Víkurfréttir - 13.03.1997, Qupperneq 9
Fermingardress
á mömmumar
og ömmumar
ParKer-dagnr
í Bókabúð Keýtaríkn*r
á atorg****, föstudag
Mikið iíimI af pennum og
pennasettnm. Okeypis áletrun.
Efþú verslarfyrir 5000 krónur eða
meirafœrðu ókeypis Parker penna!
Mikið úrval af ovðabóknm
- góð fermingargjöf
Sékabúð HeffaCiku
Sólvallagötu 2 - sími 421 1102
Munið tilboðið í mars:
2 lítrar CocaColakr. 175-
2 kg. kartöflurkr. 155-
Heiðartúni 2 Garði sími 422 7935
Minning
Magnea
Arnadóttir
/. 4. nóvember 1917
d. 18. febrúar 1997
Við systumar stigum okkar
fyrstu spor í kjallaranum hjá
Möggu og Dadda. Þau köll-
uðu okkur ávallt stúlkumar
sínar. Það var ævintýri lík-
ast fyrir tvær litlar „stúllur“
að eiga heima í húsi Möggu
og Dadda. Þau hjónin voru
mjög bamgóð og gerðu
margt sem gladdi okkar
ungu hjörtu.
f hugunt okkar systranna
em minningar tengdar Suð-
urgötunni fullar af birtu og
hlýju. Við undum okkur
tnarga stundina við leik í
litla húsinu sem Daddi
smíðaði handa okkur.
Þegar við urðum eldri hélt
Magga samt áfram að skipa
stóran sess í líft okkar. Svo
kom að því að við systumar
fluttum úr Keflavík, önnur
til Bandaríkjanna og hin til
Vestmannaeyja en þrátt fyr-
ir miklar fjarlægðir héldum
við ávallt góðu sambandi
við Möggu og hún veigraði
sér ekki við að hringja til
annarrar heimsálfu.
Magga var mjög víðsýn
kona og ung í anda. Hún
hafði mikinn áhuga fyrir
öllu sem var að gerast í lífi
okkar og studdi okkur og
leiðbeindi í öllu því sem við
tókum okkur fyrir hendur.
Við eigum Möggu frænku
okkar margt að þakka. Hún
auðgaði skilning okkar á
því sem mikilvægt er í líf-
inu. Að hafa fengið að njóta
nærvem hennar, verður
okkur ómetanlegt veganesti
það sem eftir er ævinnar.
Gegnmn Jesii helgast hjarta
í himininn upp ég líta má,
Guðs mírís ástar hirtu hjarta
hœði fœ ég að reyna og sjá,
hiyggðar myrkrið sorgar
svarta sálu minni hverfurþá.
(Jónas Hallgrímsson)
Magnea og
Ragnheiður María
Guðmundsdætur.
Nýr miObaer Reykjanesbæjar
á Samkaupssvæðinu?
Deiliskipulag að svokölluðu
Samkaupssvæði var til um-
ræðu á síðasta fundi bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar
5.mars sl.
Kynntar hafa verið tvær til-
lögur af nýtingu svæðisins í
skipulags- og tækninefnd en
þær voru ekki gerðar opinber-
ar á fundinum.
Svæðið var áður til umræðu
fyrir u.þ.b. ári síðan er Hag-
kaup óskaði eftir úthlutun lóð-
ar þar gegnt versluninni Sam-
kaup. Einnig var þar óskað
eftir lóð fyrir bílasölu þannig
að ljóst var að mikit eftirspum
var eftir lóðum á svæðinu.
Urðu þá nokkrar umræður um
málið og vildi minnihluti að
svæðið yrði miðbæjarkjarni
sveitarfélagsins og taldi hann
það henta vel fyrir stjómsýslu
sem og grænt svæði.
Sólveig Þórðardóttir (G) sagði
á fundinum að svæðið væri
dýrmætt þar sem sveitarfélag-
ið ætti t.d. ekkert stjómsýslu-
hús og væri ekki hugsað til
framtíðar ef á því ættu ein-
ungis að rísa verslunarmið-
stöðvar.
Drífa Sigfúsdóttir forseti bæj-
arstjómar tók undir mál Sól-
veigar og sagði að sátt yrði
um stjórnsýsluhús á þessu
svæði þar sem það liggur mitt
á milli Njarðvíkur og Kefla-
víkur. Viktor B. Kjartansson
varabæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks var á öðru máli og tók
það fram að það væri ekki
hlutverk bæjarstjórnar að
ákveða hvaða fyrirtæki eigi
að vera á svæðinu. Hann
sagði verslun og stjórnsýslu
mikilvæga í slíkum miðbæ og
að samkeppnin yrði bæjarbú-
um til góða.
Víkurfréttir
9