Morgunblaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016 Þeir sem grétu og gnístutönnum þegar tilkynnt varað Ben Affleck kæmi tilmeð að sveipa sig skikkju og kufli Leðurblökumannsins í nýj- ustu kvikmyndaútgáfu Warner- bræðra af ofurhetjunni sívinsælu geta hætt að örvænta: Affleck er fjarri því það versta við Leðurblöku- manninn gegn Ofurmanninum: Dög- un réttlætisins sem var frumsýnd í síðustu viku. Að því sögðu geta þeir aftur byrjað að örvænta því nánast allt annað við myndina eru svo geig- vænleg vonbrigði að erfitt er að skilja hvernig aðstandendum hennar tókst að spila svo illa úr því sem var á pappírunum spennandi efniviður. Áhugi ofurhetjunjarða um allan heim á myndinni var mikill fyrir fram, ekki síst eftir að svo virtist sem hún yrði að einhverju leyti byggð á frægri myndasögu Franks Miller, Dökki riddarinn snýr aftur, frá 1986. Það skal hins vegar strax tekið fram að Dögun réttlætisins á svo gott sem ekkert sameiginlegt með verki Miller þar sem skýr hug- myndafræðilegur ágreiningur gerði átök á milli Leðurblökumannsins og Ofurmannsins bæði óhjákvæmileg og heimspekilega forvitnileg. Í kvik- myndinni hefur glíma ofurhetjanna svipaða vigt og áflog skólapilta í frí- mínútum og tilgang í samræmi við það. Myndin á sér stað 18 mánuðum eftir atburði Stálmannsins (2013) sem fjallaði um fyrstu ævintýri Of- urmannsins (Henry Cavill). Í Dögun réttlætisins er Leðurblökumaðurinn blindaður af reiði í garð Ofurmanns- ins fyrir að hafa flutt stríð geimvera til jarðar, sem kostaði saklausa jarð- linga lífið í lokabardaga Stálmanns- ins. Egndur áfram af illkvittna snill- ingnum Lex Luthor (Jesse Eisenberg) undirbýr Leðurblöku- maðurinn sig undir bardaga upp á líf á dauða gegn dáðasta syni Krypton sem sjálfur glímir við aðsteðjandi ímyndarvanda í augum mannkyns- ins. Handritið og leikstjórnin eru fyrst og fremst það sem gerir Dögun rétt- lætisins að nær algerlega innan- tómri froðu sem virðist úr öllum tengslum við persónurnar sem myndin fjallar um. Sagan er sund- urlaus og gjörðir leikenda eru oft óskiljanlegar, jafnvel á mælikvarða ofurhetjumynda. Ekki vantar að reynt sé að gefa sögunni yfirbragð merkingarþrunginna og heimspeki- legra vangaveltna um völd og harð- stjórn sem yfirleitt birtast í hálf- vitrænum yrðingum Eisenberg sem Lex Luthor. Nær ekkert er þó á bak við línurnar sem eiga að gefa sög- unni dýpt og frammistaða Eisen- berg í hlutverkinu er átakanlega ergileg. Ein helsta stoðin í goðsagnaheim- inum sem Leðurblökumaðurinn drottnar yfir er að hann drepur ekki. Í Dögun réttlætisins skeytir hann hins vegar engu um líf eða limi glæpamanna sem hann berst við og í hádramatískri hildi sinni við Ofur- manninn er hann fyllilega tilbúinn að reka hetjuna á hol með spjóti. Engar skýringar eru gefnar á þess- um skyndilegu sinnaskiptum dökku hetjunnar og aldrei kemur fram með skiljanlegum hætti hvað það er sem rekur Lex Luthor áfram í að etja of- urhetjunum saman og tefla lífi jarð- arbúa í hættu í leiðinni. Þeir sem hafa engin tilfinninga- tengsl við sögupersónurnar og geta litið fram hjá gapandi holum í sögu- þræðinum gætu engu að síður haft gaman af hasarnum. Af honum er nóg og af epískum skala. Rífandi móttökur sem myndin hefur fengið í miðasölu benda til þess. Engu að síður er erfitt að komast að annarri niðurstöðu en að fram- leiðendur myndarinnar hafi misst af gullnu tækifæri. Í dýpri brunni Mill- er höfðu þeir árekstur tveggja mis- munandi hugmyndaheima sem Of- urmaðurinn og Leðurblöku- maðurinn standa hvor um sig fyrir sem hefði getað veitt mun áhuga- verðari mynd innblástur. Svo virðist