Víkurfréttir - 13.03.1997, Qupperneq 15
Keflavíkurkirkja ríður á vaðið fyrst kirkua
með fræðslustundir um sjálfsímynd:
Opmshá nnræða um sam-
hynhneigð, sjálfsvíg og
..Þelta gekk mjög vel og ljóst
að verkefnið var þarft“, sagði
Lára G. Oddsdóttir, guðfræð-
ingur og verkefnisstjóri með
kyrrðar- og fræðslustundum
sem voru í Keflavíkurkirkju
undanfarin fjögur fimmtu-
dagskvöld undir yfirskriftinni
Samræða um sjálfsímyndina.
Þessum fræðslustundum lauk
með samræðu sex fyrirlesar-
ara á laugardag sent allir
höfðu tekið fyrir ákveðin mál-
efni á fjórum fimmtudags-
kvöldum á undan. Þetta voru
þau Sigurlína Davíðsdóttir,
háskólakennari sem fjallaði
um fíkniefnavandann og
sjálfsfmynd alkóhólistans,
Sæmundur Hafsteinsson, sál-
fræðingur ræddi um sjálfsí-
myndina og Guðrún Eggerts-
dóttir, djáknanemi um sjálfs-
víg. Þær Jóna Lísa Þorsteins-
dóttir, guðfræðingur og Mar-
grét Pála Ólafsdóttir, leik-
skólastjóri veltu upp ýmsum
hliðum á samkynhneigð.
Markmiðið með þessum
fræðslustundum var að sögn
Láru G. Oddsdóttur að fjalla
um framangreind málefni á
málefnalegum gmnni og auka
skilning á margbreytileika
lífsins og skapa umburðar-
lyndi og einingu í margbreyti-
leikanum. Atakið er unnið í
samstarfi við Fræðsludeild og
þjóðmálanefnd kirkjunnar og
nefnd á vegum kirkjunnar um
málefnið samkynhneigð og
kirkja en á Kirkjuþingi 1996
var samþykkt að fela nefnd-
inni áframhaldandi starf sem
m.a. felst í því að „nefndin
efni til nærfærinnar og ein-
lægrar umræðu og fræðslu í
kirkjunni um málefni sam-
kynhneigðra".
I samræðunum í Keflavíkur-
kirkju á laugardag þökkuðu
fyrirlesararnir Keflavíkur-
kirkju fyrir að ríða á vaðið
með þessum fræðslustundunt.
Voru þeir almennt sammála
því að kirkjan væri vel búin
sem regnhlíf yfir svona mál-
efni. „Það vantar stundum
kjark til að takast á við ýmis
mál í þjóðfélaginu. Þekking
eyðir fordómum og því er öll
umræða um þessi viðkvæmu
mál af hinu góða“, sagði Sæ-
mundur Hafsteinsson, sál-
fræðingur.
Félag einstœðra foreldra:
Suðumesjadeild félags einstæðra
foreldra á Suðurnesjum mun
standa fyrir nántskeiði um með-
virkni í Stekk við Samkaup á
miðvikudagskvöldum. Leitast
verður við að fara ofan í rót með-
virkninnar og leiðir fundnar út úr
vandanunt. Leiðbeinandi er
Ragnheiður Óladóttir og verður
boðið upp á fyrirlestra, hópa-
vinnu, hugleiðslu og samskipta-
ætingar. Ahugasamir eru beðnir
um að snúa sér til formanns fé-
lagsins á Suðumesjum Kristínar
Bragadóttur í síma 421-3667 fyrir
20. mars.
Félagsfundur verður haldinn í
Stekk miðvikudagskvöldið 19.
mars kl. 20.30. Gestir fundarins
verða lögfræðingur félagsins
Katrín Theódórsdóttir og félags-
ráðgjafinn Oktavía Guðmunds-
dóttir. Munu þær gefa upplýsing-
ar um félagslega og lögfræðilega
stöðu ýmissa málefna sem ein-
stæðir foreldrar velta oft fyrir sér.
Félag myndlistumanna
í Reykjanesbw:
Fundur um
húsnæði
*.'
Félag myndlistarmanna
í Reykjanesbæ heldur
fund í Kirkjulundi
fimmtudaginn 20. mars
kl. 20.30. Á fundinum
verður væntanlegt hús-
næði félagsins rætt.
Kirkjuvegur 11
Húsrtæðisnefnd Reykjanesbæjar auglýsir eftir
umsóknum um tvær íbúðir fyrir aldraða að
Kirkjuvegi 11.
Um er ad ræða:
Einstaklingsíbúð á 3. hæð, stærð 47 fermetrar.
Hjónaíbúð á 2. hæð, stærð 81,9 fermetrar.
íbúðirnar eru félagslegar kaupleiguíbúðir
með 15% hlutdeildareign.
íbúðirnar eru til afhendingar í apríl 1997.
Umsóknir skulu berast Húsnæðisnefnd
fyrir 20. mars 1997.
Eldri umsóknir óskast staðfestar.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu
Húsnæðisnefndar Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12,
230 Keflavík, sími 421-6700
Húsnæðisnefnd Reykjanesbæjar.
fpFEB
FÉLAG ELDRI BORGARA
SUÐ URNESJUM
ELDRI BORGARAR
Á SUÐURNESJUMl
FEB hefur samið við Kaupfélag Suðurnesja um 10% afslátt af öllum vörum í verslunum
Kaupfélagsins á Suðurnesjum (nema KASKO) dagana 20. - 26. mars n.k.
Afslátturinn verður veittur gegn framvísun félagsskírteinis FEB.
Skráning nýrra félaga í FEB er á öllum afgreiðslustöðum
Sparisjóðsins á Suðurnesjum.
Félag eldri borgara á Suðurnesjum. Kaupfélag Suðurnesja.
Víkurfréttir
15