Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Page 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Page 20
S krif Axels F. Sigurðs- sonar hjartalæknis um mataræði og heilsu hafa vakið mikla athygli síð- ustu árin en hann heldur úti fræðandi og skemmtilegum vef- síðum; mataraedi.is og docs- opinion.com. Í upphafi voru skrifin ætluð sjúklingum hans því honum þótti vanta íslenskt efni þar sem leiðbeiningabæklingar um mat- aræði og lífsstíl voru ýmist af skorn- um skammti eða úreltir. Nú skipu- leggur hann ráðstefnu um áhrif mataræðis á langvinna lífsstíls- sjúkdóma ásamt læknunum Guð- mundi Jóhannssyni og Kjartani Hrafni Loftssyni og ber hún yf- irskriftina Foodloose: Processing The Science of Sugar, Fat and the Modern Diet og verður hún í Hörpu 26. maí. „Lengi vel hafði ég mestan áhuga á að greina og meðhöndla sjúkdóma og sem nýútskrifaður læknir í sér- námi taldi ég ráðleggingar um mat- aræði og lífsstíl vera eitthvað sem skipti minna máli og ætti að vera í höndum annarra fagaðila. Smám saman fór ég þó að gera mér grein fyrir hvað forvarnir skipta miklu máli og fór að hafa meiri og meiri áhuga á því hvernig lífsstíll okkar tengist þeim sjúkdómum sem eru stærstu vandamál okkar í dag,“ seg- ir Axel. Sjúkdómamynstrið í samfélaginu hefur breyst mikið á 50-60 árum. Áður voru smitsjúkdómar eins og lungnabólga, berklar og iðrasýk- ingar algengustu dánarmeinin en aukið hreinlæti, sóttvarnir, bólu- setningar og sýklalyf breyttu því. Upp úr síðari heimsstyrjöld fóru aðrir sjúkdómar að verða æ meira áberandi. Þannig urðu hjarta- og æðasjúkdómar að hálfgerðum far- aldri sem náði hámarki upp úr 1970 og hefur dánartíðnin síðan þá farið lækkandi þótt þessir sjúkdómar haldi sannarlega áfram að vera stórt heilbrigðisvandamál. „Þeir sjúkdómar sem draga okk- ur til dauða í dag, valda innlögnum á spítala og örorku fyrir aldur fram tengjast að miklu leyti okkar lífsstíl. Hjarta- og æðasjúkdómar, sum krabbamein, lungnasjúkdómar og heilabilun hafa sterk tengsl við lífs- stíl og síðast en ekki síst á þetta við um hina miklu aukningu sem við er- um að sjá í tíðni offitu og sykursýki. Síðustu áratugi hafa lífslíkur fólks aukist ár frá ári en nýlegar tölur frá Bandaríkjunum benda því miður til að lífslíkur séu að minnka aftur. Sérfrræðingar tengja það vaxandi offitu og sykursýki en þekkt er að sykursýki eykur hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum, sumum krabba- meinum og heilabilun.“ Foodloose snýst um, fyrst og fremst, að upplýsa fólk um að það geti sjálft haft veruleg áhrif á hvort og hvenær á æviskeiðinu það fær þessa sjúkdóma. Þar eru stóru vandamálin slæmt mataræði, reyk- ingar, hreyfingarleysi og ofnotkun áfengis. Landlæknisembættið gefur reglulega út vandaðar leiðbeiningar um mataræði og fyrir um fjórum ár- um komu út mjög ítarlegar og vel unnar norrænar leiðbeiningar sem íslenskir sérfræðingar tóku þátt í að vinna. Axel segir vandamálið þó gjarnan vera að boðskapurinn skili sér ekki til almennings. Hins vegar flæða alls konar misvísandi og oft rangar upplýsingar gagnrýnislaust til fólks. Hreinn matur lykilatriði