Víkurfréttir - 30.01.1997, Side 15
dagsmorgun en þá kviknaði í
íþróttahúsi bæjarins, skemmdir
á húsnæðinu urðu mjög litlar.
Þann 17. mars hlekktist tveggja
hreyfla flugvél á í aðflugi að
Keflavíkurflugvelli og nauð-
lenti hún við íbúðarbyggð í
Njarðvík. Greiðlega gekk að
ná fiugmanninum úr ttakinu og
meiddist hann lítilsháttar. Mikil
íkveikjuhætta var á staðnum.
Þann 26. júní kom útkall í
Fiskverkun að Hrannargötu 4.
Þegar að var komið var mikill
reykur í byggingunni og voru
strax sendir inn reykkafarar.
Mikill eldmatur var í húsinu og
töluverður eldur í rusli á miðju
gólfi sem logaði upp í þak.
Eldurinn var fljótt slökktur og
tjón óverulegt.
Þann 29. júní kl 15.19 barst
tilkynning um eld í bygging-
arvöruversluninni Jám og Skip.
Þegar komið var á vettvang var
mikill eldur í timburporti, eld-
tungur stóðu upp frá húsinu og
greinilegt að eldurinn hafði haft
tækifæri til að ná sér vel á strik.
Allt tiltækt slökkviiið var sent á
staðinn og kallað til aðstoðar
nágrannaslökkvilið Kefla-
víkurflugvallar og Sandgerðis.
Slökkvistarf stóð yfir til
miðnættis og varð fjárhagslegt
tjón mjög mikið án þess að
nokkuð væri við ráðið, þrátt
fyrir mikinn liðsstyrk þriggja
slökkviliða. Húsið var mjög
stórt og mikið af brennanlegu
efni þar innanhús. Fullvíst er
að um íkveikju af mannavöld-
um liaft verið að ræða.
Þann 4. júlí kviknaði eldur í
íbúð á neðri hæð í tveggja
hæða íbúðarhúsnæði við
Reykjanesveg í Njarðvík.
Töluverður eldur var í herbergi
þegar slökkviliðið kom á
staðinn. Reykkafarar fóru inn
en tbúðin var mannlaus. Var
eldurinn fljótt slökktur og
íbúðin reyklosuð. Kviknað
hafði í rúmi og rúmfatnaði,
töluverður reykur komst í íbúð
efri hæðar.
Þann 28. ágúst kom upp eldur í
bílskúr við Móavegi í Njarðvík.
Þegar slökkvi 1 iðið kom á
vettvang var skúrinn nánast
alelda. Ibúðarhúsið er sambyg-
gt skúmunt og hafði eldur læst
sig í baðherbergisglugga og
þakkant hússins. Litlar
skemmdir urðu á húsinu nenta
hvað að baðherbergisglugginn
og ytri klæðning þakkants
brann. Töluverðar skemntdir
urðu á skúmunt
Þann 16. september gerðist sá
hörmulegi atburður að maður
brann inni í íbúð á neðri hæð í
tveggja hæða íbúð við
Ásabraut. Mikill eldur var í
einu herbergi og fóru reykkaf-
arar strax inn í íbúðina, þar
fundu þeir húsráðanda látinn.
Greiðlega gekk að slökkva
eldinn en töluverðar skemmdir
urðu af völdurn hita og reyks.
Þann 20. nóventber var
slökkvilið kallað að trésmiðj-
unni Víkurás við Iðavelli, en
sjónarvottar sögðust hafa séð
eldglæringar frá afsagsbrennara
sem er notaður til upphitunar
hússins. Engin eldur var sjáan-
legur í spónabrennaranum, en
þar sem húsið er ein af mestu
eldáhættuni sveitarfélagsins var
ákveðið að hafa öryggisvakt við
húsið alla nóttina. Ekki kom
upp eldur þá nóttina en því
miður var ekki liðin nema um
einn mánuður þegar aftur kom
brunaútkall að Víkurási og þá
öllu alvarlegra.
Þann 12. desember bámst eld-
boð um Brunaviðvörunarkerfi
tengt Vaktþjónustu Brunavama
Suðurnesja frá Bambuskof-
anum sem er veitingahús að
Hafnargötu 26. Þegar slökkvi-
liðið kom á staðinn var tölu-
verður eldur og reykur í húsinu.
Reykkafarar fóru inn og kont í
ljós að rekstraraðili hússins var
inni. Var eldurinn fljótt slökkt-
ur, og viðkomandi fluttur á
Sjúkrahús Suðurnesja vegna
reykeitmnar. Littlar skemmdir
urðu á húsnæðinu, litlu mátti
muna. Fullvíst er að viðvömn-
arkerfi hússins hafi bjargað
bæði manntjóni og miklu
eignartjóni.
Þann 29 desentber 1996 var
slökkviliðið boðað að tré-
smiðjunni Víkurás. Þegar
slökkviliðið kom á staðinn,
logaði mikill eldur í suðuhlið
hússins og inní viðgerðarrýnti.
