Víkurfréttir - 09.01.1997, Síða 15
Bikarkeppni kvenna í körfuknattleik
Keflavík og
KR í úrslitin
Það verða Keflavík og KR
sem mætast í úrslitum bikars-
ins í kvennaílokki laugardag-
inn 1. febrúarn.k. kl. 14.00.
Ketlavík lagði Njarðvík í ná-
grannaslag í Njarðvík í undan-
úrslitum bikakeppni kvenna á
sunnudaginn var.
Keflavíkurstúlkur voru ekki í
teljandi vandræðum með
Golfskóli
opnarí
Keflavík
Sigurður Sigurðsson sem
ráðinn hefur verið golf-
kennari hjá Golfklúbbi
Suðumesja opnar inniað-
stöðu og golfskóla á 2.
hæð við Iðavelli 9 í Kefla-
vík (fyrir ofan Dósasel) k.
sunnudag.
I húsnæðinu sem er um
200 fermetrar verða marg-
ir básar, aðstaða fyrir vipp
og pútt. Sigurður sagði að
boðið yrði upp á kennslu
fyrir byrjendur sem lengra
komna.
Félagar í Golfklúbbi Suð-
urnesja þurfa ekkert að
greiða fyrir að æfa sig.
Opnað verður fonnlega á
sunnudaginn kl. 16 til 19
en á ntánudag fyrir æfing-
ar og kennslu.
Sigurður kenndi golf hjá
Goltklúbbi Reykjavíkur á
síðasta ári en hann hefur
um langt skeið verið einn
fremsti kylfingur Suður-
nesjamanna. Sínrinn í
golfskóla Sigurðar er421-
6818.
Iþrónamaður
Reykjanesbæjar
Eydís Konráðsdóttir var
kjörinn íþróttamaður
Reykjanesbæjar á gaml-
ársdag en rangt var frá
grein í fyrirsögn í síðasta
tölublaði að hún haft ver-
ið kjörin íþróttamaður
Suðumesja.
stöllur sínar úr Njarðvík og
segja lokatölumar rnikið um
mun Iiðanna 73:41.
Það verða því Keflavík og KR
sem mætast í úrslitum en KR
vann IR létt í hinum undan-
úsrlitaleiknum og þvf Ijóst að
um hörkuleik verður að ræða
því þama mætast tvö sterkustu
liðin í kvennaboltanum.
Renault-bikarkeppnin í körfuknattleik:
Keflvíkingar
í bikarúrslit
-eftir auðveldan sigur á Isfiröingum.
Grindvíkingar töpuðu fyrir KR-ingum í spennandi leik
Það verða Keflavík og KR
sem mætast í úrslitum bikars-
ins í körfuknattleik karla I.
febrúar nk. kl. 16.00 en þessi
lið mættust einnig í úrslitum
Lengjubikarsins f haust, þá
sigmðu Keflvíkingar.
Keflvíkingar sigruðu KFI í
undanúrslitum í Keflavík á
sunnudaginn og var sigur
þeirra mjög sannfærandi þrátt
fyrir að liðið hafi ekki spilað
vel. Það var einna helst
pressuvörn Keflvíkinga sem
setti Isfirðingana út af laginu
en í lok fyrri hálfleiks náðu ís-
firðingar leiknum niður á sitt
plan og héldu honum þannig
að mestu það sem eftir lifði
leiks. Þrátt fyrir þetta var sigur
Keflvíkinga aldrei í hættu og
á lokamínútunum gátu þeir
leyft sér að spila með varalið-
ið inn á.
Grindvíkngar urðu að játa sig
sigraða gegn KR-ingum, sem
léku undir stjóm nýs þjálfara
Hrannars Hólm, á Seltjamar-
nesinu í hinum undanúrslita-
leiknum. Það gekk á ýmsu hjá
Grindvíkingum fyrir leikinn
gegn KR á sunnudaginn.
Aður höfðu þeir látið Hennan
Myers taka pokann sinn eftir
að hann mætti ekki á réttum
tíma úr jólafríi og fengu í hans
stað bandaríkjamanninn
Dervin Collins sem þeir voru
heldur ekki ánægðir með og
létu fara á laugardaginn.
Myers kom síðan til landsins
á elleftu stundu eða á sunnu-
dagsmorguninn og lék hann
með þeim um kvöldið og var
langstigahæsti maður liðsins.