sem framleiðendurnir hafi ekki þor- að að gera þá mynd, þó að þeir leyfi sér aðeins að gefa nasaþefinn af því hvernig hún gæti hafa litið út í furðulegum og endurteknum draumasenum. Þess í stað kusu þeir að leyfa þess- um epísku átökum umdeilanlega ást- sælustu myndasagnahetja samtím- ans að falla í skuggann af eltingaleik sínum við Hefnendur Marvel- myndasögurisans. Dögun réttlæt- isins er augljóslega aðeins forleik- urinn að röð mynda um meðlimi Réttlætisbandalagsins (e. Justice League), hliðstæðu DC Comics- heimsins af Hefnendunum, saman og hvern í sínu lagi. Bardaginn sem myndin er kennd við endar sem hálf- gert aukaatriði í þessum forleik. Slátrunin sem myndin hefur feng- ið hjá gagnrýnendnum um allan heim mun eflaust ekki stöðva þau áform í bili en með græna glýju í augunum, sem stafaði ekki af helj- armenninu Hulk heldur af þeim sandi dollaraseðla sem keppinaut- arnir Marvel hafa sópað inn af Hefn- endunum, hafa Warner og DC skilað frá sér mynd sem líkist helst sólsetri Réttlætisbandalagsins áður en sólin er einu sinni risin upp. Afleit „Warner og DC hafa skilað frá sér mynd sem líkist helst sólsetri Réttlætisbandalagsins áður en sólin er einu sinni risin upp,“ segir m.a. um Batman v Superman: Dawn of Justice. Gagnrýnandi finnur henni flest til foráttu. Sólsetur fyrir dögun Sambíóin, Smárabíó og Laugarásbíó Batman v Superman: Dawn of Justice bbnnn Leikstjóri: Zack Snyder. Aðalleikarar: Amy Adams, Ben Affleck, Henry Cavill og Jesse Eisenberg. Bandaríkin, 2016. 155 mín. KJARTAN KJARTANSSON KVIKMYNDIR Leikarinn Ben Affleck, sá nýj- asti í hlutverki Leðurblöku- mannsins, hefur lokið við handrit að kvikmynd um hetjuna, skv. vefnum Holly- wood Reporter. Affleck á að leika hetjuna í tveimur kvikmyndum til viðbótar þeirri sem gagnrýnd er hér til hliðar og þrem- ur ef handrit hans verður kvik- myndað. Affleck skrifaði Batman-handrit Ben Affleck 10 Cloverfield Lane Sjálfstætt framhald kvikmyndar- innar Cloverfield. „Þegar Michelle rankar við sér eftir að hafa misst meðvitund í bílslysi er hún stödd í neðanjarðarbyrgi þar sem tveir menn, Howard og Emmet, segja henni að það sé ekki lengur óhætt að fara út vegna banvænnar loft- mengunar. En eru þeir að segja satt?“ segir um söguþráð kvik- myndarinnar í tilkynningu. Leik- stjóri er Dan Trachtenberg og með aðalhlutverk fara John Good- man, Mary Elizabeth Winstead, John Gallagher Jr. og Bradley Cooper. Metacritic: 76/100 Maður sem heitir Ove Sænsk kvikmynd byggð á sam- nefndri skáldsögu rithöfundarins Fredrik Backman. Í henni segir af 59 ára karli, Ove, sem virðist hinn mesti fýlupoki og reglufastur með endemum. Hann býr í raðhúsi í út- hverfi og er lítt gefið um nágranna sína sem telja hann með endemum smámunasaman. Þegar ólétt kona flytur með fjölskyldu sína í húsið á móti Ove verða breytingar á lífi hans. Leikstjóri er Hannes Holm og með aðalhlutverk fara Rolf Lassgård, Zozan Akgün og Tobias Almborg. Kritiker.se: 3,4/5 Hátíð og Hitchcock Í Bíó Paradís fer fram um helgina kvikmyndahátíðin World Inter- national Film Festival (sjá bls. 30) og kvikmyndaklúbburinn Svartir sunnudagar sýnir á sunndaginn kvikmynd Alfreds Hitchcock, The Man Who Knew Too Much, frá árinu 1956. Bíófrumsýningar Banvæn loftmengun og geðstirður Svíi Karlfauskur Úr sænsku kvikmynd- inni Maður sem heitir Ove. MAÐUR SEM HEITIR OVE 6, 8, 10:10 BATMAN V SUPERMAN 3D 6, 9(POWER) MY BIG FAT GREEK WEDDING 2 4:50, 10:10 KUNG FU PANDA 3 3:50 ÍSL.TAL ALVIN OG ÍKORNARNIR 3:50 ÍSL.TAL LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 21:00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.