Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Page 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Page 21
„Það sem hentar einum hentar ekki endilega öðrum. Þetta ræðst af heilsu fólks og vaxtarlagi og hvað lágkolvetnamataræðið snertir tel ég að það sé fyrst og fremst gagnlegt fólki sem er með mikla kviðfitu eða fyrirbæri sem kallað hefur verið efnaskiptavilla. Það er ekki endilega slæmt að hafa mikla fitu í lík- amanum, það skiptir máli hvar hún er og hvort fituvefurinn er heil- brigður. Konur eru yfirleitt með jafnari fitudreifingu en karlar og fit- an situr þá meira undir húðinni, slík fita er oftast heilbrigð og tengist ekki aukinni hættu á hjarta- og æðasjúkdómum.“ Iðrafitan, fitan í kringum líffærin í kviðarholinu er verst. Hún starfar óeðlilega; framleiðir meðal annars efni sem hvetur til bólgumyndunar, til dæmis í æðakerfinu og hún eykur líkurnar á að við fáum sykursýki svo og hjarta- og æðasjúdóma. Lágkol- vetnamataræðið hentar þessum ein- staklingum oft mjög vel því þeir eru með það sem kallast insúlínviðnám sem þýðir að líkaminn þarf meira insúlín en ella til að koma sykri inn í frumurnar. Þessir einstaklingar eru því með hátt insúlínmagn í blóðinu. Insúlín er fituhvetjandi hormón eða eins konar fitugeymsluhormón sem hvetur líkamann til að geyma orku í formi fitu. Um leið, með allt þetta insúlín í blóðinu, er líkaminn oft í vandræðum með að höndla mikið magn kolvetna. „Ef við „kolvetnissveltum“ þessa einstaklinga, lagast mikið af þess- um efnaskiptaþáttum; insúl- ínviðnámið minnkar, blóðsykurinn lækkar, kviðfitan minnkar oft og blóðfitumynstrið lagast líka. Fyrir þessa einstaklinga getur þetta mat- aræði jafnvel verið hluti af framtíð- arlífsstíl. En ég sé hins vegar enga ástæðu fyrir einstakling sem er í eðlilegum holdum, ekki með efna- skiptavandamál, að fara á lágkol- vetnamataræði. Að minnsta kosti ekki út frá læknisfræðilegu sjón- armiði en auðvitað er það val hvers og eins. Það að gagnlegt sé fyrir suma einstaklinga að sneiða hjá kolvetn- um þýðir ekki að kolvetni séu óholl. Það er mikilvægt að átta sig á þessu. Kolvetnaríkt mataræði get- ur verið mjög hollt. Hafa þarf í huga að fituneysla er oft mikil á lágkolvetnamataræði. Hjá ein- staklingum með blóðfituraskanir kann þetta að leiða til að kólester- ólmagn í blóði hækkar óæskilega mikið. Mikilvægt er að hafa þetta hugfast.“ Þótt lágkolvetnamataræði henti oft þeim sem vilja eða þurfa að grennast eða bæta efnaskiptin er líka hægt að fara aðrar leiðir og kann slíkt að henta sumum betur. Hefðbundna leiðin er að hreyfa sig meira og borða færri hitaeiningar Það reynist hins vegar mörgum erfitt og að sögn Axels benda rann- sóknir til að langtímaárangur sé ekki góður. Þetta á reyndar við um flestar aðferðir sem hægt er að nota til megrunar. Aftur að fitunni. Telur Axel að óttinn við fituna kunni að hafi leitt okkur á villigötur? „Ég held að við höfum farið svo- lítið offari þegar kemur að ráðlegg- ingum okkar um fituneyslu. Það versta er að leiðbeiningarnar voru ekki byggðar á nógu sterkum vís- indalegum grunni. Áherslurnar eru hins vegar að breytast í þessum efn- um og nú leggja sérfræðingar meiri áherslu á að við veljum holla fitu. Þá komum við aftur að ferskleikanum og hreinleikanum í matnum.“ Eitt nýjasta æðið síðustu árin er að nota kókosolíu, er hún svona of- urholl eins og maður heyrir víða? „Hjartalæknar og næringarfræð- ingar hafa oft haft horn í síðu henn- ar því hún er svo rík af mettaðri fitu. Í dag hafa flestir þó minni áhyggjur af þessu. Kókosolía inniheldur nátt- úrulega fitu úr jurtaríkinu og finnst mér því afar ólíklegt að hún sé slæm. Ég tel hins vegar að kókos- olían hafi verið dásömuð fram úr hófi. Það er allt í lagi að nota hana með en hollusta ólífuolíunnar bygg- ist á mun sterkari vísindalegri grunni og rannsóknum.