Morgunblaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016 Verðmætasköpun í nútímasamfélagi bygg- ist á þekkingu og beit- ingu hennar við lausn verkefna í atvinnulífi samtímans. Hér á Ís- landi hefur verkfræðin komið víða við sögu í uppbyggingu atvinnu- lífs og bættra lífsskil- yrða og ennþá eru tæki- færin næg, hvort sem er í hefðbundnum greinum verkfræð- innar eða þeim nýju sem komið hafa fram. Á undanförnum árum hafa ung- ir verkfræðingar í vaxandi mæli látið til sín taka sem frumkvöðlar í þróun nýrrar tækni og atvinnutækifæra. Verkfræðingafélag Íslands gengst nú í annað sinn fyrir Degi verkfræð- innar, þar sem vakin er athygli á mik- ilvægi verkfræðinnar, störfum verk- fræðinga og viðfangsefnum þeirra í atvinnulífi, rannsóknum og nýsköpun. Í tilefni þess heldur Verkfræð- ingafélagið síðdeg- isráðstefnu í dag, föstu- daginn 1. apríl, á Hótel Reykjavík Natura – Loftleiðum, þar sem ýmsum viðfangsefnum verkfræðinga verða gerð skil og er ráðstefn- an öllum opin. Dagur verkfræðinnar er að þessu sinni helg- aður tveimur megin- þemum; verðmætasköpun verkfræð- inga og þeirri hátækni sem rafmagns- verkfræðingar fást við, en rafmagns- verkfræðingadeild VFÍ fagnar á þessu ári 75 ára afmæli. Á vordögum huga væntanlegir ný- stúdentar framhaldsskólanna að frekara námi á háskólastigi og þar eru verkfræðigreinarnar áhugaverð- ur kostur fyrir jafnt ungar konur sem karla. Verkfræðinám býður nemend- um ekki aðeins fjölbreytt og heillandi viðfangsefni, heldur bjóðast útskrif- uðum verkfræðingum áhugaverð og gefandi störf sem alls staðar eru verðmæt og eftirsótt, hvort sem er á erlendum vettvangi eða hér heima. Á ráðstefnu dagsins verða m.a. kynnt nýsköpunarverkefni ungra verkfræð- inga og sýnd verkefni verkfræðinema háskólanna um rafbílaþróun og vél- fugla. Við vonum að Dagur verkfræð- innar veki áhuga og skilning á þeim fjölbreytilegu og mikilvægu verk- efnum sem verkfræðingar starfa við. Dagur verkfræðinnar Eftir Kristin Andersen » Áhugaverð tækni- þróun og við- fangsefni verkfræð- innar kynnt á Degi verkfræðinnar. Kristinn Andersen Höfundur er formaður Verkfræðinga- félags Íslands. Þrír áratugir eru nú liðnir frá því að forsætisráðherra Sví- þjóðar var myrtur á Sveavägen í Stokk- hólmi án þess að fram hafi komið traustar vísbendingar sem sænsku lögregluna skorti til að tengja Christer Pettersson við drápið á Olof Palme. Verstu mis- tökin sem lögreglan gerði voru þau að hún skyldi ekki strax hafa girt morðstaðinn af. Fyrstu dagana eftir morðið fékk lögreglan skammir úr öllum áttum fyrir að hafa ekki lokað öllum leiðum að morðstaðnum og landamærunum. Fullvíst þótti að til- ræðismaðurinn hefði strax eftir morðið haft nægan tíma til að forða sér úr landi á meðan lögreglan stóð ráðþrota gagnvart þessari morðgát- u. Hans Holmér, lögreglustjóri í Stokkhólmi, sem stjórnaði leitinni að tilræðismanninum, taldi mikilvægt að fylgja eftir þeirri ábendingu að samtök Kúrda í Svíþjóð, PKK, hefðu staðið á bak við morðið. Á það tókst ekki að færa sönnur þegar Holmér hrökklaðist frá rannsókn málsins. Áður var þekktur öfgamaður, Victor Gunnarsson, handtekinn en lögregl- an varð að sleppa honum vegna skorts á sönnunargögnum. Fljótlega flutti hann til Bandaríkjanna og var myrtur þar nokkrum árum síðar. Tvær kúlur úr morðvopninu fundu vegfarendur og indverskur blaða- maður löngu síðar. Önnur sönn- unargögn hurfu fljótlega þegar lög- reglan