Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Page 19
22.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Janus Daði Smárason hampar Hákoni Daða Styrmissyni sem aftur hampar Íslandsbikarnum.
Janus átti stórbrotið tímabil í liði Hauka og Hákon var markahæstur í leiknum með 10 mörk.
Unga kynslóðin lét sig ekki vanta á völlinn. Stuðningsmenn Hauka eru góðu vanir en þetta var annar meist-
aratitill liðsins á jafnmörgum árum. Væntanlega eiga þessir ungu áhorfendur eftir að upplifa þá fleiri.
Heldur dró af Rothögginu í seinni hálfleik enda á brattann að sækja hjá þeirra mönnum. Endasprett-
urinn var þó mjög góður hjá Aftureldingu og áhangendurnir tóku við sér á nýjan leik.
Rothöggið, stuðningslið Aftureldingar, mætti vígreift til leiks. Rothöggið lætur vel í sér heyra heima og
að heiman og leikmenn liðsins hafa talað um að litlu skipti hvort þeir leiki á heima- eða útivelli.
Stórskyttan Adam Haukur Baumruk lyftir sér yfir vörn Aftureldingar og lætur vaða á markið. Stuðningsmenn Aftureldingar
fylgjast spenntir með; óttast það versta en vona það besta. Adam gerði alls sjö mörk í leiknum, flest með bylmingsskotum.
Mikið mæddi á forsöngvara Haukamanna enda lætur Rothöggið, stuðnings-
mannalið Aftureldingar, yfirleitt ekki vaða yfir sig á skítugum skónum.