Víkurfréttir - 13.03.1997, Side 23
Góður ár-
angur á
unglinga-
móti KR
Sundmenn úr sunddeild
Keflavíkur náðu afbragðs ár-
angri á unglingamóti KR
sem fram fór um síðustu
helgi. Alls kepptu um 60
sundntenn frá félaginu á
þessu móti og stóðu þeir sig
all flestir með mikilli prýði
og bættu fyrri árangur
talsvert. I flestum aldur-
shópum átti félagið einn eða
fleiri fulltrúa sem öttu kappi
um efstu sætin og fór það
svo að lokum að félagið haf-
naði í öðra sæti í stigakeppni
félaga. Þrír sundmenn úr
félaginu náðu tilsettum
tímalágmörkum fyrir þátt-
töku í verkefnum unglinga-
landsliðs Islands. Það voru
þær Karen Lind Tómasdóttir,
Birgitta Rún Birgisdóttir og
Eva Dís Heimisdóttir sern
einnig átti stigahæsta sund
mótsins og hlaut að launum
veglegan bikar. Fyrir höfðu
þau Rúnar Már Sigurvinsson
og íris Edda Heimisdóttir
áunnið sér unglinga-
landsliðssæti. Um næstu
helgi fer fram í
Vestmannaeyjum
Islandsmeistaramótið og
verður fróðlegt að fylgjast
með árangri okkar fólks sem
setur markið hátl og hefur
undirbúið sig eftir því.
I Körfukiiattleikur DHL-deildin:
Öll Suðurnesja-
liðin komust áfram
Njarðvík og Keflavík trvggðu sér sæti í
undanúrslitum I)HL-dcildarinnar í körfuk-
nattleik karla í gærkr öldi. l>á lögðu
Njarðvíkingar Hauka en Keflvíkingar ÍR.
Ljóst var á þriðjudag eftir sigur
Grindvíkinga á Skallagrím að þeir léku þar
einnig. Athvgli vakti að öll liðin unnu sínar
viðureignir 2:0 og einnig (jórða liðið KR sem
lagði ÍA 2:0. l>að verður því hart barist í 4-ra
liða úrslitunum og Ijóst að annað liðið sem
leikur til úrslita um íslandsmeistaratitilinn
veröur af Suörnesjum. I fjögurra liða úrslil-
um mæta Keflvíkingar, KR og Grindavík,
Njarðvík. Undanúrslitin hefjast á sunnudag
en þá eiga Keflavík og Grindavík heimaleik,
síðan verður leikið annan hvern dag.
Njardvíkingar á réttri leið
Ekki vom margir sem bjuggust við því að
Njarðvík myndi leggja Hauka 2:0 í átta liða
úrslitum og virðist sem allt sé að smella sariian
hjá þeim á húrréttum tíma. Fyrri leikurinn sem
lauk 88:83 fyrirNjarðvík, hálfleikstölur 45:49,
varmikill baráttuleikur og réðust úrslitin ekki
fyrr en á lokamínútunni. Þá gerði Pétur
Ingvarsson þriggja stiga körfu og minnkaði
muninn í eitt stig, 82:81. Svenir svaraði fyrir
Njarðvík, 84:81 og Sigfús minnkaði muninn
aftur í eitt stig 84:83. Síðan bmtu þeir á
Jóhannesi Kristbjömssyni sem setti bæði
vítaskotin ofaní og Torrey John átti sfðasta orðið,
88:83.
Stigahæstu menn Njarðvíkur: Friðrik Kagnarssun
21,Torrey John 19, Kristinn Einarsson 15.
Stigahæstu menn Hauka: Shawn Smith 28, Sigfús
Gizurason 16, Pétur Ingvarsson 15.
Seinni Ieikurinn fór fram í Njarðvík á
miðvikudagskvöld og sigraði Njarðvík 94:85,
hálfleikstölur 46:45. Haukamir byrjuðu þó betur,
Shawn Smith var þá óstöðvandi og gerði 10 stig
strax í upphaft leiks og Haukamir vom skyndile-
ga komnir með 9-stiga forystu 9:18. Þá gerðu
Njarðvíkingar 10 stig í röð og breyttu stöðunni í
19:18. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks skiptust
Iiðin á að leiða en Njarðvík var yfir 46:45 í
hálfleik. í seinni hálfleik var sem örvænting bry-
tist út hjá Haukum og þeir fóm að taka ótímabær
skot. A sama tíma gengu Njarðvíkingar á lagið
og unnu nokkuð sannfærandi.
