Víkurfréttir - 27.11.1997, Blaðsíða 18
Bubbi Morthens
styður körfuknatt-
leiksdeild UMFI\I
Hubbi Morthens heldur
tónleika í Stapa sunnu-
dagskvöldið 30. nóvember í
boði kdd. Njarðvíkur.
Miðaverð er kr. 1000 og
hefst forsala í Stapa kl.
16:00 á sunnudag en tón-
leikarnir hefjast síðan kl.
21:00. Óhætt er að hvetja
alla aðdáendur goðsins til
að mæta sem og alla stuðn-
ingsmenn UMFN en allur
ágóði tónleikanna rennur til
körfuknattleiks-
deildarinnar.
OPNUNARTIMI
VERSLANA
í DESEMBER
Laugardagur29. nóv. kl.ll-Meða 10-12
Sunnudagur 30. nóv. Lokað
Laugardagur 6. des. kl. 10-16
Sunnudagur 7. des. kl. 13-17
Laugardagur 13. des. kl. 10-18
Sunnudagur 14. des. kl. 13-18
Miðvikudagur 17. des. kl. 10-18
Fimmtudagur 18. des. kl. 10-18
Föstudagur 19. des. kl. 10-22
Laugardagur 20. des. kl. 10-22
Sunnudagur 21. des. kl. 13-22
Mánudagur 22. des. kl. 10-22
Þorláksmessa 23. des. kl. 10-23
Aðfangadagur 24. des. kl. 09-12
- opið í hádeginu í desember.
- aðrir dagar eins og venjulega.
- þessi opnunartími gildir fyrir flestar verslanir og
var samþykktur á fundi kaupmanna i Reykja-
nesbæ 11. nóvember sl.
■ Fyrsta frumsýningin í nýju leikhúsi:
Keflavíkur
Lið Sunddeildar Keflavíkur
náði ágætis árangri er það
hafnaði í öðru sæti í
Bikarkeppni Islands 1. deild.
Fyrir mótið var nokkuð Ijóst
að sundsveit Hafnfirðinga
myndi bera sigur úr býtum en
að Keflvíkingar myndu lieyja
liarða baráttu við Ægi um 2.
sætið. Fljótlega sigu
Keflvíkingar framúr og þegar
uppi var staðið var 2000 stiga
munur á félögunum. Fyrir
utan persónulegar bætingar
sundmannanna sem voru þó
nokkrar var gaman að fylgjast
með samstöðu sundmannanna
sem fór vaxandi með hverjum
deginum og náði hámarki á
sunnudeginum. Það endur-
speglaðist vel í því að sund-
menn félagsins bættu sig í
öllum sundum þess dags.
Arangur sunddeildarinnar
hefur verið með miklum ágæ-
tum þetta árið. Liðið sigraði í
Aldursflokkameistaramóti
Islands en það er stærsta mót
ársins. Tíu sundmenn kepptu
fyrir hönd Islands á árinu og
liðið hafnaði í 2. sæti í
bikarkeppninni eins og fyrr
greinir.
Leikfélag Keflavíkur
frumsýnir n.k. laugar-
dag kl. 21.00 í nýja leik-
húsinu við Vesturbraut
17 söng og gleðileikinn „Leik-
húslíf" sem er með sögulegu
ívafi.
Leikstjóri er Hulda Olafsdóttir
sem oft hefur starfað með leikfé-
laginu og gefur hún vinnu sína í
tilefni af 30 ára afmæli leikfélags-
ins og jreim tímamótum að L.K.
er loksins komið í eigið húsnæði.
Verkið er það fyrsta sem L.K. set-
ur upp í nýja leikhúsinu sem var
opnað formlega á haustdögum og
gefst því leikhúsgestum tækifæri
á að skoða leikhúsið og rifja um
leið upp sögu Leikfélags Kefla-
víkur í gegnum árin.
