Víkurfréttir - 28.08.1997, Page 11
Raðauglýsingar
ÚTBOD!
Tilboð óskast í viðgerð og
málun utanhúss á
Fífumóa 5-A.B.C. Njarðvík.
Útboðsgögn verða afhent hjá
Teiknistofunni Örk, Hafnargötu 90,
2. hæð Keflavík, frá og með
föstudeginum 29. ágúst 1997
gegn 5000 kr. skilagjaldi.
Vettvangsskoðun fer fram
3. september kl. 13.
Opnun útboðs fer fram
8. september 1997 kl. 11, hjá
Teiknistofunni Örk að Hafnargötu
90, 2. hæð Keflavík.
Tónlistarskólinn í Keflavík
INNRITUN
Nýjum umsóknum um skólavist
verður veitt viðtaka á skrifstofu
skólans Austurgötu 13, mánu-
daginn 1. september, þriðjudaginn
2. september og miðvikudaginn 3.
september frá kl. 13:00-19:00.
Ekki er innritað í síma.
Allar algengustu námsgreinar eru í
boði en sérstök athygli er vakin á
að stefnt er að fjölgun nemenda í
söng, á celló, harmonikku og túbu.
Einnig er vakin athygli á forskóla
barna á aldrinum 6-8 ára.
Nemendur frá fyrra skólaári gangi
frá umsóknum sínum á sama stað
og á sama tíma.
Umsóknir sem fóru á biðlista í fyrra
þarf að endurnýja.
Nemendur í framhaldsskólum þurfa
að láta afrit af stundaskrám sfnum
fylgja umsóknum.
Kennsla hefst mánudaginn
8. september.
Skólastjóri.
Bæjarráð samþykkir kr.
6.000.000 einfalda bæjará-
byrgð til Suðumes ehf. sem
tryggt verður með veði í eign-
um fyrirtækisins að Vatnsnes-
vegi 2. Alit Lögfræðiskrif-
stofu Suðumesja liggur fyrir.
Bæjarstjóra falið að ganga frá
málinu.
Islcnska kvikmyndasam-
steypan sækir um að reisa
leikmyd fyrir kvikmyndatöku
við Valahnúk og á hvera-
svæðinu í grennd Saltverk-
smiðjunnar. Skipulags- og
tækninefnd samþykkir fyrir
sitt leyti framkvæmdir við
Valahnúk enda verði skilyrt
að gengið verði frá svæðun-
um í upprunalegt liorf að
kvikmyndatöku lokinni.
Nefndin getur ekki tekið af-
stöðu tii bygginga á hvera-
svæðinu þar sem það liggur í
lögsagnarumdæmi Grindavík-
ur.
SKOLATOSKUUTSALA
0%
afsiáttur
SikéúÍ Hefadkur
Tónlistarskóli Njarðvíkur
INNRITUN
Innritun fyrir skólaárið 1997-1998
verður sem hér segir:
Þriðjudagur 2. september kl. 12-18
Innritun nemenda frá fyrra skólaári
Miðvikudagur 3. september kl. 12-18
Innritun nýrra nemenda.
Innritað er í skólanum að Þórustíg 7, ekki í gegnum síma.
Þeir sem eiga umsóknir frá því í vor þurfa ad koma og
staðfesta þær á fyrri innritunardeginum.
Nemendur sem ekki eru í Njardvíkurskóla þurfa ad hafa með
sér stundaskrá sína.
Ganga skal frá greiðslu skólagjalda við innritun.
Athugli er vakin á eftirfarandi námsmöguleikum
fyrir unga byrjendur:
Forskóli 1 fyrir 6 ára börn (1. bekkur grunnskóla).
Forskóli 2 fyrir 7 til 8 ára börn (2. og 3. bekkur grunnskóla).
Nám á fiðlu samkvæmt Suzuki-aðferðinni fyrir börn
frá þriggja ára aldri.
Sérstaklega er óskað eftir nemendum í almennar
deildir á málmblásturshljóðfæri, slagverk,
rafmagnsbassa og selló.
Einnig er vakin athygli á eftirfarandi valgreinum: Jazzdeild
fyrir nemendur á öllum hljóðfærum og Tölvutónlistardeild
sem er ætluð tónlistarnemendum sem eru í 8., 9. og 10. bekk.
Kennsla hefst mánudaginn 8. september.
Skólastjóri.
Víkurfréttir
11