Víkurfréttir - 30.01.1997, Blaðsíða 9
vHtl!
SlETTIR
Bikarúrs|ital^r
í körfuknattieii^
® KR
Bikarpunktar
Keflavíkurstúlkur eru að leika
sinn tíunda bikarúrslitaleik á
ellefu árum. Þær hafa leikið
15 bikarleiki í röð síðustu
fintm árin.
Þetta er í fjórða skiptið á
síðustu átta árum þar sent
bæði karla- og kvennaliðin frá
Keflavík leika til úrslita í
bikarkeppni sama árið.
Keflvíkingar eru að leika sinn
fimmta bikarúrslitaleik á
síðustu átta árum.
Keflvíkingar hafa sigrað
tvisvar og tapað tvisvar í
bikarúrslitaleik.
Fríar sætaferðir
Ókeypis sætaferðir verða frá
Keflavík á laugardaginn.
Farið verður kl. 12.30 frá
Iþróttahúsi Keflavíkur.
Styurdur liigmwiularson inessar
yfir simim möiiiiuiii fyrr i vctur.
Haun liefur verid mjöij sigursæH
þjalfari meá kvenualid Keflavilan
og ekki er liægt aá segja aniiaá
'en aá liann hyrji vel incó karlana
Sigurður með lið I bikar
úrslitum sjötta árið I röð
Það ætti ekki að vera nýtt fyrir
Sigurð Ingimundarson þjálf-
ara Keflavíkur að taka þátt í
bikarúrslitaleik því hann er að
leiða lið til úrslita í bikar-
keppninni sjötta árið í röð.
Síðustu fintm árin var hann
þjálfari Keflavíkurkvenna og
leiddi þær til sigurs fjórum
sinnum í bikarkeppninni. Auk
þessa hefur hann verið leik-
maður Keflavíkur um árabil
og spilað til úrslita í bikar-
keppni fjórum sinnum.
Aðspurður um muninn á því
að vera leiða karlaliðið en
ekki kvennaliðið til úrslita
sagði Sigurður vera örlítinn
ekki síst vegna fleiri áhorf-
enda hjá körlum en það kæmi
eflaust ekki eins mikið að sök
nú þar sem sömu lið léku til
úrslita. „KR er með gott lið
með þá Hermann og Bow í
broddi fylkingar og við van-
metum þá ekki enda þýðir
ekkert slíkt þegar komið er f
úrslit bikarsins.
Við munum halda okkar striki
og spila okkar leik og þá
ættum við að vinna."
Nú spiluðuð þið ekkert
sérstaklega vel á móti
Njarðvík á sunnudaginn þó
sigur hafi unnist, verða
breytingar á hópnum eða
byrjunarliðinu?
„Nei, engar breytingar, þetta
verður sami hópur og sama
byrjunarlið,“ sagði Sigurður
Ingimundarson hinn sigursæli
þjálfari Keflavíkur að lokum.
Köríuboltaparib
Magga og Falur
í eldlínunni
Það verður nóg að gera á heim-
ili Fals Harðarsonar og
Margrétar Sturlaugsdóttar á
laugardaginn því þau leika
bæði með Keflavík og klæðast
bæði treyju númer 4. Það má
því með sanni segja að þama
sé á ferðinni samrýnt kör-
fuboltapar. „Við erum mjög
samrýnd og eyðunt mjög mik-
lum tíma saman bæði í íþrótta-
húsinu sem og annars staðar.
Við meira að segja vinnum
húsverkin saman eins og að
vaska upp. Svo er það dóttir
okkar Lovísa og saman þrjú
reynum við að eiga sem flestar
stundir. Við emm bæði búin að
vera mjög lengi í körfunni svo
þetta er orðin hluti af heimilis-
lífinu en það er varla tími fyrir
neitt annað á meðan á Ieik-
tímabilinu stendur," sögðu þau
Magga og Falur. Hann er
búinn að æfa í 18 ár og hefur
einnig spilað með KR og
háskólaliði í Bandaríkjununt
þegar hann var þar við nám.
Magga sem var þar með
honum hefur iðkað íþróttina í
13 ármeð smá hléum.
„Helgin leggst bara vel í okkur
og þótt við höfum spilað illa á
móti Njarðvík lofa ég sigri
gegn KR á laugardaginn,"
sagði Falur og Magga bætti
við. “Það er miklu skemmtile-
gra að vinna tvöfalt og við
stelpumar erum staðráðnar í að
verja titilinn.“
Bikarúrslitafjör í Landsbankanum
Leikmenn Keflavíkur í meistaraflokki karla bregða á leik í útibiá
Landsbankans ílíeflavík á morgun fóstudagkl. 15.30.
Tíu Heppnw' krakkor f« ^fi1
liarnamiHu a
Ajram Kejlawk.
Landsbanki
r
islands
Utibúin á Suðurnesjum
Keflavíksm42IW-SaiiilgetðismH237SIIO-l]rinilsviksmH2S879S-LeilsstSðskH250350
Víkurfréttir
BLAÐAUKI