin formaður nefndar til að sjá um framkvæmdir. Fatnað- ur var fenginn að láni hjá tísku- verslunum í Reykjavík. Andrea Oddsteinsdóttir var fengin til að stjórna sýningunni. Heiðar Ást- valdsson ásamt Guðrúnu Páls- dóttur sýndu dans, Savanna tríó- ið kom fram og einnig kvartett úr Karlakór Keflavíkur. Skemmtunin fór fram í Stapa á tilsettum tíma og var að allra dómi hin glæsilegasta. Og ekki skemmdu kaffiveitingar í umsjá frú Katrfnar Ólafsdóttur. Þegar í ljós kom hve vel hafði tekist til var á næsta fundi ákveðið að halda álíka skemmt- anir árlega. Og það var svo gert næstu tvö árin og sáu þá félags- konur sjálfar um skemmtiatriðin; léku, sungu og lásu upp. Allat' þessar skemmtanir fengu frá- bæra aðsókn og skiluðu umtals- verðurn ágóða til félagsins. Síð- an voru haldnir til skiptis jóla- basarar og leikfangahappdrætti. Á þriðja ári félagsins var keypt fullkomið fæðingarrúm fyrir ágóðan af bingói, sem spil- að var á flestum fundum, og gef- ið sængurkvennadeild Sjúkra- húss Keflavíkurlæknishéraðs. Nýjir kirkjubekkir... Ég get ekki látið hjá líða að nefna nöfn okkar stóru bræðra, séra Björns Jónssonar, Hauks Ingasonar og Bjarna Jónssonar, sem alltaf voru boðnir og búnir til að styðja það nteð ráðum og dáð sem systurnar tóku sér fyrir hendur. ♦ Skemmtiatriði flutt í Stapa ó fjölskylduhátið. Systrafélagskonur í góðum gerfum. Systra-og b Keflavíkurk -stiklað á stóru Fyrir forgöngu og undirbúning presthjónanna, séra Björns Jónssonar og frú Sjafnar Jónsdóttur, var hald- inn stofnfundur Systrafélags Keflavíkurkirkju hinn 12. mars 1965 í Sjálfstæðishúsinu í Keflavík. Eitt hundrað og sjö konur gerðust stofnfélagar. Markmið félagsins voru að efla kristilegt safnaðarstarf og vinna að menningar- og mannúðarmálum í prestakallinu. Á fyrsta ári félagsins voru gefin út jólakort með ljósmynd sem Haukur Ingason tók af kirkjunni. Þá voru einnig gefin út fermingarkort sem frú Ásta Árnadóttir hannaði. Frú Guðrún Jónsdóttir hafði kortasöluna á hendi ásamt Ástu. Á maífundi árið 1966 var samþykkt tillaga stjórnar um að gefa Keflavíkurkirkju nýja bekki vegna gagngerða breytinga og endurnýjunar. Kosin var nefnd ...og nýjir kirkjugluggar Á marsfundi benti frú Ásta Árnadóttir á að nauðsynlegt væri að huga að kirkjugluggunum því þeir væru farnir að gefa sig. Beindist hugur hennar þá helst að steindum gluggum. Þessi ábending fékk góðan hljórn- grunn var ákveðið að athuga kostnað, afgreiðslufrest og ann- að viðkomandi steindum glugg- um. Þeir voru svo pantaðir og tilbúnir til vinnslu árið 1976 og Vf RZU»NARBANKI ; “fuvlií •5.1'* ♦ ÚtstiUing í Verslunarbankauum fyrir leikfangahappdrætti. undir forystu frú Sigríðar Toft til aðstoðar stjórninni til að hrinda málinu í frantkvæmd. Að vel athuguðu máli var samið um smíði bekkjanna við Einar Þorsteinsson trésmíða- meistara. Þeir komu á tilsettum tíma, kostuðu hálfa milljón og voru hinir vönduðustu. Endurvígsla kirkjunnar fór fram hinn 19. mars 1967. Af- henti frú Sigrid Toft bekkina við það tækifæri. Einnig voru þá af- hentar kr. 317.200 til orgel- kaupa. búið að greiða þá að fullu með fé úr minningarkortasjóði. Gluggarnir voru hannaðir af Benedikt Gunnarssyni, listmál- ara, og unnir á verkstæði Oidt- tnannsbræðra í Þýskalandi. Breyttar áherslur Upp úr árinu 1968 fóru hús- mæður í æ ríkara mæli út á vinnumarkaðinn. Gafst þá styttri tfmi til félagsstarfa en Systrafé- lagið hélt áfram að vinna að sín- um markmiðum með breyttum áherslum. Enda voru þá fjárfrek- ♦ Undirbúningur leikfangaliappdrættis.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.