“ Ekki hægt að einblína á líkamsþyngdarstuðul Sykur er áberandi í allri heilsufars- umræðu nútímans. Axel segir að fyrst og fremst snúist það um þann sykur sem er viðbættur. „Fólk telur stundum að það þurfi þá líka að hætta að borða ávexti en munurinn á ávextinum og sykur- molanum er að ef þú borðar ávöxt- inn eins og hann kemur frá náttúr- unnar hendi ertu að fá mikið af trefjum og öðru sem hefur áhrif á frásogið frá meltingarveginum á þann hátt að blóðsykurinn hækkar mun minna en við sykurmolann. Sykur er fyrst og fremst skaðlegur þegar við neytum hans í miklu magni og það gerist ekki nema þeg- ar honum er sérstaklega bætt í mat- vörurnar. Ég tel ávexti vera mikla hollustuvöru sem og auðvitað græn- meti. Það er sama hvaða rannsóknir þú skoðar, grænmetið hefur alltaf jákvæð áhrif á heilsuna.“ Hvað er mikilvægast að við kenn- um næstu kynslóð um mat og mat- arvenjur? „Kenna þeim að þekkja hreinan mat frá unnum mat myndi ég telja að skipti miklu máli. Unnin matvæli eru alltaf líklegri til að innihalda mikið af salti og transfitu. Alþjóða- heilbrigðisstofnunin hefur bent á að við borðum allt of mikið af salti. Mest af saltinu sem við neytum kemur úr unnum matvörum en ekki saltinu sem við við notum við elda- mennskuna heima. Transfituna finnum við nánast bara í unnu mat- vælunum. En matvælaiðnaðurinn þarf líka að taka þátt í þessu og hvað sykurneyslu varðar held ég að sælgætisframleiðendur séu að gera sér grein fyrir því að viðbætti syk- urinn er kominn í ónáð og að þeir verði að bregðast við því. Stjórnmálamenn þurfa einnig að vinna með í þessu og í því samhengi hefur hinn umdeildi sykurskattur oft verið nefndur. Þótt margir telji það forsjárhyggju, sem er oft illa séð, þá notuðum við samt þá aðferð í baráttunni við tóbaksreykingarnar og það virkaði vel. Að mínu mati er þetta þó ekki bara spurning um að skattleggja það sem er óhollt heldur líka að gera fólki kleift að kaupa hollan mat á betra verði; til dæmis ávexti og grænmeti sem er allt of dýrt hér á landi. Það er sorglegt því það er mikið af fólki sem ræður ekki við að kaupa hollan mat.“ Að lokum nefnir Axel að í um- ræðunni um offitu megi ekki ein- blína á aukakílóin. „Þótt það sé líklegra að þú sért með óeðlileg efnaskipti ef þú ert of þungur er samt fullt af fólki með há- an líkamsþyngdarstuðul sem er með mjög heilbrigð efnaskipti. Það hreyfir sig mikið og borðar til- tölulega hollan mat en er samt með heilbrigða fitudreifingu og er heilsuhraustara en einstaklingur sem virkar miklu grennri.“ „Það er mikið af fólki sem ræður ekki við að kaupa hollan mat,“ segir Axel F. Sigurðsson hjartalæknir. Morgunblaðið/Árni Sæberg 22.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is BMW520D XDRIVE F10 Nýskr. 01/2015, ekinn 25 þ.km, fjórhjóladrifinn, diesel, sjálfskiptur, sóllúga, leðurlúxussæti ofl. Glæsilega búinn bíll. Verð 8.690.000 kr. Raðnr. 254961 LANDROVERDEFENDER 110 Nýskr. 06/2015, ekinn 20 Þ.km, diesel, 6 gíra, snorkel ofl.Verð 11.490.000. Raðnr.255138 AUDI A6 2.0 TDI S-LINE Nýskr. 08/2014, ekinn 16 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Mjög vel búinn glæsivagn. TILBOÐSVERÐ 7.490.000 kr. Raðnr. 254356 M.BENZ E 300 BLUETEC HYBRID Nýskr. 07/2013, ekinn 83 þ.km, dísel/rafmagn, sjálfskiptur, leður, glertoppur ofl. Verð 6.590.000 kr. Raðnr. 254489 M.BENZ E 200CDI T BLUETEC AVANTGARDENýskr. 10/2014, ekinn 25 þ.km, diesel, sjálfskiptur, lúga ofl. TILBOÐSVERÐ 6.490.000 kr. Raðnr.254758 AUDI A7 QUATTRO Nýskr. 05/2011, ekinn 111 þ.km, diesel, sjálfskiptur, leður, 19“ álfelgur. TILBOÐSVERÐ 7.990.000 kr. Raðnr. 230144 Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.