Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Side 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.5. 2016 VETTVANGUR Áður fyrr lögðu fjölmiðlarmetnað í að fylgjast meðgangi máli á alþingi. Nán- ast allir höfðu þingfréttaritara við Austurvöll og fréttir af þing- störfum áttu sinn fasta sess í að minnsta kosti prentmiðlum. Veru- lega hefur dregið úr þessu þótt fulltrúar tveggja stærstu útvarps- stöðvanna hafi enn nokkra viðveru í þinghúsinu. Það er helst að frétt- ir séu sagðar ef stælarnir eru nógu miklir í þingsal. Minna fer fyrir efnislegum fréttum af þing- málum sem liggja utan þingsalar. Er þó oft eftir verulegu að slægj- ast þar fyrir þá sem telja sig hafa upplýsingaskyldu að gegna við al- menning. Vissulega kann að vera erfiðara að koma auga á „fréttir“ sem liggja utan ræðustóls alþingis. Sæmilegt fréttanef og raunveru- legur áhugi á þjóðmálum og póli- tík innan og utan hinna eiginlegu stjórnmála ætti samt að koma mönnum fljótt á sporið. Það er hins vegar sársaukalaust af minni hálfu að helga þennan vettvang minn hér af og til því sem ég tel til tíðinda af störfum okkar þing- manna, eins og t.d. eftirfarandi. Hjón bera ábyrgð á skatt- skuldum hvort annars. Það er undantekning frá meginreglunni að hvort hjóna beri ábyrgð á sín- um skuldum. Í þessu ljósi er sam- sköttun hjóna komin til. Maður nýtir ónýttan persónuafslátt maka og litið er á fjárhag hjóna saman sem heimilistekjur, t.d. við út- hlutun bóta. Þegar þriggja þrepa tekjuskattur var tekinn upp 2010 var hins vegar innleidd sérstök regla fyrir hjón sem féllu ekki í sama tekjuskattsþrep. Það hjóna sem er í efsta þrepi getur bara nýtt helming af ónýttri nýtingu hins í miðþrepinu. En þó það. Fyrr í vor mælti fjármálaráð- herra fyrir afnámi þessarar heim- ildar. Um næstu áramót verða skattþrepin tvö og fyrir efnahags- og viðskiptanefnd hafa komið fram ábendingar um að við afnám heim- ildarinnar skapist verulegt ójafn- ræði í skattlagningu milli heimila, allt eftir því hvort hjónin hafi svipuð laun eða ekki. Munur á tekjuskattsbyrði tveggja heimila með sömu heimilistekjur getur þannig numið 781 þús. krónum. Það á hreinlega að refsa heimilinu með eina fyrirvinnu um þessa fjár- hæð. Hvers vegna? Lítil málefnaleg rök hafa verið sett fram til stuðnings þessu ójafnræði. Rökstuðningur ráðu- neytisins, um mögulegt kynjamis- rétti, um meint hlutverk hins op- inbera við tekjudreifingu og staðhæfingar þess um að sam- sköttunarheimildin gagnist bara hátekjufólki verðskuldar frétta- umfjöllun. Og víst er að launþeg- ar, margir umbjóðendur ASÍ, hefðu af því gagn en ekki gaman að fá af því fréttir að ASÍ fagnar mjög afnámi samsköttunarheimild- arinnar. Hverra erinda gengur ASÍ? Hér eru sem sagt ýmsir frétta- punktar. Það er þó ekki frétt að ég styð ekki afnám heimildarinn- ar. Tíst frá alþingi ’Samsköttun hjóna er meginregla sem helgast afréttindum og skyldum sem hjón bera. Tvö heimilimeð sömu tekjur eiga að bera sömu skatta. Kynjuð fjárlagagerð getur ekki vikið til hliðar grundvallar- sjónarmiðum við skattlagningu. Úr ólíkum áttum Sigríður Á. Andersen saa@althingi.is Morgunblaðið/Ómar Þórunn Ólafs- dóttir hefur vakið mikla athygli fyrir störf sín í þágu flóttamanna er- lendis, meðal ann- ars á grísku eyjunni Lesbos, en í vikunni hlaut hún mannréttinda- verðlaun Reykjavíkurborgar fyrir störf sín. Þrátt fyrir erfið störf skortir Þórunni ekki húmorinn og tístir um allt mögulegt þegar stund er milli stríða. Í vikunni skrifaði hún: „Langar í svona fegurð- ardrottninga-hvað-er í-töskunni- viðtal. Mynduð aldrei trúa hvað leynist í þessari tösku! Veit það reyndar ekki sjálf.“ Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir, ritari Sjálf- stæðisflokksins og laganemi, velti fyr- ir sér brosköllum á Twitter og skrifaði: „Vinkonurnar leggja mjög mismunandi skilning í blikkkallinn. Annars vegar hress og hins vegar passive aggressive. Veld- ur óþarfa misskilningi.“ Hún bætti svo við að líklega hefði þetta eitt- hvað að gera með minningar um mislukkulegar viðreynslur á MSN í gamla daga. Að vonum voru margir Liver- pool-aðdáendur svekktir eftir að liðið tapaði fyrir Sevilla í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Twitter, sem var upphaflega fyrst og fremst vettvangur fótbolta- bullna, sprakk út í tístum um leik- inn og útvarpsmaðurinn Þor- steinn Hregg- viðsson, betur þekktur sem Þossi, lét ekki sitt eftir liggja og skrifaði: „Að ég hafi ekki skotið einu einasta skoti á Liverpool- fólkið síðasta sólarhring er merki um að ég sé að þroskast, hef smá áhyggjur af þessu.“ Honum var sagt að hysja upp um sig. Katrín Jakobsdóttir, formað- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, skrifaði á Facebook: „Ætlaði að hringja á leigubíl en hringdi óvart í Dómínós. Eitthvað freudískt í gangi.“ Ómar Ragn- arsson svaraði Katrínu og sagði frá því þegar hann var einu sinni á flugi hátt yfir land- inu og ætlaði að kalla í flugumferð- arstjórnina í Reykjavík. „Náði ekki sambandi. Ætlaði þá að fá mér sopa úr kókflöskunni sem ég hélt á í hinni hendinni en gat ekki drukk- ið, af því að það var míkrófónninn og ég hafði verið að reyna að kalla í flugstjórn í gegnum kókflöskuna. Svipað?“ Og tónlist- armaðurinn Her- bert Guð- mundsson var á andlegum nótum á Facebook eins og svo oft áður: „Ef þú ert atorkusam- ur við öflun gullsins, þá vertu veg- lyndur og örlátur í ráðstöfun þess. Aldrei er maðurinn jafn hamingju- samur eins og þá er hann gefur hamingjuna öðrum.“ AF NETINU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.