Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Qupperneq 16
Þ
að er til marks um góða frammistöðu Birkis Bjarna-
sonar í Sviss að dagblaðið Blick valdi íslenska lands-
liðsmanninn þann besta í svissnesku deildinni í
apríl. „Það er gaman þegar fólk tekur eftir því að
maður er að spila vel,“ segir hann hógvær. „Þetta er
líka góður tími til að fá svona viðurkenningu, rétt fyrir EM,“
segir Birkir við Sunnudagsblað Morgunblaðsins, eftir æfingu
nýkrýnds meistaraliðs Sviss á fimmtudagsmorgun.
Það er öllu rólegra á svæðinu við St. Jakob-leikvanginn í Basel
en kvöldið áður, þegar úrslitaleikur Sevilla og Liverpool í
Evrópudeildinni fór þar fram.
Leikvangurinn tekur tæplega 40.000 áhorfendur í sæti, sem
mörgum þótti reyndar fulllítið fyrir úrslitaleik Evrópudeildar-
innar, en breytir því ekki að St. Jakob er stærsti völlur í Sviss og
fallegt mannvirki. Þetta er reyndar ekki bara íþróttaleikvangur;
í byggingunni er verslunarmiðstöð og íbúða- og skrifstofuturn
áfastur leikvanginum.
Basel margfalt sterkara lið en það ítalska
„Ég hef mest spilað á vinstri kantinum hér í vetur, eins og með
landsliðinu, en reyndar líka stundum hægra megin. Og þjálf-
arinn hefur líka látið mig spila fyrir aftan senterinn; ef einhverjir
eru meiddir færir hann mig gjarnan,“ segir Birkir þegar hann
fer í stuttu máli yfir stöðu sína hjá liðinu.
Fullyrða má að Birkir hafi blómstrað í vetur. Getur hann ekki
tekið undir það sjálfur að hann spili nú betur en áður á ferlinum?
„Jú, sennilega er þetta það besta sem ég hef gert. Ég hef spil-
að mjög vel, bæði í deildinni og í Evrópukeppninni, og skorað
mikið af mörkum. Ég er orðinn betri leikmaður eftir að ég kom
hingað. Síðasta árið mitt á Ítalíu var ég í Serie B [næstefstu
deild]. Hér er ég að spila með betri leikmönnum og við það verð
ég betri. Það skiptir mjög miklu máli.“
Ekki er víst að allir hafi litið á það sem skref upp á við að fara
frá Ítalíu til Sviss en málið er ekki svo einfalt.
„Þetta lið er margfalt sterkara en það sem ég var í áður. Basel
er risaklúbbur sem ég er sannfærður um að gæti gert frábæra
hluti í deild eins og Serie A [efstu deildinni á Ítalíu]. Basel hefur
verið í Meistaradeildinni sjö ár í röð og fer beint í riðlakeppnina
næst. Félagið hefur meðal annars slegið bæði Liverpool og Man-
chester United út úr Evrópukeppninni á síðustu árum, sem segir
mikið um styrkleikann. Svissneska deildin er vissulega ekki eins
sterk og sú ítalska en það er kostur við að vera hér að liðið er í
Evrópukeppninni.“
Birkir segir Basel ekki leika ósvipað og tíðkast á Ítalíu. Mikil
áhersla sé lögð á leikskipulag, eins og hann er reyndar vanur
með landsliðinu. „Leikurinn er mjög taktískur á Ítalíu eins og
allir vita, og það er sama sagan hér. Hjá Basel er lögð áhersla á
að spila flottan og góðan fótbolta.“
Basel er langbesta liðið í Sviss. „Já, við unnum deildina fyrir
fjórum leikjum og enn eru tveir eftir í deildinni. Ekkert lið er
með eins mikla breidd í deildinni og við. Eftir Evrópuleiki í vetur
gerði þjálfarinn stundum 6, 7 eða jafnvel 8 breytingar á liðinu en
samt unnum við oftast fyrsta deildarleik eftir Evrópuleik, hér er
hópurinn allur svo góður. Það breytir öllu,“ segir Birkir.
Þegar talið berst að upphafinu segir hann hlæjandi: „Ég man
ekkert eftir fyrstu árunum, það er allt of langt síðan!“ Til upp-
rifjunar skal geta þess að hann sleit fyrstu fótboltaskónum í
Vestmannaeyjum sumarið 1993, þegar faðir hans lék með ÍBV.
Bjarni Sveinbjörnsson var úrvals framherji og mikill marka-
Óbilandi
trú og
samstaða
Birkir Bjarnason, landsliðsmaður
í fótbolta, hefur staðið sig afar vel fyrsta
veturinn með liði FC Basel í Sviss.
Hann var keyptur frá Pescara á Ítalíu
í sumar og hefur verið lykilmaður
í sterku liði síðan.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Maður og bolti! Birkir á æfingu
með félagsliði sínu í Basel í Sviss
á fimmtudagsmorgni.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
VIÐTAL
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.5. 2016