Morgunblaðið - 01.04.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Veturinn hefur verið dásamlegur, algjörlega
frábær. Ég held að það sé ekki hægt að fá betri
vetur,“ sagði Guðrún Sigríður Tryggvadóttir,
bóndi í Svartárkoti í Bárðardal, þegar rætt var
við hana í gær. „Það hefur verið lítið af stór-
viðrum og mikið af stillum. Búið að vera bjart og
kyrrt og fallegt veður heilt yfir.“
Svartárkot er innsti bær í Bárðardal að austan
og stendur við jaðar Ódáðahrauns í 400 metra
hæð yfir sjávarmáli. Aðeins var farið að hlýna
þar í gær eftir kuldakast undanfarna daga. Um
hádegið var frostið „aðeins“ -7,8°C. Það fór nið-
ur í -16,8°C í fyrrinótt en nóttina þar á undan fór
frostið í -23,2°C.
Guðrún segir að vissulega geti af og til orðið
kalt í Svartárkoti. Maður klæði sig þá bara bet-
ur. Þótt mælirinn sýni mörg stig virðist ekki
vera svo kalt sé stilla. Í gær var blankalogn og
nánast hvítt yfir að líta í Svartárkoti eftir snjó-
komu um páskana. Fyrir páska kom hláka og tók
upp mikinn snjó. Þess vegna er nú allt fært og
fínt, sem er ekki sjálfgefið á þessum árstíma.
„Það er þvílík sól og allt svo fallegt að það eru
ekki til orð að lýsa því,“ sagði Guðrún. „Ég sit
hér við gluggann og horfi inn í Dyngjufjöll og
suður á Vatnajökul. Þetta er óborganlegt.“
gudni@mbl.is
Veturinn hefur verið stilltur í Svartárkoti
Ljósmynd/Hafrún Huld Hlinadóttir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Meðal þeirra fjölmörgu mála sem
ríkisstjórnin skilaði inn til Alþingis
í gær, fyrir lok framlagningar-
frests, er frumvarp um lækkun
tryggingagjalds.
Gjaldið mun
lækka um hálft
prósent 1. júlí
næstkomandi.
Meðal annarra
frumvarpa má
nefna frumvarp
um breytingar á
stuðningi við ný-
sköpun og rann-
sóknir.
Lækkun á
tryggingagjaldi er í samræmi við
yfirlýsingar sem ráðherrar gáfu í
tengslum við gerð kjarasamninga,
sérstaklega vegna væntinga at-
vinnurekenda. „Við höfum áður
sagt að við stefnum að frekari
lækkun tryggingagjaldsins en er-
um ekki að lögfesta það í þessu
skrefi. Með þessu hefur gjaldið
lækkað um 0,84% á kjörtíma-
bilinu,“ segir Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra.
Aukinn stuðningur
Meðal annarra mála sem ríkis-
stjórnin leggur fram eru breyting-
ar á reglum um stuðning við ný-
sköpunarfyrirtæki og um rann-
sóknarstyrki. „Það er mál sem
lengi hefur verið kallað eftir að
stjórnvöld hrindi í framkvæmd til
að auka samkeppnishæfni Íslend-
inga um störf á sviði rannsókna og
til að efla nýsköpun í landinu,“ seg-
ir Bjarni.
Hann segir að með þessu sé ver-
ið að bregðast við ábendingum
þeirra sem mest hafi látið sig þessi
mál varða, til dæmis smærri fyr-
irtækja og þeirra sem vinna að ný-
sköpun í atvinnulífinu. „Skattkerfið
er ekki að styðja við þá starfsemi.
Lagðar eru til breytingar á skatta-
legri meðferð,“ segir Bjarni. Nefn-
ir hann dæmi um að veittur verði
tímabundinn skattaafsláttur til að
laða til landsins erlenda sérfræði-
þekkingu. Þá verði stóraukin heim-
ild til frádráttar á skatti vegna
rannsóknar- og þróunarstarfa.
Lækkar um hálft prósent
Tryggingagjaldið lækkar 1. júlí í sumar samkvæmt nýju stjórnarfrumvarpi
Aukinn stuðningur við nýsköpun og rannsóknir Aukinn skattafsláttur veittur
Bjarni
Benediktsson
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Rannsókn Veittir verða skattaafslættir til að styðja við nýsköpun og rann-
sóknir í atvinnulífinu, samkvæmt frumvarpi frá ríkisstjórninni.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Aðalfundur HB Granda hf. verður
haldinn í dag, 1. apríl, og hefst hann
kl. 17, samkvæmt auglýsingu sem
HB Grandi birti hér í Morg-
unblaðinu í gær.
Athygli vekur að í fundarboðinu
er sérstaklega tilgreint að „fund-
urinn fer fram á íslensku“.
