Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Page 26
Geymdu kryddin þín á svölum og dimmum stað og alls ekki fyrir ofan
eldavélina. Hiti, raki og ljós mun valda því að kryddin missa bragð.
Hendið reglulega kryddum sem eru útrunninn.
KryddráðMATUR
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.5. 2016
Gott er að brytja bollurnar niður og hita á pönnu ásamt einni dós af maukuðum,
niðursoðnum tómötum eða meiri pastasósu. Sjóddu nýtt pasta. Nú ertu kominn
með fínan nautahakksrétt sem vantar bara slatta af parmesan yfir. Einnig væri
hægt að setja bollurnar í baguette-brauð, setja í ofninn með rifnum osti og hita í ca
10 mínútur. Þá ertu komin með það sem Ameríkanar kalla „meatball sandwich“!
Að nýta afganga!
1 blómkálshaus, skorinn í bita
afgangar af kjötbollum
afgangar af pastasósu
afgangar af mozzarellakúlum
Skerið blómkálið
og setjið í eldfast
mót sem búið er
að smyrja smá
með ólífuolíu.
Skerið afganga og
setjið með blóm-
kálinu ásamt
pastasósunni. Setj-
ið nokkrar mozz-
arellakúlur með.
Bakið í ofni í 15
mínútur á 180°C
eða þar til blóm-
kálið er tilbúið og
rétturinn heitur.
Kjötbollu- og blómkálsragú
Það tekurekki langantíma að
skella í þessar
bollur sem munu
slá í gegn hjá fjöl-
skyldunni. Kjöt-
bollurnar eru góm-
sætar en
mozzarella-
fyllingin í miðjunni
setur alveg punkt-
inn yfir i-ið. Þess-
ar kjötbollur eru
svo góðar að það
er óvíst að það
verði afgangar en
ef svo ólíklega vildi til er tilvalið að skella
þeim út á nýtt pasta eða útbúa blómkáls-
ragú. Til að eiga örugglega afgang má alltaf
gera tvöfalda uppskrift og spara sér elda-
mennskuna kvöldið eftir. Það mun enginn
kvarta yfir því.
Kjötbollur sem þú munt seint gleyma
Óskar Finnsson sýnir
í nýjasta þætti af Kort-
er í kvöldmat hvernig
á að búa til ein-
staklega ljúffengar
ítalskar kjötbollur.
Nýta má afganga í
tvo einfalda rétti.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Óskar Finnsson sýnir
snilldartakta í eldhúsinu.
Morgunblaðið/Ásdís
Fylltar ítalskar
kjötbollur m/
mozzarella-osti
800 g nautahakk
400 g tagliatelle
tómat pastasósa
ein dós litlar
mozzarellakúlur
3 msk brauðrasp
1 egg
laukur
chilli
rósmarín
óreganó
timjan
olífuolía
hvítlaukur
smá rjómi
tabasco
salt og pipar
Í stórri skál, bland-
ið saman nauta-
hakki, eggi, raspi,
smátt skornum
lauki, rifnum hvít-
lauki, chilli, timjan,
rósmarín og óreg-
anó. Saltið og
piprið. Mótið með-
alstórar kjötbollur
með höndunum og
gerið því næst
holu í bolluna.
Setjið eina
mozzarellakúlu inn
í hverja bollu og
lokið. Steikið boll-
urnar vel á pönnu
þar til nokkuð vel
brúnaðar og raðið
svo í eldfast mót.
Setjið í ofn í 10
mínútur á 180°C.
Á meðan skulið
þið sjóða taglia-
telle í söltuðu
vatni.
Næst er að út-
búa sósuna. Taka
góða krukku af
tilbúinni pastasósu
og hella í pott.
Bragðbæta með
rósmarín, tabasco,
rjóma og jafnvel
fleiri kryddum eftir
smekk. Setja tag-
liatelle á disk með
bollum og sósu og
bera fram.
ÞESSA RÉTTI ER HÆGT AÐ BÚA TIL ÚR AFGÖNGUNUM
Þú færð allt hráefnið úr þáttunum hjá okkur