Víkurfréttir - 27.11.1997, Qupperneq 9
Todmobile
IX
REYKJANESBÆR
BREYTINGAR
Á UMFERÐ
Samþykktar hafa verið eftir-
taldar breytingar á umferð í
Reykjanesbæ.
Efstaleiti og Vatnsholt verða
gerðar að botnlangagötum þannig
að tengingu milli þeirra verður
lokað við núverandi hraðahindrun.
Umferð að og frá Efstaleiti verður
um Flugvallarveg en umferð að og
frá Vatnsholti um Aðalgötu.
Breyting þessi er tímabundin
til eins árs.
Helguvíkurvegi verður lokað, þó
þannig að honum verður haldið
opnum timabundið meðan loðnu-
vertíð stendur ár hvert. Lokun að
sunanverðu er við gámasvæði á
Bergi, en að norðanverðu við
Helguvíkurnef. Aðkoma að Helgu-
vík verður því einungis um
Stakksbraut.
Breytingar þessar taka gildi
þriðjudaginn 2. des. næstkomandi
kl. 13.00.
Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ
Hlutavelta
Þessar ungu hnátur héldu ný-
verið hlutaveltu til styrktar
Sjúkrahúsi Suðumesja.
Þær söfnuðu kr. 1.573 og heita
Ester Anna Albertsdóttir og
Katrín Sigrún Agústsdóttir.
Hana-
kamburinn
Yflrheitan hanakamb
hleypur dauöhrœdd hœna.
A eftir kemttr kolsvart lamb
sem kannski þarf að sprœna.
Nemendur í 5 BS sömdu
þessa vísu en þau vom að æfa
sig í gerð stuðla og höfuðstafa
í Njarðvíkurskóla.
Jólahandbók
Víkurfrétta
kemur út
næsta
fímmtudag.
Opib um
helgina!
Sölustarf í Njarðvík
Starfið er fjölbreytt og felst m.a. í
mótttöku og afgreiðslu viðskiptavina,
símasölu og tiltekt pantana, tilfallandi
starfa á lager auk annars.
Vinnutími 9:00-18:00.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Reyklaust vinnustaður.
Umsækjendur sendi eiginhandar
umsóknir til Víkurfrétta merktar
„Besta" fyrir 3. des. nk.
Ekki er tekið við umsóknum í síma.
Besta ehf., Brekkustíg 39,
260, Njarðvík.
Framsóknarfélag Keflavíkur,
Njarðvíkur og Hafna
AFMÆLISFA GNADUR
Framsóknarfélag Keflavíkur verður 60 ára
5. desember nk. og Félag ungra framsóknar-
manna varð 40 ára 19. júní sl.
Af því tilefni efna félögin til fagnaðar í
Félagsheimilinu Stapa föstudaginn 5. desember nk.
Á fagnaðinn mæta góðir gestir svo sem ráðherrar
flokksins, fyrrverandi og núverandi þingmenn og svo
við framsóknarmenn af Suðurnesjum!
Húsið verður opnað kl. 19.
Dagskrá hátíðarinnar:
1. Kvöldverdur kl. 20.
2. Rædur og ávörp.
3. Aldnir félagar heidraðir.
4. Jóhannes Kristjánsson skemmtir.
5. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur fyrir dansi til kl. 03.
Tilkynningar um þátttöku á afmælisfagnadinn þurfa að berast sem
fyrst til Ara Sigurdssonar í síma 421-2377 eða til Gylfa
Guðmundssonar í síma 421-4380.
Framsóknarmenn: Mætum vel og skemmtum okkur saman. Það er
vissulega ástæða til að fagna merkum áfanga í sögu félagsins.
Stjórnin.
Víkurfréttir
9