Víkurfréttir - 13.03.1997, Qupperneq 10
Hliómskálakvintettinn leikur fvrir 2500 nemendur
Hljómskálakvintettinn byrjar tónleikasyrpu í Reykjanesbæ nk. þriðjudagsmorgun 11. mars í Holtaskóla í Keflavík á veguni verkefnisins Tónlist fyrir alla. Hann mun flytja um 2500 grunn- og framhalds- skólanemendum fjölbreytta efnisskrá og kynna þeint um leið hljóðfæri málmblásarak- vintettsins. Margir nemenda jressara skóla |rekkja hljóðfær- in af eigin raun og taka nem- endur tónlistarskólanna í Keflavík og Njarðvík virkan þátt í tónleikunum. Málm- blásarakvintett skipaður nem- endum Holtaskóla og Fjöl- brautaskóla Suðumesja leikur með á tónleikunum þar og í Njarðvíkurskóla. Yngsta deild lúðrasveitar Tónlistarskóla Keflavíkur leikur á tónleikun- um í Myllubakkaskóla og Margeir Hafsteinsson, tromp- etnemandi í Tónlistarskóla Njarðvíkur, leikur á öllum tónleikunum. Allir taka svo þátt í fjöiskyldutónleikum sem verða í Ytri-Njarðvíkur- kirkju laugardac 15. mars kl. 16.00.
Nýir eígendur aö flpoteki Keflavíkur
-mörg fyrirtæki á Suðurnesjum liafa skipl
All mörg fyrirtæki á Suður-
um eigendur að undanförnu, m.a. tvær bílasölur og veilingastaður
nesjurn hafa skipt um eigend-
ur á undanfömum vikum.
Þau Benedikt Sigurðsson og
Heiðrún Þorgeirsdóttir sent
rekið hafa Apótek Keflavíkur
undanfarna tvo áratugi hafa
selt lyfjafræðingunum Asgeii'i
Asgeirssyni og Sigurði Gests-
syni apótekið. Þeir eru ekki
ókunnir í Apóteki Kettavíkur
því Asgeir hefur undanfarin
tíu ár starfað þar en Sigurður
starfaði í apótekinu unt árabil
en er nú apótekari á Hellu.
Hyggst hann selja rekstur sinn
fyrir austan áður en hann
kemur til starfa á Suðurnesj-
um á nýjan leik. „Við erum
búin að vera í þessum lyfja-
bransa í fjörtíu ár og kominn
tími til að breyta, leyfa öðrum
að komast að“, sagði Bene-
dikt Sigurðsson, apótekari í
samtali við blaðið.
Tvær bílasölur hafa skipt um
eigendur að undanförnu.
Ævar Ingólfsson úr Njarðvík
keypti um áramótin Bílasölu
Brynleifs og hefur m.a. hafið
byggingu á nýju húsnæði á
Fitjurn f Njarðvík. Þá hafa
þeir Smári Helgason og bræð-
urnir Ingvar og Hjalti Garð-
arssynir sem í sameiningu
hafa rekið Bifreiðagæsluna
við Leifsstöð, Gamla Gljáa og
heildsölufyrirtækið Hjördísi
Björk tekið við Bílasölu
Keflavíkur af bræðrunum
Eyjólfi, Sverri og Sævari
Sverrissonum. I framhaldi af
þeim viðskiptum eignuðust
þeir húsnæði það sem
Bílasalan Bílanes hefur verið í
undanfarin ár og þar hyggja
þeir setja á stofn bílaleigu.
Randver Ragnarsson eigandi
Bílaness þarf því að flytja sig
um set. Hann hefur m.a.
skoðað þann möguleika á að
byggja húsnæði í Njarðvíkum
fyrir bílasöluna.
Verulegar hræringar hafa
verið á bílasölumarkaðnum.
Á síðasta ári flutti Ingvar
Helgason hf. bílaumboð sitt úr
Bílakringlunni. Þarer nú sölu-
umboð fyrir Susukibíla og
Bílabúð Benna sem m.a. selur
Muzzo jeppa. Jöfur bættist í
Bílakringluna fyrir nokkrum
dögum. Fleiri umboð munu
vera hugsa sinn gang um að
vera með söluumboð í
Bílakringlunni.