Mestu munaði um að þriggja
stiga skyttur Grindvíkinga
náðu sér ekki á strik og virðist
sem "herbragð" Hrannars
þjálfara KR hafi borið árang-
ur, þ.e. að stöðva skytturnar
og ættu Keflvíkingar að hafa
það í huga þegar þeir mæta
KR í úrslitaleiknum 1. febrúar
n.k.
Laugardaginn 11. janúar kl.
15.00 verður hinn árlegi stjör-
nuleikur KKI í Laugar-
dalshöllinni. Suðurnesjamenn
verða í aðalhlutverkum því
þjálfarar liðanna verða þeir
Sigurður Ingimundarson og
Friðrik Rúnarsson og meira en
helmingur leikmanna verða af
Suðumesjum. Fyrirkomulagið
við val leikmanna var þannig
að fyrst valdi Sigurður sér leik-
mann og síðan Friðrik og svo
koll af kolli. Hvor má aðeins
hafa þrjá útlendinga og aðeins
tvo íslenska leikmenn úr hverju
liði. I hálfleik verður að sjálf-
sögðu keppt í þriggja stigá og
troðslukeppni.
IJðin verða þannig skipuð:
Spriíe-liðið:
Danion Johnson, Albert Óskarsson
og (iiuðjón Skúlason Keflavík.
Torrey John og Friðrik Ragnarsson
Njarðvík. Shawn Smith og Pétur
Ingvarsson Haukuni. Hermann
Hauksson KR, Eiríkur Önundarson
ÍR og Marel (íuðlaugsson
Grindavík. Pjálfari: Sigruður
Ingimundarson Keílavík.
ESSÓ-liðið
Herman Myers, Helgi Jónas
(íuðfinnsson og Páll Axel
Vilbergsson UMFG. Kristinn
Friðriksson og Falur Harðarson
Keflavík. Jón Arnar Ingvarsson og
Sigfús Gizurarson Haukum. Fred
Williams Pór, Tito Baker ÍR og
Jonathan Bow KR. Pjálfari: Friðrik
Rúnarsson Grindavík.
Næstu Ieikir í kórfunni:
1. deild kvenna:
Pri. 14. jan. kl. 20.00
Keflavík - KR
Breiðablik - (írindavík
Njarövík - ÍR
DHLdeildin:
Fim. 9. jan. kl. 20.00
Breiðablik - Njarð\ ík
Grindavík - Haukar
ÍR - Keflavík.
Vélmennið úr Vogum
lagði reynsluboltann
Jón Ingi Ægisson sigraði á árlegu jólamoti Knattborðs-
stofu Suðurnesja sem fram fór á milli jóla og nýárs.
Þrjátíu og sex keppendur mættu til leiks.
Meðal keppenda vom allir sterkustu spil-
arar Suðumesja í bland við unga efnilega
spilara sem heldur betur létu að sér kveða.
í undanúrslitum mættust Ingiþór Sigur-
gíslason og Jón Olafur Jónsson. Ingiþór
ungur og efnilegur spilari gerði sér lítið
fyrir og sló ekki ófrægari spilara en Adam
Ingason út. Reynslu-„boltinn" Jón Olafur
hélt upp á 40 ára spilamennsku í þessu
móti. Reynslan reyndist æskunni yfir-
sterkari og Jón Óli sem hafði spilað af fá-
dæma yfirvegun mætti Jóni Inga Ægissyni
í úrslitum sem hafði lagt Inga Bjama í hin-
um undanúrslitaleiknum. Urslitaleikurinn
var skemmtilegur og góð spilamennska
hjá Jóni Óla hafði hér um bil slegið „vél-
mennið" úr Vogum út af laginu en svo fór
þó að lokum að Jón Ingi hatði betur og
sigraði 5:3 enda strákurinn besti
snókerspilari á Suðumesjum að flestra
mati.
Börkur Birgisson sýndi sannkallaða meist-
aratakta þegar hann „skrúbbaði" niður
kúlum á færibandi og gerði alls 93 stig
sem var hæsta „breik" mótsins. Glæsileg
verðlaun voru veitt fyrir átta efstu sætin og
eiga Ingi Bjama og Dropinn þökk skilið
fyrir veg og vanda þessa móts sem fór vel
fram og greinilegt að líf er að færast í
snókerinn á nýjan leik.
Víkurfréttir
15