Offitufaraldurinn fór mjög snögg- lega og hratt af stað og Axel segir menn enn vera að reyna að átta sig á af hverju það gerðist. „Í kringum 1980 borðuðu Íslend- ingar mjög mikið af fitu miðað við nágrannaþjóðirnar og þá einkum mikið magn mettaðrar fitu úr kjöti og feitum mjólkurvörum. Á þeim tíma bentu rannsóknir til að mikil neysla á slíkri fitu væri slæm og töldu sérfræðingar að minnkun á fituneyslu væri leið til að draga úr hjarta- og æðasjúkdómum. Mann- eldisráð taldi að æskilegt væri að draga úr fitu- neyslu hér á landi, sér- staklega neyslu á mettaðri fitu. Matvælafram- leiðendur tóku skilaboðin til sín og annars konar vörur komu á markað svo sem fituskertar mjólkurvörur. Það merkilega er að á sama tíma og þjóðin fór að skera niður fitu- neysluna hrökk offitufaraldurinn af stað fyrir alvöru og á rúmum áratug tvöfaldaðist tíðni offitu á Íslandi. Árið 2003 birtust niðurstöður könn- unar sem sýndi að Íslendingar höfðu dregið úr neyslu á mettaðri fitu og heildarneysla á fitu hafði minnkað frá 1990 og það var túlkað sem skref í rétta átt.“ Sama könnun sýndi hins vegar að neysla á viðbættum sykri og ýmsum skyndibita hafði aukist. Axel segir að komið hafi á daginn að þessi skipti hafi sennilega ekki verið til góðs enda hafi rannsóknir síðustu ára ekki stutt að gagnlegt sé að draga úr fituneyslu, að undanskil- inni neyslu á transfitu. Þá eru fitu- kertar mjólkurvörur og önnur fitu- skert matvara oft bragðbætt með viðbættum sykri. „Í dag veit enginn nákvæmlega af hverju offitufaraldurinn varð en það eru margar kenningar á lofti. Ein kenningin er sú að það hafi verið mistök að hvetja fólk til að draga úr fituneyslu án þess að vita hvað kæmi í staðinn. Hins vegar er ljóst að skýringar á offitufaraldrinum eru margþættar og sumar enn á huldu. Til dæmis hefur verið bent á að breyting á sýklaflóru í görnum vegna breytts mataræðis gæti verið hluti af skýringunni en þetta er ósannað. Aðrir benda á að varasamt sé að einblína of mikið á hlutföll orku- gjafa í fæðunni. Oft hefur ágreining- urinn um hvað sé rétt mataræði snúist um hver hlutföll fitu og kol- vetna eiga að vera. Öllu mikilvæg- ara er að horfa á matinn sjálfan, hreinleika hans og ferskleika. Hlut- fall fitu og kolvetna kann að vera aukaatriði enda hægt að borða holl kolvetni og holla fitu. Fólk er nokk- uð öruggt ef það leggur áherslu á að borða hreinan og lítið unninn mat, ávexti, grænmeti, kjöt og fisk. Að sama skapi ættum við að forð- ast kex og kökur, sætt bakkelsi, sælgæti og snakk. Þetta er í sjálfu sér ekkert flókið en vandinn er að láta þessa vitneskju stýra okkar daglega hegðunar- mynstri.“ En þótt orsök offitu- faraldursins sé ekki al- veg ljós hlýtur það á einn eða annan hátt að tengjast mataræðinu. Hver er þín tilfinning fyrir þessu? „Ég held þetta snú- ist líka um matar- menninguna. Við borð- um á hlaupum, vinnum mikið, erum undir álagi og við þess- ar aðstæður þarf oft einfaldar lausnir þegar kemur að mat og mat- argerð. Fólk grípur eitthvað sem er þægilegt og þarfnast ekki fyr- irhafnar. Hraðinn skerðir mögu- leika okkar á að ástunda hollt mat- aræði. Manneskjan er líka auðvitað mjög ófullkomin. Þótt við höfum eitthvað sem kallast skynsemi víkur hún gjarna fyrir frumstæðari eig- inleikum. Þegar við erum svöng, þreytt eða stressuð, þá er skynsem- in oft víðsfjarri og aðrar eldri og frumstæðari heilastöðvar ráða för.