Gríðarlegur hiti myndaðist
fljótlega og urðu því reykkaf-
arar að flýja norðurhluta
vélarsals, einn slökkviliðsmaður
Aáhonuw
oij Sldp líeíiar
lyrstu slölikvilids-
weiiii l(omii ,i
vettvamj.
brenndist í andliti. Eldurinn
magnaðist og varð vélasalurinn
alelda í yfirtendrun með þeim
afleiðingum að gluggar í
austurhlið spmngu. Kallað var
til allt tiltækt slökkvilið og
fengin aðstoð nágranna-
slökkviliða, slökkviliðs Kefla-
víkurflugvallar og slökkviliðs
Sandgerðis. Slökkviliðsmenn
fengu aðstoð björgun-
arsveitarmanna og lögreglu í
baráttu við eldinn alla nótti-
na en urðu því miður að
viðurkenna sig sigraða gegn ,
þessum mikla eyðilegging-
armætti. Húsið gjöreyðilagðist í
brunanum svo og vélar og
framleiðsla fyrirtækisins.
Fullvíst er talið að um íkveikju
af mannavöldum hafi verið að
ræða.
Útkallstyrkur Slökkviliðsins
Slökkvilið Brunavarna Suð-
umesja er rekið af sameiginlega
reknu sveitarfélögunum á
svæðinu og ákvarðast út-
kallsstyrkur þess af eign-
araðilum. Að staðaldri er
þriggja manna vakt hjá Bruna-
vömum Suðumesja þar sem að
tveir menn ásamt slökkviliðs-
stjóra, eða f>eim stjómenda sem
er á bakvakt fara af stöð í
brunaútkall. Þegar um stærri
elda er að ræða verður að
kalla út viðbótarmenn. Þeir
mæta
þá á stöð og taka viðeigandi
búnað til starfsins og lengir
þetta útkallstímann. í tilfellum
þar sem mannfæð er, skipta eld-
varnir í byggingunni sem og
fyrstu mínútumar í slökkvistarfi
höfuð máli og er tvímælalaust
vendipunktar svo vel fari.
Tilgangur eldvamareftirlits og
brunareglugerða er forvarnir
með áherslum á björgun
mannslífa, hindrun útbreiðslu
elds með bmnaltólfun og útlof-
tun byggingar. Því miður er
viðhorf margra þess eðlis að
vanvirðing er borin fyrir kröf-
um og ráleggingum Eid-
varnareftirlits. Vonandi sjá
menn að góðar eldvarnir eru
gmndvallaratriði í slökkvistörf-
um og þá sérstakelga þegar um
mennt slökkvilið er að ræða.
Við getum skoðað marga stór-
bruna á svæði Brunavarna
Suðumesja sem og á landsvísu,
þar blasa við staðreyndir um
vanefndir í eldvömum. Hér er
um háalvarlega hluti að ræða
sem verður að taka á, það er
aldrei of seint og hvet ég ykkur
til þess!
Meö fyrirfram þökk
og samstaifskveðju,
Sigmundur Eyþórsson,
slökkviliðsstjóri
Brunavarna Suðurnesja.
Opinn fundur Brunavarna Suðurnesja
Slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja boðar til opins fundar
föstudaginn 31. jaúnar frá kl. 14:00 til 17:00 á Glóðinni, Keflavík.
Markmið fundarins er að ná athygli forráðamanna fyrirtækja og bæjarbúa
um áhrif, samvirkni eldvarna og slökkvistarfa þar sem teknir verða fyrir
stórbrunar á svæði Brunavarna Suðurnesja 1996.
Dagskrá fundarins:
Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri setur fundinn
og felur Ellert Eiríkssyni bæjarstjóra fundarstjórn.
Mælendur verda:
Starfsemi Víkurás.
Eldvarnir í Víkurási og Járn og Skip
Fyrsta adkoma að eldstað (Víkurás)
Frammkvæmd sl.starfs í stórbruna
Bruni í trésmiðju í Hafnarfirði.
Brunarannsóknir.
Samstarfssamn. slökkviliða á Suðurnesjum
Slökkvilið Reykjavíkur, stórbrunar.
Brunatæknileg hönnun í verksmiðjuhúsn.
FuHtrúi Vátryggingafélags Öslands
Pallborðsumræður (30-40 mínútur)
Benjamín Guðmundsson framkv.stjóri Víkurás
Örn Bergsteinsson, vara.sl.stjóri
Baldur Baldursson aðalvarðstjóri
Sigmundur Eyþórsson sl.stjóri
Helgi Ævarsson sl.stjóri Hafnarfirði
Ranns.lögreglan í Keflavík.
Haraldur Stefánsson slökkviliðstjóri
Keflavíkurflugvelli.
Hrólfur Jónsson sl. stjóri Reykjavíkur
Guðmundur Gunnarson, tæknifr. frá
Brunamálastofnun Ríkisins.
Tjónamat og þáttur tryggingafélaga.
Mælendur sitja fyrir svörum.
Forráðamenn fyrirtækja og stofnanna eru hvattir til að mæta.
Virðingarfyllst,
Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri B.S.
Víkurfréttir
11