..Það er við hæfi núna á þessum
tímamótum í sögu leikfélagsins
að líta til baka“,segir Hulda og
undir það tekur Guðný Kristjáns-
dóttir formaður Leikfélags Kefla-
víkur sem jafnframt tekur þátt í
sýningunni.
„Við emnt að vinna í fyrsta sinn
slíka sýningu þar sem leikarar
tengja með spuna saman gömul
atriði sem sett hafa verið á svið
hjá L.K. í gegnum árin“, segir
Guðný., J>etta er alveg brjálæðis-
lega mikil vinna og hefur hópnum
tekist jretta mjög vel. Hann er vel
samstilltur og hafa allir fengið að
njóta sín jafnf'.
Að sögn Huldu má líta á verkið
sem forrétt og þar má ftnna efni
úr revíum félagsins, söngleikjum
og fleiri verkum. „Það er mikið
sungið og lifandi tónlist verður
einnig fyrirferðamikil".
Ekki má líta á verkið sem sögu-
lega uppfærslu segir Hulda. „Það
verður tekið á ýmsum sögum og
skemmtilegum uppákomun sem
hafa gengið á miili félagsmanna".
Undir þetta tekur Guðný „Verkið
gerist á æftngu og fær fólk innsýn
í það hvemig þær ganga oft fyrir
sig hjá leikfélaginu" - ,,Þó með
nokkmm ýkjum“, bætir Hulda
við.
Um 20 manns taka þátt í sýning-
unni, bæði leikarar, tónlistarfólk.
ljósamenn og aðstoðarfólk. Æf-
ingar hafa staðið yftr í 4 vikur og
má í raun segja að verkið hafa
verið samið jafnóðum.
Eins og áður segir er jretta fyrsta
sýningin sem leikfélagmenn
vinna að í hinu nýja leikhúsi sem
enn hefur ekki fengið nafn og að-
spurðar sögðu Hulda og Guðný
að húsið hentaði ákaflega vel
undir starfsemina.
„Hér er mjög góður andi og jretta
er eins og að vera heima hjá sér.
enda ernni við búin að vinna í
jressu húsi frá því í janúar", segir
Guðný. „Við emm mjög ánægð
með gjöf Huldu og er hún sú
besta sem leikfélagið hefur feng-
ið. Hún er leikstjóri með mikla
reynslu og hefur hún m.a. unnið
með okkur í Hjónabönd, Stöndum
saman og Stígvélaða kettinum
svo eitthvað sé nefnt. Samstarf
okkar hefur alltaf verið mjög
gott“.
, J>að má geta jress að í fyrsta sinn
sem ég leikstýrði fyrir leikfélagið
þá var það í þessu húsi en þá setti
leikfélagið upp verkið „skemmti-
ferð á vígvöllinn““, segir Hulda.
,Æg er jafnframt að takast á við
það að vinna slíka sýningu í fyrsta
sinn eins og leikarar þannig að
það em allir að prófa eitthvað nýtt
- eins og hætir nýju húsi", bætir
hún við.
Aðalfundur GS
á sunnudag
Aðalfundur Golfklúbbs Suð-
urnesja verður haldinn nk.
sunnudag kl. 14 í golf-
skálanum í Leiru.
Eins og við greindum frá í
síðasta tölublaði verður nýr
formaður kosinn og sam-
kvæmt heimildum blaðsins er
vitað að uppstillingarnefnd
„býður“ Særnund Hinriksson
og er ekki vitað til þess að
mótframkom komi. Þó var
vitað að Logi Þormóðsson
hafði áhuga á embættinu en
hann mun ekki ætla að fara
fram gegn Sæmundi.
Suðumesjamenn geta átt
skemmtilega stund í annriki jól-
anna á „LeikhúshTi" í fylgd Leik-
félags Keflavíkur þar sem
skemmtilegarog á köflum fárán-
legar stundir í sögu þess verða
rifjaðar upp.
Litið til baka
með Leikfélagi
18
Víkurfréttir