Víkurfréttir - 27.11.1997, Page 10
HOLLT OG GOTT
í HOLTASKÓLA
■ Inn við beinið
Lysi, vatttsgías og
banatti t tttottjttttttta í
Björn Herbert Guðbjörnsson er nýkjörinn formaður nýstofnaös bæjarinálafélags jafnaðar- og félagshvggju-
manna í Reykjanesbæ sem hvggst bjóða frani til næstu sveitarstjórnakosninga. Björn er mikill dýravinur
og meðal þeirra gæludýra sem hann hefur átt um ævina eru fiskar, kanarífuglar, páfagaukar, dúfur,
hamstrar, mýs, kanínur, köttur og hestur. Núna er konan hans uppáhaldsgæludýrið og þolir hún að eigin
sögn enga samkeppni. Björn var svo Ijúfur að sýna okkur hvernig hann væri inn við beinið.
Nafn: Bjöm Herbert Guðbjömsson.
Aldur: 42 ára.
Fjölskylduhagir: Konan mín heitir Ing-
| unn Ósk Ingvarsdóttir leikskólakennari og
eigum við sarnan Ingvar 10 ára, Sindra 7
' ára og Maríu Ósk 2 ára. Frá fyrri tíð á ég
Ellen Mörk sem er í dag 24 ára og gerði
hún mig að stoltum afa þegar Daníel Ingi
kom í heiminn fyrir rúmum þremur árum
síðan.
Atthagar: Fæddur í Ketlavík en á ættir
að rekja til Snæfellsnes og Landeyja.
j Starf: Framkvæmdastjóri Rafmagnsverk-
taka Keflavíkurehf.
Bíll: Mitsubishi Pajero ttrgerð 1996.
I.aun: Mjög góð.
í uppáltaldi: Bömin mín.
Besti matur: Gott lambalæri.
j Besti drykkur: Gott rauðvín með lamba-
lærinu en annars vatn.
j Uppáhaldspersóna: Jón Baldvin Hanni-
balsson.
Tónlist: Hlusta á alla tónlist nema þung-
arokk.
Áhugamál: Fjölskyldan og útivera.
Toppurinn er útivera með fjölskyldunni.
íþróttafélag: Blakfélagið „Kátir Karlar"
en það er topplið sem skipað er úrvali
blakspilara í Reykjanesbæ ?? ára og eldri.
Einnig æft ég „fílaballett" nteð stómm
strákum í Perlunni en annars er auðvitað
Keflavík mitt félag.
Gæludýrið: Núna er það bara konan mín,
hún þolir enga samkeppni. Eg er mikill
dýravinur og hef átt mörg gæludýr um
dagana. Má þar nefha allskonar fiska í
búmm, kanarífúgla, páfagauka, dúfúr,
hamstra, mýs, kanínur, kött og hest.
Hvenær vaknar þú á morgnana: Virka
daga kl. 7.30 þegar konan sparkar mér
ffamúr en um helgar helst ekki fynr en að
ganga 10 þegar litla dýrið mitt hún María
Ósk nær að sparka mér framúr.
Morgunmatur. Lýsi, vatnsglas og ban-
ani. (í réttri röð).
Heimilisstörf: Eg ernokkuð liðtækur í
edhúsinu þótt ég segi sjálfur ffá. Viljugur
að elda matinn og ganga frá. Einnig er ég
nokkuð duglegur að koma bömunum í
háttinn og lesa sögur fyrir þau en að öðm
leyti sér konan að mestu um þessi störf.
Pólitíkin: Harður jafnaðarmaður og fé-
lagi í Alþýðuflokknum.
Pað fyndnasta: Að sjá Halldór Blöndal
réttlæta hækkun á afríotagjöldum Pósts og
Síma.
Bókin á náttborðinu: Hvemig elska eigi
konu, en því miður er sú ágæta bók sem
ég klára vonandi aldrei oftast undir haug
af ýmsum blöðurn og pappímm.
Helsti veikleiki: Á erfitt með að segja
nei.
Helsti kostur: Sanngjam.
Besta sumarfríið: Síðasta sumar í sumar-
húsi á Sp:íni.
Hvað myndir þú gera ef þú ynnir stóra
Nemendur eru duglegir að aðstoða í eldhúsinu.
Þær Álfhildur og Dagbjört í 9. bekk smyrja hér
hrúgu af langlokum með skinku og osti.
Arnar og
Guðni í 10.
bekk kusu að
fá sér heitan
mat.
vtnninginn i
Lottóinu: Borga upp skuldir og ef
eitthvað væri eftir að bjóða konunni í sigl-
ingu um Karabíska hafið.
Fallegasti staður á Islandi: Suðaustur-
landsundirlendið ffá Eyjafjöllum að Höfii
í Homaftrði.
Hvernig líst þér á komandi sveitar-
stjórnakosningar: Mjög vel, ég er bjart-
sýnn á að sameiginlegur listi jafríaðar- og
félagshyggjufólks nái meirihluta í Reykja-
nesbæ. Þetta er ótrúlega samstilltur hópur
sem kenturekki eingöngu úr röðum Al-
þýðuflokks- og Alþýðubandalagsmanna,
heldur er mikið af fólki með okkur sem
ekki tilheyrir neinum stjómmálaflokki en
er sammála því að styrkja þurfi fjölskyld-
una sem homstein samfélagsins, að allir
hafi atvinnu sem sutndi undirnauðsyn-
legri framfærslu og að leggja þurfi álter-
slu á jöfríuð og félagslegt réttlæti.
I Holtaskóla leggja
matseljurnar þær
Guðrún og Ástríður
sitt afmörkum til að
nemendum líði vel og
uppskera ríkulega
matarást að launum.
í Holtaskóla er starfrækt öflugt mötuneyti nemenda, því heilbrigð sál í hraustum líkanta og
södduni er forsenda framfara í náminu. Meðfylgjandi svipmyndir úr skólastarfmu fengum
við sendar nú í vikunni frá Holtaskóla.
Þessir krakkar völdu
spónamat og samlokur.
10
Vílcnrfréti’r