“ Þegar Axel ráðleggur fólki um mataræðið eru nokkur grunnatriði sem fara þar fremst. Efst á listan- Offita jókst þegar fituneyslan minnkaði Axel F. Sigurðsson hjartalæknir segir að þótt nokkuð víst sé að offitufaraldur síðustu ára tengist mataræðinu sé enn deilt um hvað það sé nákvæmlega sem kom honum af stað. Ljóst sé þó að um leið og fituneysla þjóðarinnar minnkaði jókst offita. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.iss ’Það merkilega erað á sama tímaog þjóðin fór að skeraniður fituneysluna hrökk offitufarald- urinn af stað fyrir alvöru og á rúmum áratug tvöfaldaðist tíðni offitu á Íslandi um er að forðast viðbættan sykur. „Það er sterk fylgni milli neyslu sykraðra drykkja og sykursýki. Þá erum við ekki bara að tala um gos heldur gleymum því að djúsglasið sem við höfum fyrir hefð að drekka með morgunmatnum er kannski fullt af viðbættum sykri. Það er eitt mataræði sem kemur mjög vel út út þegar kemur að hjarta- og æðasjúkdómum og það er svokallað Miðjarðarhafsmataræði. Á sjötta áratug síðustu aldar varð sérfæðingum ljóst að tíðni hjarta- og æðasjúkdóma var afar lág á grísku eyjunni Krít og fleiri stöðum við Miðjarðarhafið. Þetta var talið tengjast mataræðinu og nýlegar rannsóknir hafa stutt að svo sé. Þótt Miðjarðarhafsmataræðið sé tiltölulega fituríkt er ekki mikið um dýrafitu heldur er mikið er notað af ólífuolíu og mikið borðað af græn- meti og ávöxtum, sjávarfangi og hvítu kjöti. Heilkorn tilheyra, til dæmis gróft brauð, og svo er tals- vert af mjólkurvörum eins og jóg- úrti og ostum. Þeir borða lítið af sætindum þótt gjarnan sé boðið upp á sætan eftirrétt í lok máltíðar. Oft- ast er drukkið hóflegt magn af léttu víni á hverjum degi, en gert er ráð fyrir að það sé ekki meira en 1-2 glös. Ég held við eigum að nýta okkur ákveðnar áherslur úr þessu matar- æði. Þó mæli ég ekki með daglegri léttvínsneyslu enda held ég að það henti ekki okkar menningu. Þá kann félagslegi þátturinn að vera mik- ilvægur, að fjölskyldan borði saman og gefi sér tíma til þess.“ Miðjarðarhafsmataræðið áhrifaríkt Hvað með annað mataræði svo sem hið geysivinsæla lágkolvetnamatar- æði? Er það af hinu góða? VIÐTAL 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.5. 2016 Það er sannarlega áhyggjuefni hversu miklu algengari ofþyngd og offita eru hér á landi en annars staðar á Norðurlöndunum. Offitu fylgir aukin tíðni á sykursýki og hjarta- og æðsjúkdómum. Jafnframt eykur offita líkurnar á mörgum öðrum langvinnum heilsufars- vandamálum. Þetta mun gera auknar kröfur til íslensks heilbrigðis- kerfis á komandi árum og er þar af litlu að taka þegar kemur að krónum og aurum. Það er því verðugt verkefni fyrir íslensk lýðheilsuyfirvöld að taka í taumana og snúa þróuninni við. Þetta er eitt af mikilvægustu lýðheilsuverkefnum þjóðarinnar í dag. Af mataraedi.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.