Stigahæstu menn Njarðvíkur: Páll Kristinsson 2(1,
Kristinn Einarsson 18. Sverrir Þór Sverrisson 18.
Stigahæstu mcnn Hauka: Sahvvn Smith 32, Pétur
Ingvarsson 15.
Öruggt hjá Keflavík
IR-ingar vom lítil fyrirstaða fyrir bikarmeista
Keflavíkur eins og margir hölðu spáð. Fyrri
viðureignin sem háð var í Keflavík á
mánudagskvöld var algjör einstefna að körfu IR
og urðu lokatölur 107:69, hálfleikstölur 53:32.
Keflavík yfirspilaði IR gjörsamlega og allir
fengu að spreyta sig og allir stóðu sig vel. Það
var þó Damon Johnson sem átti bestan leik og
gerði hann 38 stig þrátt fyrir að hafa hvílt síðustu
8 mínútumar. Næstur kom Guðjón Skúlason
með 18 stig og Albert Óskarsson gerði 16.
Einu mennimir sem létu eitthvað að sér kveða í
liði ÍR vom þeirTito Baker (30 stig) og Eiríkur
Önundarson (15 stig).
I seinni leiknum sigmðu Keflvíkingar einnig,
iokatölur urðu 92:79 eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 46:34. Hann var leikinn í Seljaskóla í
gærkvöldi og var heldur meiri barátta í honum
heldur en f jreim fytri, þó var sigur Keflvíkinga
nokkuð ömggur. Þeir náðu fjótlega forystunni og
héldu henni út leikinn. I seinni hálfleik tókst IR
að minnka muninn niður í 6 stig en nær komust
þeir ekki.
Stigahæstu menn Keflavíkur: (lUðjón Skúlason 23,
Damon .lohnson 18. Kristinn Eriðriksson 19.
Stigahæstu menn IR: Tito Baker 32, Eiríkur Önun-
darson 20.
íslandsmeistarar
Grindavíkur til alls líklegir
Grindvíkingar komust í undanúrslit eftir að hafa
lagt Skallagrím létt í átta liða úrsiitum. Fyrri
leikinn sem háður var í Grindavík á sunnudag
sigruðu Grindvíkingar 111:68, hálfleikstölur
52:37. Eins og tölumar gefa til kynna var sá
sigur aldrei í hættu. Bestur í jöfnu liði
Grindvíkinga var Herman Myers sem sýndi oft
skemmtileg tilþrif.
Stigahæstu menn Grindavíknr: Herman Myers 30,
Unndór Sigurðsson 20, Marel Guðlaugsson 16.
Stigahæstu menn Skallagríms: GrétarGuðlaugsson
16, Tómas Holton 15.
Seinni leikurinn fór fram í Borgamesi á
þriðjudagskvöid og vom Borgnesingar þá
staðráðnir í að láta ekki valta yftr sig aftur sem
þeim reyndar tókst en ekki meir því
Grindvíkingar sigmðu 66:80, hálfleikstölur
33:49. Eins og áður segir mættu Borgnesingar
ákveðnir til leiks með baráttuna í lagi en það
dugði ekki til því Grindavíkingarem einfaldlega
með sterkara lið og gaman verður að fylgjast
með Islandsmeistumnum það sem eftir lifir
móts.
Stigahæstu menn Grindavíkur: Herman Myers 27,
Helgi Jónas Guðfinnsson 21, Pétur Guðmundsson
10.
Stigahæstu menn Skallagríms: Joc Rhett 26, Grétar
Guðlaugsson 13.
SKAGFKSfU SVEIFUNI FtSTI
Geirmundur Vdltysson
og félagar spila á stórdansleik
i Festi föstudaginn 14. mars kl. 23-03
ALDURSTAKMARK 18 ÁR
Midaverb kr. IOOO.-
Já abeins 1000.- kronurl
Víkurfréttir
SUÐURNESJAMENN!
Sjáumst í Festi
23