Morgunblaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016
Morgunblaðið/Einar Falur
Veiði Hægt verður að renna fyrir
sjóbirting fram eftir apríl.
Vorveiðitímabilið hefst formlega
í dag. Þeir stangveiðimenn
landsins sem klæjað hefur í
veiðiklóna í vetur eiga því þann
kost að halda af stað og renna
fyrir sjóbirting.
Í þeim ám sem Morgunblaðið
spurðist fyrir um voru enn óseld
leyfi á vorveiðitímabilinu en spáð
er þokkalegu veðri nú í upphafi
tímabilsins. Úrkomubelti gengur
yfir Suðausturlandið í dag með
vindi upp á um 15 m/s en bæði
lægir og dregur úr úrkomu eftir
það.
Sjá fram á góða veiði
Ragnar Johansen, Hörg-
árlandi, veiðivörður með meiru í
Vatnamótum, segist bjartsýnn á
veiðina í vor miðað við aflabrögð
og fiskgengd síðasta haust og
fréttir af fiski í ánum nú. „Það
var leiðinlegt hvernig vatnið lá
árin á undan og erfitt að eiga við
það en það er búið að liggja vel
við Vatnamótunum núna þannig
að ég á von á góðri vorveiði
enda var hún mjög góð í fyrra,
yfir 400 fiskar. Það var mikið
óselt þá og það voru ekki nema
sex holl sem tóku þessa fiska.
Það eru oft ævintýri þarna ef
það eru góðar aðstæður og þykir
ekkert merkilegt að fá hundrað
fiska fyrsta daginn,“ segir Ragn-
ar.
Gunnar J. Óskarsson, formað-
ur Stangaveiðifélags Keflavíkur,
sem hefur Geirlandsá á sínu for-
ræði, er að sama skapi vongóður
um góða byrjun. „Áin er auð,
enginn klaki á henni, og það ætti
að vera tíðin til þess að byrja en
í fyrra var fiskur í Geirlandsánni
alveg fram í maí. Það fer svolítið
eftir tíðarfari: Ef það er klaki
eitthvað framyfir áramót þá
seinkar honum niður en ef það
er autt skríður hann fyrr af
stað.“ bso@mbl.is
Vorveiði-
tímabilið
hefst í dag
Aðstæður til veiða
ágætar m.v. árstíma
Víða óseld leyfi
Á ALLA FJÖLSKYLDUNA
Summit Lite
Kauphlaupsverð: 20.246
Verð áður: 26.995
Dean Tur
Kauphlaupsverð: 11.246
Verð áður: 14.995
LeFlorians High
Kauphlaupsverð: 18.746
Verð áður: 24.995
X-Climb High
Kauphlaupsverð: 22.496
Verð áður: 29.995
X-Climb
Kauphlaupsverð: 18.746
Verð áður: 24.995
Cosmic
Kauphlaupsverð: 17.246
Verð áður: 22.995
Adda Kid
Kauphlaupsverð: 11.246
Verð áður: 14.995
25%
AFSLÁTTUR
KAUPHLAUPSTILBOÐ
Á ÖLLUM ÚTIVISTARSKÓM
31.mars–4. apríl
Magma
Kauphlaupsverð: 14.996
Verð áður: 19.995
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þótt bændur hafi samþykkt nýja bú-
vörusamninga bíður mikil vinna við
að útfæra þá og koma í framkvæmd.
Á það lagði Sigurður Loftsson, frá-
farandi formaður Landssambands
kúabænda, áherslu í skýrslu til aðal-
fundar sambandsins sem fram fór í
gær.
Samningarnir eru til tíu ára og
taka gildi um áramót. Stjórnar-
frumvarp um staðfestingu samning-
anna hefur verið lagt fram á Alþingi.
Sindri Sigurgeirsson, formaður
Bændasamtakanna, hvatti kúa-
bændur til að tryggja stuðning við
samningana á Alþingi þannig að þeir
yrðu helst afgreiddir með stuðningi
allra stjórnmálaflokka eins og dæmi
séu um.
Of mikið er framleitt af mjólk nú
um stundir, miðað við markaði. Egill
Sigurðsson, formaður stjórnar
Mjólkursamsölunnar, sagði að það
ylli vandræðum og hvatti bændur til
að draga úr framleiðslunni. Á næst-
unni verður tilkynnt um aðgerðir til
að bregðast við.
Fyrsta fyrirmyndarbúið
Við upphaf aðalfundarins var í
fyrsta skipti útnefnt fyrirmyndarbú
ársins. Mörg voru tilnefnd en að lok-
um var ákveðið að útnefna bú
hjónanna í Bryðjuholti í Hruna-
mannahreppi, Samúels Unnsteins
Eyjólfssonar og Þórunnar Andrés-
dóttur, fyrirmyndarbú að þessu
sinni. Sigurður Loftsson sagði við
þetta tækifæri að það dyldist engum
sem leið ætti hjá Bryðjuholti að á því
búi væri mikill myndarbragur,
glæsilegt býli sem væri sómi sinnar
sveitar. Sama kæmi í ljós þegar rýnt
væri í skýrslur, jafnt um afurðasemi
nautgripanna og fjárhag búsins.
Mikil vinna við útfærslu samninga
Gripið verður til ráðstafana til að draga úr mjólkurframleiðslu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fyrirmynd Samúel Eyjólfsson í
Bryðjuholti tók við verðlaunum úr
hendi Sigurðar Loftssonar.