hagaði fjölda smáatriða með röngum hætti. Frá lokum síðari heimsstyrjaldar varð þessi morðrannsókn sú umfangsmesta og talið er að hún hafi kostað 500 milljónir sænskra króna eða sem svarar tæpum 10 milljörðum íslenskra króna. Skjölin fylla hálfa milljón þéttskrifaðra síðna af stærðinni A4. Seint á árinu 1988 var Crister Pettersson, drykkjumaður og góð- kunningi lögreglunnar, handtekinn og grunaður um glæpinn eftir að eiginkona Palme hafði bent á hann í sakbendingu. Í undirrétti var hann dæmdur fyrir drápið, en eftir áfrýj- un sýknaði hæstiréttur hann á þeim forsendum að morðvopnið kæmi aldrei í leitirnar; í annan stað var tal- ið að hann hefði enga augljósa ástæðu haft til að fremja þennan glæp og í þriðja lagi taldi rétturinn vitnisburð frú Palme ekki nógu áreiðanlegan. Áfram lá Pettersson undir grun án þess að hægt væri að höfða annað mál gegn honum nema ný gögn kæmu fram. Úr því sem komið er finnast þau hvergi eftir að Pettersson lést í bílslysi haustið 2004. Margar samsæriskenningar sem komust í fréttirnar fyrstu dag- anna eftir morðið á Palme tekst aldrei að kveða niður eins og allt bendir til. Að öllum líkindum lifa þær góðu lífi næstu áratugina. Fjöldi vitna fullyrðir að Pettersson hafi gengist við morðinu án þess að hafa í höndunum traustar vísbend- ingar sem sænsku lögregluna hefur skort. Í gegnum árin hefur fleiri kenningum verið haldið á lofti, svo sem að Baader-Meinhof- hópurinn í Vestur-Þýskalandi og fyrrverandi einræðisherrar frá Síle hafi komið Palme fyrir kattarnef án þess að það væri rannsakað. Safnað hefur verið gríðarlegu magni gagna um málið og ná skjölin yfir 225 hillumetra í skjalasöfnum lögreglunnar. Fullyrt er að þessi rannsókn sé nú orðin um- fangsmeiri en rannsóknin á morðinu á Kennedy Bandaríkjaforseta og sprengjuárásinni sem grandaði Pan American-farþegaþotunni yfir Loc- kerbie í Skotlandi í desember 1988. Á alþjóðavettvangi lét Palme mikið til sín taka þegar hann hafði skömm á aðskilnaðarstefnunni í Suður- Afríku og lýsti fyrirlitningu sinni á Víetnam-styrjöldinni við litla hrifn- ingu ráðamanna í Washington. Þar lenti Palme fljótlega á svörtum lista fyrir stuðning sinn við ríkisstjórn Norður-Víetnams. Tíu árum eftir morðið fullyrti fyrrverandi lög- reglumaður í Suður-Afríku fyrir rétti í Pretoríu að Olof Palme hefði verið myrtur af þessum sökum. Sami lögreglumaður nafngreindi manninn sem hann taldi sekan án þess að geta sýnt fram á það. Full- víst er talið að sænska lögreglan sitji áfram uppi með óleysta morðgátu og eigi mörgum spurningum ósvarað næstu áratugina. Hver myrti Olof Palme? Eftir Guðmund Karl Jónsson » Verstu mistökin sem lögreglan gerði voru þau að hún skyldi ekki strax hafa girt morðstaðinn af. Höfundur er farandverkamaður. Guðmundur Karl Jónsson Velvakandi Svarað í síma 569- 1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Skuggi fór út úr húsi að morgni föstudagsins 25. mars en skilaði sér ekki heim í miðdagsmat. Býr á horni Háteigsvegar og Meðalholts, rétt hjá Lönguhlíð, stutt frá Kjarvals- stöðum. Með rauða ól með símanúm- eri og heimilisfangi. Alveg svartur, nettvaxinn, ársgamall, geldur og ör- merktur. Mjög mannblendinn og eiga Skuggi og bræður hans það til að elta fólk upp og niður götuna. Lík- lega óhræddur við að pota sér inn hjá fólki. Fólk í nágrenninu er beðið að athuga staði þar sem Skuggi gæti hafa lokast inni. Þeir sem hafa séð til Skugga eru beðnir