Víkurfréttir - 27.11.1997, Blaðsíða 1
§
-J
c/i
Uj
cc
Q
Q
Q
co
Q
Q
-J
CQ
O
c/>
í>.
O
Q
CD
O
l
'í
K.
'UJ
cc
u.
h-
CQ
cc
co
FRETTIR
47. TÖLUBLAD 18. ARGANGUR
FIMMTUDAGURIIMN 27. NOVEMBER 1997
Þeysti til þess
að ná flugi
Lögieglan í Keflavík tók alls 40 ökumenn fyrir fyrir of
hraðan akstur og önnur umferðarlagabrot í síðustu viku
en þar af var einn ökumaður sviptur ökuleyfi.
Hann var á mikilli hraðferð ökumaðurinn sem lögreglan
stöðvaði á 133 km hraða sl. þriðjudag þar sem hámarks-
hraði er 70 km. Ökumaðurinn gaf þá skýringu að hann
væri orðinn of seinn í flug á Keflavíkurflugvöll. Lögregl-
an sá aumur á honum og mun hann því missa ökuleyfí
sitt við komuna til landsins.
Fjórir ökumenn voru einnig teknir fyrir of hraðan akstur
sl. þriðjudag á Strandarheiði og tveir voru teknir fyrir
ólöglegan framúrakstur. Vamarliðsmaður var jafnframt
tekinn á brautinni á 149 km hraða.
L
J
Kvikmyndafélagið ísfilm var við myndatökur við Ægissand í Grindavík á dögunum. Atriði í myndinni Her skal danses, eða
Dansinn, var tekið í flæðarmálinu og var notuð öflug vindvél og slökkvibíll úr Grindavík sem sprautaði vatni yfír leikara til að
gera ástandið eins og í„snarvitlausu veðri" en aðstæður á tökustað voru ákjósanlegar. VF-mynd: Grétar Sigurðsson, Grindavík.
□ Glöggir
lögregluþjónar
Um þessar mundir stendur yfir
átak lögreglu á suðvesturhom-
inu þar sem fylgst er með ölv-
unarakstri. Tilefnið er sá tími
sem að jólaglöggin er vinsæl
og ætti enginn að aka heim
eftir slíkan fögnuð. Má því
segja að lögregluþjónar á Suð-
urnesjum verði „glöggir" á
næstunni.
Lögreglan í Keflavík tók þrjá
ökumenn í síðustu viku fyrir
meinta ölvun við akstur.
□ Mikil ölvun
unglinga
Mikið annríki var hjá Lögregl-
unni í Keflavík aðfaranótt
laugardags.
Dansleikur á vegum Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja var
haldinn í Stapa þetta kvöld og
á sama tíma var opið hús í fé-
lagsmiðstöðinni Fjörheimum.
Þurfti lögregla að hafa afskipti
vegna mikillar ölvunar ung-
linga.
Lögreglan hafði afskipti af 11
unglingum vegna útivistar-
brota.
□ Vinnuslys
hjá Happasæli
Vinnuslys varð um borð í
Happasæli sl. sunnudag og
barst Lögreglunni í Keflavík
tilkynning um að báturinn
væri á leið til hafnar með slas-
aðan skipverja kl. 16.50 en
slysið átti sér stað kl. 14.00.
Skipverjinn lenti með höndina
í dráttarkarli þegar verið var að
draga net og handleggsbrotn-
aði hann illa. Hann var fluttur
á Sjúkrahús Suðurnesja og
þaðan á Sjúkrahús Reykjavík-
ur.
Maður sleginn
í fótinn með
hafnarboltakylfu
Lögreglunni í Keflavík
bárust alls 6 kærur um
minniháttar líkamsárásir
í síðustu viku.
Tveimur mönnurn lenti
saman fyrir utan Nýja bíó
við Hafnargötu rétt fyrir
fimm aðfaranótt laugar-
dagsins. í hita leiksins
hafði annar slegið hinn í
fótlegginn með hafnar-
boltakylfu en sá sem fyrir
árásinni varð hlaut minni-
háttar áverka og hyggst
ekki kæra málið. Sá sem
beitti kylfunni fékk að sofa
úr sér í fangageymslum
lögreglunnar.
Skipulagður sparnaður
ðtSÞARISJÖOURIHH
í KEFLAVÍK