Víkurfréttir - 30.01.1997, Síða 7
Börn á leikskólaaldri í Reykjanesbæ:
Þriðjungur á biðlista
-Abeins rúiri 20% starfsfóUts faglœrt
Þriðjungur barna í Reykja-
nesbæ voru á biðlista inn á
leikskóla í desember á síðasta
ári eða alls 275 böm og lýsti
skólanefnd Reykjanesbæjar
nýverið yfir áhyggjum sínum
vegna þessarar stöðu mála
auk þess sem mikill skortur er
á fagfólki á leikskólum.
Samkvæmt ársyfirliti yfir
leikskóla Reykjanesbæjar
voru börn á leikskólum í
desember alls 521 eða 56% en
börn á biðlista voru 29%
prósent.
Að sögn Guðríðar Helga-
dóttur, leikskólafulltrúa
Reykjanesbæjar mun leik-
skólinn að Vesturbraut 13
stytta biðlista eitthvað og
verða þar starfræktar tvær
deildar. Þörf er talin á nýjum
leikskóla til viðbótar en taldi
Guðríður þær hugmyndir ekki
verða að veruleika í bráð.
Börn í Reykjanesbæ eiga rétt
á leikskólavist frá tveggja ára
aldri og vildi Guðríður taka
það fram að nú þegar hafa 47
böm á þeim aldri fengið inni á
leikskólum. Börn einstæðra
foreldra og börn með
sérstakar aðstæður hafa for-
gang.
Félag einstœbra foreldra:
Kaffikvöld í Stekk á föstudag
Félag einstæðra foreldra heldur kaf-
fikvöld föstudaginn 7. febrúar í Stekk
kl. 20.30.
Deild Félags einstæðra foreldra í
Keflavík var stofnuð þann 27. mars
1994. Síðan þá hefur starfað 9 manna
stjórn undir formennsku Katrínar
Kristinsdóttur. Suðumesjadeild FEF
hefur haldið félagsfundi á tjald-
svæðinu Stekk og hefur mikið starf
verið unnið á vegum félagsins og það
tekið á dagvistarmálum.
Nú hyggst félagið skoða ýmis mál
sem varða einstæða foreldra í sveitar-
félögum um land allt.
Kristín Bragadóttir tók nýverið við
foimennsku félagsins og á kafhkvöld-
inu gefst færi á nánari uppiýsingum
um hvar verði hægt að ná í formann
og annað stjómarfólk ásamt öllum
upplýsingum um félagsstarfsemina.
Vestfirðingafélag Keflavíkur og nágrennis:
SÓLARKAFFIÁ VÍKMIÁ LAUGARDAG
í ár eru liðin 40 ár frá stofnun Vestfirðingafélags Keflavíkur og
nágrennis. Það var stofnað 25. janúar 1957 af forvígismönnum
ísfirðingafélagsins, eins og það hét þá, og öðrum aðfluttum
Vestfirðingum.
Aðalfundur félagsins var haldinn á Flug Café þann 12. janúar sl. Og
var á fundinum kosinn ný stjóm og nýr formaður, Ævar Einarsson,
og er ffáfarandi stjóm þökkuð frábærlega vel unnin störf. Gunnar
Sveinsson hefur verið ritari félagsins frá stofnun 26. janúar 1957 og
fram að aðalfundi. Hann hætti því eftir 40 ára starf á aðalfundinum.
Á þessum tímamótum er ætlunin að glæða starfið enn frekar og eru
allir sem áhuga hafa og vilja vera með, velkomnir og geta skráð sig í
félagið hjá formanni í síma 421 -3230.
Hið geysivinsæla Sólarkafft verður haldið að þessu sinni í húsi
VSFK, Víkinni þann 1. febrúar nk. og vill stjóm félagsins hvetja alla
til að mæta og fagna afmæli félagsins, nánari upplýsingar verður að
finna í auglýsingu.
sólarkaffi
Púttað um Rastarskjöldinn
Púttmót í Röstinni þar sem keppt var urn Rastarskjöldinn fór
fram 16. jan. sl. Keppt var með útsláttarfyrirkomulagi og urðu
úrslit ftessi.
Karlar
1. Þorgrímur Kjartansson
2. Högni Oddsson
3. -4. Margeir Jónsson
3.-4. Henning Kjartansson.
Konur
1. Jónína lngólfsdóttir
2. Vilborg Strange
3. -4. Elísabet Halldórsdóttir
3.-4. Ólafía Sigurbergsdóttir.
AFMÆLI
Örn Erlingsson útgerðarmaðurog
fyrrverandi skipsstjóri \ erður 60 ára 3.
febrúar nk. Hann býður vinuni kunn-
ingjutn að Ivfta með sér glasi á afmælis-
daginn kl. 17:30 til 20.00 í húsi
Ferðafélagsins, Mörkinni 6, Reykjavík.
Reykjanesbær greiðir að hluta
niður vistun hjá dagmæðrum í
Reykjanesbæ samkvæmt
tímafjölda og voru böm vist-
uð hjá dagntæðrum í desem-
ber 1996 132 talsins í
mismunandi langri vistun.
Mikill skortur er á fagfólki á
leikskólunt Reykjanesbæjar
og eru einungis 18 leik-
skólakennarar af 102 starfs-
mönnum. Hlutfall faglærðs
starfsfólks á leikskólum
Reykjanesbæjar er því 23,2%.
Niðurrifsstarfsemi
Leikfélags Kefiavíkur
í kvöld kl. 20 ad Vesturbraut 17
verður verkáætlun vegna
framkvæmda kynnt.
Allir félagar í Leikfélagi Keflavíkur
sem ætla að leggja hönd á plóginn
mæti og skrái sig sem sjálfboðaliða.
Niðurrif hefst um helgina.
P.s. Allir vinnusamir leikhúss-
unnendur eru velkomnir.
Niðurrifsnefnd L.K.
Menningarnefnd Reykjanesbæjar
auglýsir eftir umsóknum um styrki til
menningarstarfsemi í sveitarfélaginu
Samkvæmt samþykktum nefndarinnar auglýsir nefndin
eftir umsóknum um styrki í mars og september ár hvert
og veitir þá eins fljótt og hægt er eftir það.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem
fást á bæjarskrifstofunum að Tjarnargötu 12.
Umsóknir skulu hafa borist Menningarnefnd
Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Keflavík
fyrir 21. febrúar.
Auglýsing um breytingu
á umferð í Reykjanesbæ-
Ákvedið hefur verið, að fella úr gildi tímabundnar breytingar á umferð
frá 20. okt. 1995, sem gerðar voru vegna grjótflutninga frá Helguvík til
Keflavíkurhafnar. Á eftirtöldum stöðum verðurumferð þvíþannig á nýjan leik:
Á gatnamótum Grófar og Bergvegar gildir almennur umferðaréttur.
(varúð til hægri)
Tvístefna verður frá Duustorgi að smábátahöfn við Gróf
og biðskylda á umferð frá smábáta-höfninni gagnvart Duusgötu.
Biðskylda verðurá umferð af Básvegi gagnvart Vatnsnesvegi.
Biðskylda verður á umferð af Bryggjuvegi
gagnvart Vatnsnesvegi og Víkurbraut.
Breytingar þessar taka gildi þriðjudaginn 4. febrúar 1997 kl. 8:00
Bæjarstjóri
Víkurfréttir
7