að hafa samband við Guðbjörgu í síma 861-1954. Skuggi týndur frá Háteigsvegi VINNINGASKRÁ 48. útdráttur 31. mars 2016 722 9432 20580 27820 38566 51783 60650 71617 847 9586 20695 28090 38621 52020 60780 71652 941 9752 20811 28144 38925 52472 61072 71755 1035 9826 21258 28960 39117 52710 61279 71925 1658 9911 21449 29433 39160 52768 61488 72295 1665 9938 21593 30032 39941 52956 61916 73285 1789 10153 21865 30380 40552 53144 62025 73294 1976 10644 21876 30728 41434 53401 62810 73517 2029 11560 22029 30948 42370 53781 63169 73573 2426 11908 22560 31033 42546 54000 63655 73685 2649 12241 22914 31579 42661 54714 63914 73966 2656 12393 23198 31853 42852 54817 63995 74065 3116 12431 23346 32025 43092 55058 64009 74142 3339 12573 23527 32089 43422 55278 64033 74249 3381 12591 23821 32312 43655 55618 64683 74604 4108 12683 24012 32563 43846 55636 64688 74766 4435 13054 24132 32820 44129 55808 64851 75014 4494 13246 24459 32932 44762 55862 64951 75059 5157 13488 24603 33078 45038 55937 65171 75439 5779 13693 24637 33559 45741 55993 65292 75539 5886 15206 24666 33653 45778 56028 65307 75792 6317 15307 24829 33858 46218 56207 65744 75874 6428 15836 24923 33910 46620 56214 65925 76289 6921 16284 25211 33947 48279 56358 66377 76738 6927 16456 25460 34584 48466 56565 66919 77068 7205 16609 25506 34609 48724 56701 67078 77487 7387 16779 25587 34745 49090 56715 67465 77539 7588 18177 25998 34790 49096 56852 67584 78096 7749 18278 26006 35601 50097 57729 67647 78468 7787 18443 26215 35945 50152 58025 67874 78824 7857 19567 26342 35955 50242 58309 68192 79970 7873 19929 26500 35980 50255 58749 68397 7932 20014 26996 36135 50344 59034 68501 8086 20268 27293 37294 50514 59055 69586 8675 20276 27310 38310 51128 59740 70641 9158 20552 27580 38441 51170 60199 70806 9259 20561 27694 38528 51478 60316 70948 284 11935 21478 29208 42371 55265 60939 71325 676 11997 22203 29868 42640 55289 61757 73264 2771 12581 23757 31167 42662 55440 63397 74092 3915 13953 24157 31192 44547 57534 63425 75211 3964 14343 24664 32114 44635 58432 64085 75577 4283 15209 24880 33571 47375 58998 64147 75747 5812 15782 25895 37217 48385 59267 64245 76524 8304 17262 26601 38050 48619 59469 64817 77669 8390 18568 27835 38602 50740 60049 66977 77701 8937 19142 28449 39546 50878 60062 67062 9016 20694 28542 39672 51915 60248 67635 11462 20896 28708 42103 53889 60415 68585 11855 21283 29119 42146 54239 60820 70279 Næstu útdrættir fara fram 7., 14., 20. & 28. apríl 2016 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 4220 54342 59904 63276 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 5030 19999 33040 41218 54642 74687 15284 22497 35447 42482 55261 74799 16541 27266 36491 44442 63758 77817 16577 27845 38068 52244 68814 79404 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 5 5 7 9 5 Rúnar S. Gíslason hdl., lögg. fasteignasali Grandavegur 1 - 107 Reykjavík Opið hús laugardaginn 2. apríl kl. 14.45-14.45 Borðstofa, stofa og 2 svefnherbergi á 1. hæð. Inngangur er beint innaf anddyri. Hurðir eru sérstakl. breiðar fyrir hjólastóla. Gólf í holi, herb., eldh., borðst. og stofu eru með nýju viðarparketi. Þv.hús og sérgeymsla innangengt. Verð 44,9 millj. Upplýsingar veita Haraldur Guðjónsson, sölufulltrúi í síma 783 1494, eða halli@fasteignasalan.is og Guðbergur Guðbergsson, löggiltur fasteignasali. Op ið hú s Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.