Morgunblaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2016 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Gombri nefnist 208 bls. myndasaga eftir Elínu Eddu, tvítugan nemanda í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands, sem gef- in verður út í dag um leið og sýn- ing á völdum römmum úr sög- unni verður opn- uð í sýning- arrýminu Ekkisens að Bergstaðastræti 25b. Elín Edda hefur áður gefið út grafíska skáldsögu, Plöntuna á ganginum, sem kom út fyrir tveim- ur árum og vann hún hana í sam- starfi við systur sína, Elísabetu Rún, þegar hún var menntaskóla. Það er ekki hlaupið að því að teikna 208 blaðsíðna myndasögu og segir Elín Edda að mikill tími hafi farið í verkið. „Þetta var eins og að vinna með skóla,“ segir hún. Elín Edda vinnur með vatnslit og blek og segist nota sömu aðferð og í Plöntunni á ganginum. Verur og skrímsli En hver er þessi Gombri? „Hann er myndasögupersóna. Ég byrjaði að teikna hann 2013, þá var ég á tímabili að teikna mikið verur og skrímsli og hann varð til á þeim tíma. Svo hélt ég bara áfram að teikna þessa persónu sem fékk ekki nafnið Gombri fyrr en seinna, þeg- ar ég gerði söguna um hann. Mig langaði að gera myndasögu með persónum sem ég var að hanna á þessum tíma,“ svarar Elín Edda. –Það er kannski erfitt að segja frá því um hvað bókin er. Þetta er e.k. táknsaga, eða hvað? „Það er örugglega hægt að lesa hana sem táknsögu en ég hugsaði hana ekki þannig. Mig langaði að gera eitthvað tengt náttúrunni og náttúruvernd og einhvern veginn fannst mér þetta líka vera um lygar og sannleik og hvernig maður ákveður að eitthvað sé satt eða ekki. Það er eitthvað sem ég var að hugsa um á þeim tíma þegar ég skrifaði handritið. Mér finnst þetta líka vera frekar afslöppuð saga, það er ekki mikið drama í henni.“ Ofsóttur aðgerðasinni Í bókinni er Gombri orðinn leiður á einveru og drunga sem umlykur heimili hans og rær hann að eyju þar sem hann hittir aðra furðuveru sem segist heita Nanna. Þau halda til ónefndrar borgar og þar kemur í ljós að Nanna er eftirlýst. „Hún átti að vera fyrrverandi aktívisti, á sér greinilega einhverja fortíð og er þess vegna eftirlýst,“ segir Elín Edda kímin. Best að segja ekki meir svo lesendur verði ekki sviptir ánægjunni af hinu óvænta. Sýningin í Ekkisens verður opn- uð kl. 20 í kvöld og segist Elín Edda ætla að sýna um 40 myndir úr sög- unni. Þá ætli hún einnig að sýna ný verk í tengslum við söguna. „Blað- síðurnar úr bókinni eru hver eins og eitt verk og verða til sölu á 10.000 krónur hver og bókin verður til sölu á 6.000 krónur,“ segir hún. Tónlistarkonan Kaðlín mun skemmta gestum við sýning- aropnun, flytja ný verk eftir sig og verður sýningin opin um helgina frá kl. 14 til 20. Einmana Gombri í einum ramma myndasögu Elínar Eddu. Náttúruvernd, sannleikur og lygi  Útgáfu myndasögu Elínar Eddu, Gombri, fagnað í Ekkisens í dag Elín Edda London Has Fallen 16 Mike Banning þarf að bjarga málunum, með hjálp frá fé- laga í MI6 leyniþjónustunni þegar Bandaríkjaforseti verður fyrir árás við útför forsætisráðherra Bretlands. Metacritic 33/100 IMDb 6,5/10 Sambíóin Álfabakka 22.40 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.20 10 Cloverfield Lane Ung kona rankar við sér eftir bílslys í kjallara hjá manni sem segist hafa bjargað lífi hennar úr eiturefnaárás sem hefur gert jörðina óbyggi- lega. Metacritic 76/100 IMDb 7,8/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00, 22.20, 22.40 Sambíóin Egilshöll 18.00, 20.00, 22.00 Sambíóin Kringlunni 17.40, 20.00, 22.30 Sb. Akureyri 20.00, 23.10 Sb. Keflavík 