Eigendaskipti hafa orðið á
einum elsta skyndibitastað á
Suðurnesjum en Ingólfur
Karlsson hefur keypt rekstur
veitingastaðarins Langbest af
Gunnari Friðrikssyni sem rek-
ið hefur staðinn mörg undan-
farin ár.
Þá seldu eigendur Efnalaugar
Heiðu við Tjarnargötu í
Keflavík reksturinn Sigurði
Jónssyni sem áður rak m.a.
Þvottahöllina í Ketlavík.
Góð aðsókn
í strætó
„Strætóferðirnar liafa gengið
ljómandi vel. Aðsókn er góð
og fólk er ánægt með þessa
nýju þjónustu í bæjarfélaginu.
Þetta hefur eiginlega gengið
miklu betur en við þorðum að
vona“, sagði Steindór Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri
SBK hf. en I. mars sl. voru
hluthöfum, fjármögnunaraðil-
um og fleirum sýndur nýr
bílafloti fyrirtækisins sem var
keyptur sérstaklega vegna
þessarar nýju þjónustu.
Fyrstu vikurnar var frítt í
strætó og kunni fólki greini-
lega að meta það að strætó var
nú farinn að ganga um allan
bæ. Fyrir u.þ.b. einum og
hálfum mánuði hófst síðan
gjaldtaka fyrir alla nema
skólakrakka í Reykjanesbæ í
1.-3. bekk. Steindór segir að
þrátt fyrir liana Itafi aðsókn
haldist mjög góð. Sá tími sem
frítt hafi verið í strætó hafi
Itins vegar veriö mjög góður
fyrir bílstjóra og starfsmenn
fyrirtækisins á meðan allir
voru að venjast nýjum hlutum
og aðlagast breyttum starfs-
háttum. Steindór segir að með
tilkomu strætó hafi t.d. orðið
breyting á hálkueyðingu á
götum í bænum en Áhaldahús
bæjarins sér um þann þátt.
Hálkueyðing er nú meiri svo
strætó eigi auðveldara um vik.
Allir vagnarnir sem sinna
strætóferðum hafa verið
merktir með auglýsingum frá
Sparisjóðnum í Keflavík og
verða þannig næstu tvö árin.
Er óhætt að segja að þeir séu
áberandi og skrautlegir en fyr-
irtækin BB skilti og B. Pálma-
son sáu um að merkja bílana.
Ekki alls fyrir löngu urðu
breytingar á áætlunarferðum
SBK milli Keflavíkur og
Reykjavíkur og ferðum fækk-
að en þeim var fjölgað á síð-
asta ári í tilraunaskyni. Fækk-
að var um eina morgun- og
kvöldferð og síðasta kvöld-
ferðin færð framar. Örlítil
breyting varð á helgaráætlun
en þar var einni ferð bætt við
kl. 10 á sunnudagsmorgun frá
Keflavík. Þrátt fyrir þessa
fækkun ferða hefur farþegunt
tjölgað á nýjan leik. Þai spilar
rysjótt veðurfar eitthvað inn f
að sögn Steindórs.
Apótekarahjónin Heiðrún Þorgeirsdóttir og Benedikt
Sigurðsson liafa selt Apótek Keflavikur. Nýir eigendur taka
við 1. ágúst nk.
Sviftingar hafa verið hjá bílasölum á Suðurnesjum. Ævar
Ingólfsson hefur m.a. keypt Bílasölu Brynleifs.
Gunnar Friðriksson hefur selt
veitingastðinn Langbest.
Allir strætóar SBK eru vel merktir
auglýsingum frá Sparisjóðnum í Keflavík
og verða þannig næstu tvo árin. Til
hliðar má sjá stjórn SBK hf. f.v. Steindór
Sigurðsson, framkvæmdastjóri, Reynir
Ólafsson, Sturla Eðvarðsson og Stefán
Jónsson..
10
Víkurfréttir