Kristján Loftsson, stjórn-
arformaður HB Granda, var í gær
spurður hverju þetta sætti, þar sem
einboðið væri að eintómir Íslend-
ingar myndu mæta til fundarins.
„Það er komið í gang svo mikið af
alls kyns þvælu hér á Íslandi að það
hálfa væri nóg. Þetta er ein krafa
vitringanna hjá
Viðskiptaráði Ís-
lands, Nasdaq
Iceland og Sam-
tökum atvinnu-
lífsins í bæklingi
sem heitir Leið-
beiningar um
stjórnarhætti fyr-
irtækja,“ sagði
Kristján sposkur
í bragði.
Hann segir að það sé búið að gefa
svona bækling út fimm sinnum á
nokkrum árum og sá nýjasti sé upp
á 42 síður.
„Fyrst þessi er svona spyr ég bara:
Var fyrsti bæklingurinn hjá þeim
ekki bara tómt píp?“ segir Kristján.
„Á blaðsíðu 11, sem heitir Hlut-
hafar og hluthafafundir, kemur
fram undir lið 1.1.4. eftirfarandi: „Í
fundarboði skal tilgreina á hvaða
tungumáli fundurinn mun fara
fram svo og tungumál fund-
argagna.“
Rammíslenskt fyrirtæki
Það er eitthvert voðalegt vitr-
ingalið sem hefur samið þetta og ég
get ekki skilið það öðruvísi en það sé
ætlast til þess að við, þetta ramm-
íslenska fyrirtæki, auglýsum það
sérstaklega að við ætlum að tala ís-
lensku á fundinum og að öll gögn
sem lögð verða fram verði á ís-
lensku,“ sagði Kristján Loftsson
jafnframt.
Tala íslensku á fundinum
Kristján Loftsson stjórnarformaður HB Granda talar um „vitr-
ingaliðið“ hjá Viðskiptaráði, Nasdaq og SA „Alls kyns þvæla“
Kristján Loftsson
„Allan mars-
mánuð hafa verið
fréttir um stíg-
andi í heims-
markaðsverði á
olíu. Hækkan-
irnar nú eru í
samræmi við það.
Eigi að síður eru
umframbirgðir af
eldsneyti miðað
við eftirspurn og
því má gera ráð fyrir að verðið lækki
aftur,“ segir Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri FÍB.
Í gærkvöldi kostaði bensínlítrinn
á þjónustustöðvum á höfuðborgar-
svæðinu 194,40 kr. eftir tveggja kr.
hækkun á miðvikudag. Verð á sjálfs-
afgreiðslustöðvum var gjarnan
192,30 kr. Reyndar fékkst lítrinn á
180,30 kr. hjá Orkunni X við
Skemmuveg í Kópavogi og var verð-
ið hvergi lægra.
Í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi sagði Magnús Ásgeirsson,
innkaupastjóri hjá N1, að engar
meiriháttar verðsveiflur á eldsneyti
virtust í kortum. Heimsmarkaðsverð
hefði aðeins hækkað í vikunni en
gengi íslensku krónunnar styrkst á
móti að nokkru leyti þó það jafnaði
hækkunina samt ekki út að öllu. „Ég
býst ekki við miklum verðbreyt-
ingum,“ sagði Magnús. sbs@mbl.is
Gengið
jafnar út
hækkun
Runólfur
Ólafsson
Stígandi á heims-
markaði eldsneytis
Af samþykktum áformum um bygg-
ingu alls 969 íbúða í höfuðborginni í
fyrra voru einbýlishúsin aðeins sjö.
Þetta kemur fram í ársskýrslu
byggingarfulltrúans í Reykjavík
sem kynnt var í borgarráði í gær.
Flestar íbúðirnar eru í fjölbýlis-
húsum eða 926, í raðhúsum 30 og í
tvíbýlishúsum sex. Stúdentaíbúðir
voru 202.
Í ársskýrslunni kemur einnig
fram að á árinu 2015 hafi smíði 926
íbúða hafist. Til samanburðar voru
aðeins tíu íbúðir byggðar árið 2010.
Samþykkt byggingarmagn í
Reykjavík í fyrra var fyrir um 235
þúsund fermetrar. Áform um smíði
íbúða voru um 64% þess, eða 51
þúsund fermetrar. Þá voru sam-
þykktir tæpir 14 þúsund fermetrar
hótel- og veitingahúsnæðis af ýms-
um stærðum og gerðum. sbs@mbl.is
Sjö einbýlis-
hús í borginni
kvika.is
Stjórn Kviku banka hf. minnir á að framhaldsaðalfundur
félagsins verður haldinn á skrifstofu þess að Borgartúni 25,
105 Reykjavík, 8. hæð, þann 1. apríl nk. kl. 12.00.
Ítarlegt fundarboð var sent hluthöfum með tölvupósti þann
18. mars sl. í samræmi við ákvæði samþykkta félagsins.
Framhaldsaðalfundur Kviku banka hf. 2016