20.00, 23.10 Maður sem heitir Ove Ove er geðstirði maðurinn í hverfinu. Honum var steypt af stóli sem formaður götu- félagsins en stjórnar áfram með harðri hendi. IMDb 7,6/10 Smárabíó 13.00, 15.20, 17.45, 20.00, 22.10 Háskólabíó 15.00, 17.30, 20.00, 22.15 Reykjavík Samband og plön Hrings og Elsu fara úr skorðum þegar Elsa vill endurskoða allt. Morgunblaðið bbbbn Háskólabíó 17.30, 20.15 Bíó Paradís 18.00 My Big Fat Greek Wedding 2 Hjónabandið hjá Toulu og Ian hefur aðeins dalað í gegnum árin og hafa málin lítið batn- að við vandræðin sem dóttir þeirra hefur komið sér í. IMDb 5,3/10 Laugarásbíó 16.50, 22.10 Smárabíó 12.00, 12.00 Háskólabíó 20.00, 22.20 Borgarbíó Akureyri 20.00 Deadpool 16 Metacritic 64/100 IMDb 8,9/10 Smárabíó 23.10 Zootropolis Bragðarefurinn Nick og löggukanínan Judy þurfa að snúa bökum saman þegar þau flækjast inn í samsæri. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 76/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 15.20, 15.40, 16.20, 18.00, 20.20 Sambíóin Egilshöll 17.40 Sambíóin Kringlunni 17.40 Sambíóin Akureyri 17.40 Sambíóin Keflavík 17.40 Gods of Egypt 12 Set, hinn miskunnarlausi konungur myrkursins, hefur hrifsað til sín krúnuna í Egyptalandi. Metacritic 23/100 IMDb 5,7/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 The Revenant 16 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 76/100 IMDb 7,1/10 Háskólabíó 20.30 Room 12 Jack er fastur ásamt móður sinni í gluggalausu rými sem er einungis 3x3 metrar. Metacritic 86/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Kringlunni 20.00 The Brothers Grimsby 16 Nobby hefur allt sem maður frá Grimsby gæti óskað sér. Metacritic 46/100 IMDb 6,8/10 Smárabíó 20.10, 22.10 Borgarbíó Akureyri 22.00 Spotlight Metacritic 93/100 IMDb 8,3/10 Háskólabíó 17.30 Agnus Dei Bíó Paradís 18.00 Black Mud Bíó Paradís 20.15 Star Bíó Paradís 22.15 Anomalisa 12 Brúðumynd um rithöfund í tilvistarkreppu sem reynir allt til að bæta líf sitt. Bíó Paradís 22.00 The Witch Svartigaldur og trúarofstæki í eitraðri blöndu. Bíó Paradís 18.00 The Look of Silence Sjóntækjafræðingurinn Adi ákveður að gera upp for- tíðina við málaliðana sem myrtu bróður hans í hreins- ununum. Metacritic 92/100 IMDb 8,3/10 Bíó Paradís 22.00 Hrútar 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 83/100 IMDB 8,2/10 Bíó Paradís 20.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali er að finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna. Þegar löngu týndur faðir Po birtist skyndilega fara þeir feðgar saman til leynilegrar pönduparadísar til að hitta skemmtilegar pöndur. Metacritic 66/100 IMDb 7,5/11 Laugarásbíó 15.50 Sambíóin Egilshöll 17.40 Sambíóin Keflavík 17.50 Smárabíó 15.30, 15.30, 17.45 Háskólabíó 17.30 Borgarbíó Akureyri 18.00 Kung Fu Panda 3 Kvikmyndir bíóhúsanna Batman og Superman berjast á meðan heimsbyggðin tekst á um það hvers kon- ar hetju hún þarf raunverulega á að halda. Morgunblaðið bbnnn IMDb 9,4/10 Laugarásbíó 18.00, 21.00 Sambíóin Álfabakka 15.50, 15.50, 17.20, 19.00, 19.00, 20.30, 22.10, 22.10 Sambíóin Egilshöll 18.00, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 17.50, 21.00, 22.20 Sambíóin Akureyri 16.50, 20.00, 22.20 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.20 Smárabíó 15.45, 16.15, 19.00, 20.00, 22.10, 22.15 Batman v Superman: Dawn of Justice 12 Húbert er hlédrægur auglýsingateiknari og ekki sérlega laginn við hitt kynið. Morgunblaðið bbbnn Smárabíó 17.45, 20.00 Háskólabíó 22.25 Fyrir framan annað fólk 12 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.