Víkurfréttir - 13.03.1997, Qupperneq 19
H Heiða Birna Guðlaugsdóttir fermist 16. mars:
Hannaði fermingarkjólinn sinn sjálf
Heiða Birna Guðlaugsdóttir
býr í Keflavík og fermist í
Keflavfkurkirkju 16. mars nk.
Hún hefur sótt fermingar-
fræðslu í vetur hjá sr. Olafi
Oddi Jónssyni og Sigfúsi B.
Ingvasyni og á aðeins eftir að
Iæra trúarjátninguna að sögn.
Heiða segist fermast til þess
að játa trú sfna á Guð en hún
bætir því við að sumir fennist
líka til þess að fá gjafir. „Eg
hef alltaf verið trúuð og trúi á
Guð og Jesú krist“, segir
Heiða ákveðin og segist hún
oft fara með bænir. „Ég fer
ekki með neina sérstaka bæn
heldur bið ég oft fyrir fjöl-
skyldu minni“. Þegar Heiða er
spurð að því hvort hún sé
komin í fullorðinna manna
tölu eftir ferminguna segist
hún ekki trúa að hún breytist
mikið. „Mér finnst það ekki,
mér finnst ég allavegana ekki
vera fullorðin. En það eru
ýmsir hlutir sem ég má gera
eftir ferminguna eins og að
Heida Birna Gudlaugsdóttir
fermist 16. mars nk.
setja strípur í mig og klippa
mig. Svo má ég ekki setja
fleiri eymalokka í mig íyrr en
eftir ferminguna. Ég er með
tvo núna og langar til þess að
fá mér fleiri", segir Heiða og
hlær.
Kvíðir þú fyrir einhverju í
fermingunni?
„Já ég kvíði fyrir því að fara
með trúarjátninguna því ég
kann hana ekki ennþá. Svo
kvíði ég fyrir því að ganga
upp að altari því ég verð í síð-
um kjól og ég er hrædd um að
ég stígi á faldinn“, segir Heiða
og brosir. „Svo fer ég bara
alltaf að hlægja, ég ræð ekki
við mig“.
Heiðu langar í græjur í fenn-
ingargjöf en auk þess langar
henni í pening. Hún afsakar
sig þó um leið og hún nefnir
það og segir að það gæti
kannski litið út eins og græðgi
en peningana ætlar hún að
leggja inn í banka til þess að
nota í utanlandsferð.
Heiða hefur gaman af mynd-
mennt enda langar hana að
læra fatahönnun í framtíðinni.
Hún hannaði fermingarkjólinn
sinn sjálf og er hann dökkblár
og dragsfður, ermalaus og
með stuttum kraga sem er vin-
sælt hjá ungum fermingar-
stúlkum í dag.
Fermingarhárið í ár:
Bnfaldar greiðslur
-segir Hjördís Hilmarsdóttir á hárgreiðslustofunni Capello
„Við bjóðum upp á einfaldar
greiðslur. Það verða engar
kmllur eða slöngulokkar í ár“,
segir Hjördís Hilmarsdóttir
sem rekur hárgreiðslustofuna
Capello ásamt Svölu Ulfars-
dóttur og Jóhönnu Oladóttur.
„Hárið er ntikið tekið upp að
framan og hluti hársins hafður
sléttur. Vöfflur eru mikið not-
aðar og settar í lokk sem ligg-
ur niður að aftan. Skrautið
sem notað er í hárið er mis-
jafnt og er mikið að breytast.
Það er orðið mikið meira um
spennur, perlur og semalfu-
steina í staðinn fyrir blómin
sem hafa verið notuð.
Ég tel að stelpumar eigi að fá
að vera stelpulegar og reyni
ég að hafa hárgreiðslunar lát-
lausar og nota þá vöfflur í
staðinn fyrir slöngulokka",
segir Hjördís.
Strákarnir verða heldur ekki
útundan og að sögn Hjördísar
fá þeir sér léttar stnpur og er
hárið að lengjast. Auk þess
eru bartamir vinsælir.
Stúlkan á myndinni er með
einfalda fermingarhár-
greiðslu og hárid skreytt
með perlum.
Fermingar-
feröalagiö
ýkt gaman
-segir Olafur Viggó Thordesen úr
Keflavík eu hann fermist ót
Pálmasunnudag
Óafur Viggó Thordesen fer-
rnist á pálmasunnudag og
hefur líkt og Heiða sótt
fermingarfræðslu í vetur hiá
Olafi
Jóns-
syni og sr.
Sigfúsi B.
Ingvasyni.
Að hans
sögn hefur
f e r m -
ingarundir-
búningurinn
bæði verið
fræðandi og
s k e m m t i -
legur og
þegar hann
er spurður
að því hvað
felist í fermingu svarar
hann eftir stutta umhugsun
„Maður gengur í gegnunt
skírnina aftur og staðfestir
að maður trúir á Guð“.
Ólafur segir krakka líka
fermast út af gjöfununt og
af því að allir gera það.
Femtingarböm fóm í fenn-
ingarferðalag í Vatnaskóg
sl. haust þar sem þau gistu í
eina nótt og skipulögðu
m.a. messu í Hallgríms-
kirkju í Saurbæ. „Fenning-
arferðalagið var ýkt gam-
an“, segir Ólafur ákveðinn.
Ólafur er trúaður og fer
hann stund-
um með faðir
vorið að eigin
sögn. Helst
kvíðir hann
fyrir því að
ganga til alt-
aris á ferm-
ingardaginn
og frnnst hon-
um hann ekki
verða fullorð-
inn við það
eitt að ferm-
ast. Þó segist
liann ekki
niega lita á
sér hárið eða eitthvað slíkt
fyrr en eftir fermingu.
Óskafermingargjöfin er
græjur sem geta geymt 61
geisladiska með hátölurum
og útvarpi „eins og ég sá
auglýst í dagblaðinu á blað-
síðu fjögur", segir Ólafur
og hlær. Áhugamál Ólafs
eru fþróttir og æfir hann
körfubolta með 8. flokki
Kefavik.
Skeytasala Víkverja
Skeytasala Víkverja verður starfrækt í húsvarðaríbúðinni í Stapa
alla fermingardagana þ.e. 16, 23, og 27. mars frá kl. 10.00 til 19.00.
Símaþjónusta verður í síma 421-5966. Eyðublaðið kostar 400 krón-
ur og eru öll skeytin tölvuprentuð.
Eins og flestum er kunnugt er joetta aðalfjáröflun fyrir skátafélagið
og vonumst við til að svo rnegi vera áfram. Vonandi helst sú lietð
áfram að fólk sendi bömum og foreldrum skeyti og kveðjur á ferm-
ingardaginn. Öll eigum við fenningarskeytin okkar og gaman er að
skoða þau eftir mörg ár og rifja upp minningar. Megi skátastarf
dafna vel og lengi um ókomna tíð í bænum okkar. Ykkar stuðning-
ur er okkar hvatning í starfi.
Skátafélagið Víkverjar
FRETTAVAKT
ALLAN SÓLARHRINGINN
ÍSÍMA 854 2917
AMERÍSK FERMINGARÚ
TWIN 97x190 sm. kr. 24.600.- stálgr. 3.900.-
TVIN XI 97x203 sm. kr. 29.100.- stálgr. 3.900.-
FULL 135x190 sm. kr. 33.100.- stálgr. 4.900.-
FULLXL 135x203 sm. kr. 39.100.- stálgr. 4.900.-
QUEEN 152x203 sm. kr. 39.900.- stálgr. 5.600.-
Fermingorgiölin' °| .
er Senly omeriskt rum tr“ EX
Vi»s«n,leg«st ge.» 1
ÖðbUuiti h ÚftjÖtjU
Hafnargötu 57 - Kjarna
sími 421 1099
Víkurfréttir
19